Fréttablaðið - 19.12.2019, Page 40
Ég var á svæðinu
þegar leikurinn fór
fram og þekki leikmenn
mína. Þetta eru 100 prósent
náungar allur kjarninn
hérna og margir eru at-
vinnumenn fram í fingur-
góma.
Erum með mikið úrval af allskonar
bílaverkfærum á frábæru verði!
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
Hleðslutæki
12V 6A
6T Búkkar
605mm Par
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
Omega
Viðgerðarkollur
4.995
9.999
17.995
7.495
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
FÓTBOLTI Mezut Özil, leikmaður
Arsenal, hefur verið fjarlægður úr
tölvuleikjunum vinsælu FIFA og
PES í Kína eftir að hann blandaði
sér í málefni Kína og ofsóknir þeirra
á hendur úígúr-múslimum í norð-
vesturhluta landsins. Hann verður
þó áfram í leikjunum annars
staðar í heiminum.
Özil sagði á samfélagsmiðlum
meðal annars að Kínverjar væru
að brenna Kóraninn, loka
moskum og skólum.
Konur væru látnar
giftast kínverskum
mönnum en samt
þegðu múslimar
þu n nu h ljó ð i .
„ Mú s l i m a r e r u
þöglir þegar kemur
að þessum brotum
Kínverja, þeir vilja ekk-
ert segja. Þeir hafa yfir-
gefið úígúr-fólkið. Vita þeir
ekki að það að gefa sam-
þykki fyrir ofsóknum eru ofsóknir?“
NetEase, sem gerir PES í Kína,
ákvað að fjarlægja Özil eftir að hann
særði tilfinningar Kínverja. „Við
skiljum ekki, samþykkjum ekki eða
fyrirgefum þessi orð,“ segir meðal
annars í tilkynningu NetEase.
Talsmenn Arsenal sögðu í til-
kynningu að félagið vildi ekki
tjá sig um pólítik og að orð Özil
endurspegluðu ekki skoðun
félagsins. Þeir settu einnig til-
kynningu á Weibo, stærsta
samfélagsmiðil Kína, til
að lágmarka skaðann
sem Özil gæti valdið
ímy nd félag sins .
Samkvæmt frétt BBC
var leikur Arsenal og
Manchester City ekki
sýndur í landinu.
Talsmaður kínverska
ut a nr ík isráðu ney t isins,
Geng Shuang, sagði að Özil
hefði látið mata sig á plat-
fréttum sem hefðu haft áhrif á dóm-
greind hans. „Við bjóðum Özil að
koma til Xinjiang ef hann hefur tök
á til að skoða sig um. Hann getur þá
sjálfur metið hvað er rétt og hvað er
rangt.“
BBC greindi frá því í sumar að kín-
versk yfirvöld aðskildu af ásettu ráði
börn úigúr-múslima og fjölskyldur
þeirra í Xinjang-héraði. Í einu þorpi
hafa yfir 400 börn verið tekin frá for-
eldrum sínum.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, steig fram í gær og
studdi orð Özil. Það hefur Ísland og
21 ríki til viðbótar einnig gert, sem
öll eiga sæti í mannréttindaráði
Sameinuðu þjóðanna. Þjóðirnar
sendu frá sér yfirlýsingu í sumar um
meðferð á úígúr-múslimum í Kína.
Þar kom fram að um einni milljón
manna væri haldið í leynilegum
„kyrrsetningarbúðum“ sem Kín-
verjar fullyrða að séu starfsþjálf-
unarbúðir. – bb
Özil fjarlægður úr FIFA og PES í Kína
Mezut Özil.
1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
KÖRFUBOLTI „Ég tók þetta mál strax
fyrir en ég hafði í raun aldrei neinar
áhyggjur af því. Ég þekki mína leik-
menn það vel og auðvitað voru
margir sárir og reiðir yfir þessu,“
segir Baldur Þór Ragnarsson,
þjálfari Tindastóls í körfubolta, en
Körfuknattleikssambandið hefur
hreinsað liðið af grun um hagræð-
ingu úrslita gegn ÍR.
Fljótlega eftir að leiknum lauk
kom upp orðrómur um að úrslitum
leiksins hefði verið hagrætt og gefið
sterklega í skyn að leikmenn Tinda-
stóls hefðu átt þar hlut að máli.
Samkvæmt tilkynningu KKÍ er ljóst
eftir skoðun á leiknum að leikmenn
Tindastóls hafi ekki komið að hag-
ræðingu úrslita á leiknum og eigi
engan hlut í þessum breytingum á
forgjöf/stuðlum.
Samkvæmt tilkynningunni var
ástæðan fyrir þessum sterka orð-
rómi sú að forgjöf/stuðlar á leikinn
breyttust mjög hratt á skömmum
tíma úr því að Tindastóll myndi
vinna leikinn yfir í að Tindastóll
myndi tapa honum. „Í kjölfarið á
þessum orðrómi ákvað KKÍ strax að
grípa til aðgerða, enda er hagræðing
úrslita ein mesta ógn sem íþrótta-
hreyfingin stendur frammi fyrir nú
á tímum,“ segir í tilkynningunni.
