Fréttablaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 25
13. DESEMBER - 1. JANÚAR Tryggðu þér áskrift Í grein sinni í Fréttablaðinu í gær ásakar Sigurgeir B. Kristgeirsson mig um óheiðarleika í saman- burði mínum á verði makríls á Íslandi og í Noregi og síðan heldur hann því fram að ég saki útgerðar- menn um að hlunnfara sjómenn og sveitarfélög og stela undan skatti. Ég vil árétta eftirfarandi: Ég hef engan samanburð gert á verði makríls á Íslandi og í Noregi heldur einungis vitnað í saman- burð sem Verðlagstofa skiptaverðs birti. Sá samanburður sýnir að 2018 var verðið í Noregi þrisvar sinnum hærra en á Íslandi. Ég hélt því fram og geri enn að þjóðin eigi rétt á skýr- ingu á þessum mun vegna þess að hún á þennan makríl. Ég benti á að í þessum verðmun gæti leynst alls konar svínarí en sagði jafnframt að ég vonaði að svo væri ekki, en það þyrfti að rannsaka málið til þess að tryggja hagsmuni þjóðarinnar. Í grein sinni segir Sigurgeir: „Með nákvæmari heimavinnu, gúggli og kannski símtali við japanskan vin hefði Kári getað fengið upplýsingar um makrílverð í Japan. Þá vissi hann nú að verð á markíl í stærri og verðmeiri f lokkum sveif laðist á tímabilinu um 160-360 jen á kílóið.“ Hvernig stendur þá á því að árið 2018 var verð á makríl sem var Þetta er makríllinn okkar, strákur Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Það er hámark ósvífninnar þegar fulltrúi þeirra heldur því fram að það felist óheið- arleiki í því að fara fram á að það sé rannsakað, þegar það kemur í ljós að það lítur út fyrir að þjóðin sé að fá minna fyrir sinn snúð en hún heldur að hún eigi skilið. Mín niðurstaða, eftir þessa morgunhugleiðslu er sú að gjafakaup og peningaeyðsla, sem virðist vera að kaffæra suma á þessum árstíma, sé lítils virði. Svo ég minnst nú ekki á þau ósköp, þegar þannig er komið, að einhvers konar keppni myndast um hver gefur dýrustu og stærstu gjöfina. landað á Íslandi það sama allt árið um kring? Á því voru engar sveiflur. Ein möguleg skýring á því er að það hafi verið verðsamráð meðal kaup- enda á Íslandi, sem við skulum vona að hafi ekki verið. Útgerðarmenn eru að höndla með verðmæti sem þjóðin á fyrst og fremst. Það er hámark ósvífninn- ar þegar fulltrúi þeirra heldur því fram að það felist óheiðarleiki í því að fara fram á að það sé rannsakað, þegar það kemur í ljós að það lítur út fyrir að þjóðin sé að fá minna fyrir sinn snúð en hún heldur að hún eigi skilið. Engin ánauð er verri en að vera eigin þræll. – SenecaEftir að hafa lesið þessi rit- uðu orð Seneca hér fyrir ofan, datt ég inn í smá jólahugleiðslu. Fór að hugleiða í morgunsárið, erum við okkar eigin þrælar, eða mammons, jafnvel beggja? Erum við svo upptekin við að dansa kringum gullkálf inn að við gleymum tilgangi jólanna? Það virðist svo, að gjafirnar séu í fyrsta sæti hjá of mörgum en sem betur fer er samvera með þeim sem okkur eru hjartkærust enn í fyrsta sæti hjá öðrum hópi. Þegar litið er til baka eftir einhver ár, og við setjumst niður til að skoða „gamlar“ jólamyndir, hvort ætli veki þá upp betri minningar og þakklæti að sjá fánýtar gjafir, eða sjá ástvini og fjölskyldumeðlimi á myndunum? Sjá hvað börnin, barnabörnin og jafnvel barna- barnabörnin hafa stækkað og líta yfir farinn veg með þessum elskum. Þar er stórf jölskyldan saman komin til að gleðjast saman og leggja þannig sitt af mörkum inn í minningasjóðinn, sem er besti og dýrmætasti sjóðurinn. Listin að lifa er mikil list og línudans hjá mörgum Hjördís Björg Kristinsdóttir eldri borgari En svo söknum við einnig þeirra sem hafa kvatt þennan heim, og ekki koma oftar í jólagleði stór- fjölskyldunnar. Mín niðurstaða, eftir þessa morgunhugleiðslu er sú að gjafakaup og peningaeyðsla, sem virðist vera að kaffæra suma á þessum árstíma, sé lítils virði. Svo ég minnst nú ekki á þau ósköp, þegar þannig er komið, að einhvers konar keppni myndast um hver gefur dýrustu og stærstu gjöfina. Elskurnar mínar, munum hvað gefur okkur mestu og dýrmætustu jólagjöfina, það er að geta sýnt kærleikann með því að gefa okkur tíma til að njóta samverustunda með þeim sem okkur eru kærastir. Deili þessari smá jólahugleiðingu með ykkur kæru landsmenn, þegar styttist í að við fögnum að jóla- hátíðinni. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.