Fréttablaðið - 19.12.2019, Síða 58

Fréttablaðið - 19.12.2019, Síða 58
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is EN EF SVO ÓLÍKLEGA VILL TIL AÐ ERFITT VERÐI AÐ FINNA VERKEFNINU FJÁRMAGN MUN ÁREIÐANLEGA EKKI STANDA Á SAMHERJA AÐ KOSTA ÞAÐ MEÐ EINHVERJU AF NAMIBÍUFÉ SÍNU. Tilkynning um rafræna skráningu og innköllun áþreifanlegra hlutabréfa Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf. Stjórn Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf., kt. 451015-2140, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, og samkvæmt heimild í gr. 2.4 í samþykktum félagsins hefur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfa- miðstöðvar Íslands hf. Rafræn skráning tekur gildi föstudaginn 20. mars 2020 kl. 09:00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignar- skráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna eignar- skráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð, ásamt síðari breytingum. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf. tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru öll í einum flokki, gefin út á nafn hluthafa. Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf. að Fiskislóð 31 101 Reykjavík. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar. Skorað er á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hluta- bréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reiknings- stofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verð- bréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar. Gæta skal þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfamiðstöð Íslands hf. Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa er nafnverð hluta ákveðið ein króna eða margfeldi þar af. Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfamiðstöð Íslands hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Greiðslur til eigenda réttinda rafrænna hlutabréfa í félaginu skulu fara fram fyrir milligöngu kerfis Verðbréfamið- stöðvar Íslands hf. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar og reiknings- yfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000. Reykjavík 10. desember 2019. Fh. stjórnar Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf. Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir, framkvæmdastjóri. – við Laugalæk Hreindýrapaté á hátíðarstund. Úrval af vörum sem koma þér og þínum í hátíðarskap. Partí eða kósí. Úrval af pylsum sem passa við stemninguna. Listmálarinn Þrándur Þórarinsson leyfir sér ítrekað, trúr hefðinni og gömlu meisturunum með sjálfan Francisco Goya efstan í huga, að blanda harðri samfélagsádeilu saman við list sína. Fyrir rétt rúmu ári fannst honum óhjákvæmilegt annað en að festa Klausturmálið á striga en nú síðast tók hann Samherjamálið fyrir ein- faldlega vegna þess að honum rann blóðið til skyldunnar. „Eins og frægt er orðið hefur Sam- herji verið ötull við að hrifsa til sín sjávarauðlindir Namibíu og þannig aukið enn á þjáningar og lífsafkomu þegar þrautpíndrar þjóðar,“ sagði Þrándur þegar Fréttablaðið náði sambandi við hann í Kaupmanna- höfn þangað sem hann er nýkom- inn til þess að sveifla penslum. „Ég vildi gera mitt til þess að sá verknaður verði sem lengst í minn- um hafður og málaði því mynd sem í eina tíð hefði verið sagt að væri „kjörin til stækkunar“,“ segir list- málarinn sem sá stækkun verksins einmitt fyrir sér á mjög svo ákveðn- um, steinsteyptum striga. Listrænt veggjakrot „Þetta málverk er töluvert fært í stílinn, formin einfölduð og flött út og litakontrastinn skarpur og þetta er vitaskuld gert af ásettu ráði þar sem ég vil að verkið verði notað sem veggmynd á stjórnarráðshúsinu,“ heldur Þrándur áfram og bendir á að hann hafi gert sér fullkomna grein fyrir því að augljósasti f lötur- inn undir myndina komi því miður ekki til greina. „Vitanlega hefði Alþingishúsið verið nærtækara en ytri veggir þess eru ekki ákjósanlegir fyrir freskur,“ segir Þrándur og bendir á mynd sem hann segist hafa „fótósjoppað sjálfur af veikum mætti“ og sýnir hvernig hann sér útfærsluna fyrir sér. Auðveld fjármögnun „Eins og sjá má sómir málverkið sér prýðilega á sunnanverðri hlið stjórnarráðshússins og þar sem þessi ríkisstjórn, eins og allar á undan henni, situr í boði Samherja og útgerðarauðvaldsins hygg ég að ráðherrar hennar verði hæst- ánægðir með þessa tillögu mína.“ Þá sér Þrándur fyrir sér að lítið mál verði að af la fjár til þess að koma myndinni á suðurgaflinn. „En ef svo ólíklega vill til að erfitt verður að finna verkefninu fjár- magn mun áreiðanlega ekki standa á Samherja að kosta það með ein- hverju af Namibíufé sínu.“ Þrándur segir rétt að geta þess að þetta tiltekna málverk sé að vísu þegar selt en hann telji söluna síður en svo gera út um drauminn um að gera Samherjamenn að göf lurum við Lækjargötu. Stafræn sigurganga Hann vekur líka athygli á því að einhverra hluta vegna er, senni- lega umtalaðasta verk hans frá upphafi, enn óselt. „Myndin mín af Útlendingastofnun hélt í mikla stafræna sigur- göngu út og suður um net- heima,“ segir Þrándur um það sem við tók eftir að Fréttablaðið.is greindi frá því hvassa ádeiluverki í byrjun desember. „Engin mynda minna hefur fengið viðlíka dreif- ingu á netinu, nema ef vera skyldi Nábrókarbjarni,“ segir Þrándur um mynd af fjármálaráð- herra smokra sér í skollabrækur sem varð svo umdeild að honum var meinað að láta verkið hanga á sýningu í Hannesarholti. „Og lítil furða þar sem fólki sárnar vitaskuld að það skuli vera hér opinber stofnun sem hefur kyn- þáttahatur að leiðarljósi og sendir fólk unnvörpum í opin dauðann, jafnvel börn og óléttar mæður.“ Ég myndi líklega bjóða Samherja að kaupa nýja verkið ef það væri ekki selt nú þegar. Aftur á móti er ekki of seint fyrir Útlendingastofnun að eignast málverk af sér.“ toti@frettabladid.is Samherji smellpassar á stjórnarráðsgaflinn Þrándur Þórarinsson er gjarn á að blanda harðri ádeilu saman við olíulitina og gat ekki stillt sig um að gera Samherjamálið ódauðlegt með málverki sem hann telur eiga heima á suðurgafli stjórnarráðsins. Þrándur segir verkið sóma sér vel á hlið stjórnarráðsins þar sem ríkisstjórnin situr í „boði Samherja“. MYND/ÞRÁNDUR Þrándur segist hafa látið stórfyrirtæki í friði í nokkur ár en fyrir nokkrum misserum urðu Arion banki og Gamma fyrir pensilstrokum hans. 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.