Fréttablaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 2
Ef þetta mat gengur
eftir fækkar
erlendum ferðamönnum
ekki á Íslandi á nýju ári.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri
Isavia
Veður
Norðaustan 5-13 NV-til og á
annesjum NA-lands í dag, annars
hægari. Skýjað veður og snjókoma
eða él við N- og A-ströndina. Hiti
um frostmark. SJÁ SÍÐU 26
Kæstar kræsingar á Hrafnistu
Heimilisfólkið á Hrafnistu í Reykjavík kunni vel að meta Þorláksmessuskötuna sem boðið var upp á í hádeginu í gær. Vítt og breitt um
land er siðnum fylgt og voru þessar kræsingar á borðum víða þótt af þeim fari nokkurt óorð – eða ólykt öllu heldur – að áliti sumra. Til
að bæta andrúmsloftið grípa margir til þess gamla húsráðs að setja yfir pott með jólahangikjöti og berst þá ljúfur ilmur jólanna um allt.
Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hurðir og gluggakerfi
ásamt uppsetningu
og viðhaldi á búnaði.
Áratuga reynsla.
SAMFÉLAG Erna Kristín Stefánsdótt-
ir guðfræðingur er í ítarlegu viðtali
á frettabladid.is í dag, aðfangadag.
Hún ræðir baráttu sína við með-
virkni, þunglyndi, átröskun og um
trú sína á guð og velgengni á sam-
félagsmiðlum. Hún viðurkennir
hræðslu sína við að opinbera trú
sína á samfélagsmiðlum, en segir
hana hafa verið óþarfa.
„Í minni sjálfsvinnu þá hef ég lært
að það eru ekki áföllin sem hafa
mótað mig í þessa sterku mann-
eskju sem er full af samkennd,
heldur er það hvernig ég vann úr
erfiðleikum, hvernig ég tók stjórn,
skilaði skömminni og færði sárs-
aukann yfir í drif kraft til þess að
ef la sjálfa mig og hjálpa öðrum,“
segir Erna Kristín meðal annars um
sína vegferð. – aeh
Trú og líf á
internetinu
Meira á frettabladid.is
Um jólahátíðina verða fréttir
f luttar á frettabladid.is og hring-
braut. is. Jafnframt er þar að finna
lengri viðtöl og umfjallanir. Næst
kemur Fréttablaðið út föstudaginn
27. desember.
Fréttir um
jólahátíðina
+PLÚS
SAMFÉLAG Jólaveisla Hjálpræðis-
hersins í Reykjavík verður að vanda
haldin í dag. Veislan verður að þessu
sinni í húsnæði Hjálpræðishersins í
Mjódd en undanfarin ár hefur hún
verið í Ráðhúsinu.
„Það er auðveldara að halda utan
um þetta þegar maður er í eigin hús-
næði. Við ákváðum líka að breyta
aðeins tímasetningunni til að taka
stöðuna. Maður þarf stundum að
gera það,“ segir Hjördís Kristins-
dóttir, f lokksleiðtogi Hjálpræðis-
hersins í Reykjavík.
Í gær höfðu rúmlega 250 manns
skráð sig í veisluna sem mun standa
frá klukkan 12 til 16 og munu um 30
sjálf boðaliðar aðstoða við veislu-
haldið. „Við erum rosalega blessuð
að hafa mikið af sjálf boðaliðum
og styrktaraðilum. Þetta væri ekki
hægt öðruvísi,“ segir Hjördís.
Boðið verður upp á þriggja rétta
máltíð sem samanstendur af reykt-
um laxi, lambalæri og ís og köku.
„Við verðum með allt sem þarf til
að halda góða veislu. Það er alltaf
ákveðinn kjarni af fólki sem kemur
en svo koma auðvitað margir hælis-
leitendur.“
Hjálpræðisherinn stefnir á að
flytja inn í nýtt húsnæði við Suður-
landsbraut næsta haust. Hjördís
segir að núverandi húsnæði sé
löngu sprungið og það verði smá
gestaþraut að koma öllum veislu-
gestum fyrir.