KKÍ fékk einstaklinga til að skoða
leikinn og fara yfir frammistöðu
leikmanna bæði í vörn og sókn til
að sjá hvort eitthvað óeðlilegt hefði
átt sér stað. Niðurstaðan var sú að
svo væri ekki.
Enn fremur var leitað til GLMS,
Global Lottery Monitory System,
sem er fyrirtæki í eigu getrauna-
fyrirtækja og hefur það að mark-
miði að fylgjast með óeðlilegum
hreyfingum og stuðlabreytingum
á markaði. Niðurstaða GLMS er að
ekki séu líkur á að um hagræðingu
úrslita sé að ræða.
Baldur segir að hann hafi verið
á staðnum, í rútunni fyrir og eftir
leik og þekki sitt lið. „Ég veit í raun
ekkert svo mikið um þetta mál ef
ég á að vera hreinskilinn. Ég heyrði
þetta eins og aðrir að það væri í
gangi og það væri verið að benda á
einhverja og dæma fyrirfram með
litlar upplýsingar. Ég hugsaði ekk-
ert um þetta því að ég vissi að þetta
myndi leysast.
Ég var á svæðinu þegar leikurinn
fór fram og þekki leikmenn mína.
Þetta eru 100 prósent náungar
allur kjarninn hérna og margir eru
atvinnumenn fram í fingurgóma.
Það stóðst ekki á neinn hátt að þetta
hefði verið í gangi og ég vissi að þetta
færi frá og við yrðum í raun bara að
mæta á æfingar og reyna að bæta
okkur. Við getum ekki verið að fara
eftir því hvað er í gangi á samfélags-
miðlum. Við mætum og lyftum og
æfum og sofum og borðum rétt.“
Ekkert eftirlit hér á landi
Í tilkynningu KKÍ segir að það hafi
verið á allra vitorði að Tindastóll
hafði ferðast í rútu í nokkra klukku-
tíma til að komast í leikinn og að
leiktíma hafi verið breytt úr 19.15
í 20.00 örfáum klukkutímum fyrir
leik. Tipparar hafi því talið að ferða-
lagið myndi sitja í liðsmönnum
Tindastóls og að sigurlíkur ÍR hefðu
þar af leiðandi aukist. Viðkomandi
tipparar hafi því tippað á forgjöfina
á erlendum vefsíðum.
„KKÍ leggur mikla áherslu á að
vinna gegn hagræðingu úrslita í
íþróttum með öllum mögulegum
ráðum. Hluti af þeirri ógn sem
stafar frá hagræðingu úrslita í
íþróttum á Íslandi kemur til vegna
þess að óheftur aðgangur er fyrir
hvern sem er að erlendum veð-
málasíðum, án nokkurs eftirlits frá
íslenskum stjórnvöldum. Er það
mikið áhyggjuefni fyrir íþrótta-
hreyfinguna á Íslandi.“
Baldur segir að íþróttamenn eigi
ekki að vera mikið að skoða sam-
félagsmiðla. Það sé hættulegur
forarpyttur. „Eitt sem íþróttamenn
verða að gera er að vera ekki upp-
fullir af umræðunni sem er í gangi
í samfélaginu á samfélagsmiðlum.
Einn daginn ertu hylltur en þann
næsta dreginn niður í svaðið.
Íþróttamaður hefur ekkert að gera
með að vera að fylgjast með þessu
eins og þetta er orðið í dag. Það er
langbest að vera svolítið frá umræð-
unni og mæta bara á æfingu og
borða hollt og sofa. Gera sitt besta í
að vera atvinnumaður í íþróttinni.“
Sjálfur er Baldur bara á Facebook
en lætur annað vera. „Ef ég ætlaði
að vera alls staðar þá væri ég ekki
að vinna mitt starf sem þjálfari upp
á 10. Þá væri ég orðinn einbeitingar-
laus og maður myndi eyða allt of
miklum tíma í þennan gerviheim.
Það er best fyrir mig ef ég ætla að
verða þjálfari sem nær árangri að
brynja mig gegn öllum þessum
heimi.“ benediktboas@frettabladid.is
Eðlilega urðu margir sárir og reiðir
Leikmenn Tindastóls mæta í kvöld Grindavík í Domino’s-deild karla í körfubolta, hreinsaðir af grun um að hagræða úrslitum gegn ÍR
í síðasta leik. Þjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson segist aldrei hafa haft neinar áhyggjur af rannsókninni – hann þekki sína leikmenn.
Baldur skrifaði undir þriggja ára samning við Tindastól eftir að hafa gert frábæra hluti með Þór Þorlákshöfn á síðustu leiktíð. MYND/TINDASTÓLL
18.30 Keflavík – ÍR
19.15 Stjarnan – Fjölnir
19.15 Þór Akureyri – KR
19.15 Tindastóll – Grindavík
✿ Leikir kvöldsins