Fréttablaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 32
Söngsveitin Fílharmónía heldur árlega jólatónleika sína í Lang-holtskirkju föstudaginn 27.
desember kl. 20. Einsöngvari verð-
ur Kristinn Sigmundsson og með
kórnum leika Tómas Guðni Egg-
ertsson á píanó og orgel og Þórður
Högnason á kontrabassa. Stjórn-
andi kórsins er Magnús Ragnarsson.
Efnisskráin verður í senn hátíð-
leg og fjörleg, en tónleikagestir fá
að hlýða á íslensk þjóðlög og sígild
jólalög frá hinum ýmsu löndum.
Hvæst og blásið
í kirkjunni
Eymundsson hefur sent út síð-asta metsölulista sinn fyrir jól. Enn sem fyrr er Arnaldur
Indriðason á toppnum með Trega-
stein. Ekkert lát er á vinsældum
bókar Andra Snæs Magnasonar Um
tímann og vatnið, en hún er í öðru
sæti. Bókin seldist gríðarvel strax
eftir útkomu og bóksalar segja að
þá hafi fólk verið að kaupa hana
fyrir sig en nú séu ánægðir lesendur
að kaupa hana til gjafa. Í þriðja sæti
er síðan Innf lytjandinn eftir Ólaf
Jóhann Ólafsson. Bækur hans hafa
löngum notið vinsælda meðal les-
enda og ekkert lát er á því þetta árið.
Í fjórða sæti er Þinn eigin tölvu-
leikur eftir Ævar Þór Benediktsson
og í því fimmta Hvítidauði eftir
Ragnar Jónasson. Yrsa Sigurðar-
dóttir verður að sætta sig við sjötta
sætið með bók sína Þögn, en bækur
hennar hafa venjulega verið mun
ofar á lista.
Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæ-
björnsdóttur seldist upp fyrir jól, en
útgefandinn var séður og lét prenta
bókina í kilju og þannig fæst hún nú
í verslunum. Í gær, á Þorláksmessu,
benti síðan allt til þess að Jakobína,
ævisaga Jakobínu Sigurðardóttur
eftir dóttur hennar Sigríði Kristínu
Þorgrímsdóttur, myndi seljast upp.
Bækurnar á toppnum
Söngsveitin vinsæla Fílaharmónía.
MYND/GUNNAR FREYR STEINSSON.
Kristinn
Sigmundsson.
Bragi
Valdimar
Skúlason.
Ólafur Jóhann getur fagnað góðu
gengi þessi jól.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Söngsveitin Fílharmónía fagnar
sextíu ára starfsafmæli þennan
vetur með metnaðarfullu og fjöl-
breyttu tónleikahaldi. Jólatón-
leikar hafa verið fastur liður í starfi
kórsins í þrjátíu ár.
„Á sextugsafmæli kórsins lítum
við til baka og flytjum mörg af eftir-
lætis jólalögunum í gegnum árin,
til dæmis Það aldin út er sprungið,
sem er lag frá 15. öld við sígildan
texta Matthíasar Jochumssonar og
franska jólalagið A Maiden Most
Gentle,“ segir Sigþrúður Gunnars-
dóttir, formaður kórsins.
„Kristinn Sigmundsson syngur
einsöng með kórnum í fjölmörgum
lögum, meðal annars Nóttin var sú
ágæt ein og ameríska jólaslagarann
White Christmas. Þá syngur kór-
inn bráðskemmtilega útsetningu
Skarphéðins Þórs Hjartarsonar
á Jólakettinum eftir Ingibjörgu
Þorbergs. Þar fá kórfélagar ekki
bara að fara með kjarnyrtan texta
Jóhannesar úr Kötlum heldur að
mjálma, hvæsa og blása eins og
norðangarri.
Yngsta verkið á efnisskránni
er svo Sagan af Jesúsi eftir Bagga-
lútana Guðmund Pálsson og Braga
Valdimar Skúlason í nýrri útsetn-
ingu Sunnu Karenar Einarsdóttur.“
Eftir tónleikana verður gestum
boðið í jólasamsöng, heitt súkku-
laði og smákökur í safnaðarheimili
kirkjunnar. Miðaverð er kr 3.900,
miðasala á tix.is og við innganginn.
Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöf-
undur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Björgvin Franz G
ísl
as
o
n
Stína Ágústsd
ót
tir
Sigurður Flosa
so
n
KK
STJÓRNANDI & KYNNIR:
Sigurður Flosason
NÝÁRSTÓNLEIKAR Í ELDBORG
5. JANÚAR KL. 20.00
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27Þ R I Ð J U D A G U R 2 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9