„Við vonum samt að það komi
ekki allir í einu heldur að þetta
dreifist aðeins. Við erum allavega
með tvö holl af sjálfboðaliðum. Svo
ætlar frú Eliza Reid að heiðra okkur
með nærveru sinni. Það verður mjög
skemmtilegt að taka á móti henni,“
segir Hjördís.
Í dag er einnig opið á kaffistofu
Samhjálpar í Borgartúni. „Það er
opið alla daga ársins en að venju
verður boðið upp á jólamáltíð í
hádeginu í dag. Við gerum allt til að
hafa þetta eins huggulegt og hugsast
getur,“ segir Valdimar Þór Svavars-
son, framkvæmdastjóri Samhjálpar.
Að meðaltali eru gefnir 180
matar skammtar á kaffistofunni á
dag sem gerir rúmlega 65 þúsund
máltíðir á ári.
„Mig grunar að kaffistofan verði
vel sótt í dag. Kaffistofan gefur
ekki bara mat heldur er þetta líka
ákveðið samfélag þar sem fólk
kemur og talar saman og finnur
náungakærleikann. Það eru ekki
síst þessir jaðar settu hópar sem
koma til okkar sem kannski upplifa
slíkar stundir ekki nógu oft.“ Valdi-
mar segir að í dag verði boðið upp
á góðan mat og hátíðarstemningu.
„Við erum líka að safna fyrir þess-
um máltíðum þannig að fólk getur
styrkt um máltíð sem er verðlögð á
3.500 krónur. Það er til dæmis hægt
að gera á heimasíðu okkar en það er
heilmikið um að fólk styrki okkur
um eina máltíð eða jafnvel f leiri.“
Valdimar segir þau hjá Samhjálp
finna fyrir miklum velvilja í þjóð-
félaginu enda gæti kaffistofan ekki
starfað öðruvísi. „Það kemur svo til
allur matur sem er í boði allan árs-
ins hring í gegnum gjafir og styrki.“
sighvatur@frettabladid.is
Væri ekki hægt án
sjálfboðaliðanna
Búist er við að á þriðja hundrað manns mæti í hina árlegu jólaveislu Hjálp-
ræðishersins sem haldin verður í Mjódd í dag. Um 30 sjálfboðaliðar koma að
veisluhöldunum. Þá verður jólastemning í kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni.
Sjálfboðaliðar útbúa jólagjafir sem fangar fá meðal annars.
SAMGÖNGUR Gert er ráð fyrir að
farþegum sem fara um Leifsstöð
fækki um nær átta prósent á næsta
ári frá því sem fyrir liggur um far-
þegafjölda á yfirstandandi ári.
Þetta kemur fram í nýútgefinni
farþegaspá Isavia.
Samtals er gert ráð fyrir að
heildarfjöldi farþega verði 6,7
milljónir á næsta ári. Spáð er að
að komu- og brottfararfarþegum
fækki einungis um rúmt eitt pró-
sent.
„Ef þetta mat gengur eftir fækk-
ar erlendum ferðamönnum ekki
á Íslandi á nýju ári,“ segir Svein-
björn Indriðason, forstjóri Isavia
í tilkynningu.
Í spánni segir að skiptifarþegum
fækki mest. Gert er ráð fyrir að
þeir verði um 1,5 milljónir en þeir
voru ríf lega tvær milljónir á árinu
2019. Gangi spáin eftir að þessu
leyti yrði þetta annað árið í röð
sem skiptifarþegum í Leifsstöð
fækkar.
Í tengslum við farþegaspá Isavia
hefur fyrirtækið gefið út ferða-
mannaspá. Fyrstu niðurstöður
hennar benda til að íslenskum
ferðamönnum sem fara um Leifs-
stöð fækki um sjö til átta prósent
frá yfirstandandi ári. – jþ
Isavia spáir
samdrætti
2 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð