Fréttablaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 21
Framhald af forsíðu ➛ á heimilinu og hefur í raun gert síðan þau voru lítil þó Bergdís Kara gefi henni oft ekkert eftir. Bríet Karítas er bæði líkust mér í útliti og persónu, en þó svo að ég hafi alltaf verið ákveðin og svolítið þrjósk er hún löngu búin að toppa mömmu sína þar,“ segir Valborg og kímir. Hún viðurkennir að stundum sé svolítil barátta að skipta sér á milli barnanna þegar kemur að spjalli, leik og kúri en að þeim takist nokkuð vel að komast að sam­ komulagi og skiptast á. „Það er helst fyrst á morgnana þegar þau vilja öll láta halda á sér úr svefnherberginu og inn í stofu, nývöknuð og langar í smá kósí­ stund fyrir morgunmatinn. Yfir­ leitt leikum við okkur öll saman og þá eru allir sáttir og eins ef einhver meiðir sig, þá hefur það barn alltaf forgangsrétt á mömmu sína, sem þau skilja öll.“ Sofna ekki án mjólkursopa Nú þegar þríburarnir nálgast þriðja afmælisdaginn segir Valborg upp­ eldi þeirra krefjandi en á annan hátt en þegar þau voru ungbörn. „Þegar ég lít til baka finnst mér allt hafa verið miklu auðveldara þegar þau voru yngri. Áður en allir fóru að hreyfa sig hratt, hafa skoð­ anir á öllu og ég þurfti aldrei að rökræða neitt. Núna fer mikill tími í að tala þau til og sannfæra þau um að taka þátt. Svo er auðvitað margt sem er farið að ganga betur. Ég fæ stundum tíma til að borða nú þegar þau eru farin að borða sjálf og ef vel liggur á þeim geta þau líka klætt sig í og úr sjálf sem flýtir fyrir og auðveldar,“ segir Valborg og heldur áfram: „Ég hlakka svolítið til þegar við getum á auðveldan hátt farið hvert sem er saman. Svona án þess að ég eigi á hættu að týna barni eða komi þeim ekki heim vegna prakkara­ skapar þegar þau hafa æst hvert annað upp í ærslagangi. Og þegar við getum farið saman í ferðalag og útilegu án þess að vera háð því að það komi fleiri með til að hjálpa mér. Við erum ekki alveg orðin sjálfbær enn þá á sumum sviðum en það fer held ég að styttast í það.“ Sem betur fer sé liðin sú tíð að allir séu vaknaðir klukkan sex að morgni. „Hér eru allir vaktir um sjö virka daga og ég er ekki frá því að börnin séu að læra að sofa út um helgar. Brynjar Kári er alltaf vaknaður fyrstur um helgar en oft um átta. Það er hellings útsof að mínu mati þó systur hans geti sofið töluvert lengur,“ upplýsir Valborg. Háttatíminn gengur líka oftast vel þó hann gangi verulega hægt. „Það getur tekið tímann sinn að fá þrjú börn á þessum aldri til að fara í náttföt og slíkt! Ég syng fyrir börnin á kvöldin en á daginn syngjum við og lesum saman. Þau eru öll sammála um að það sé algjörlega vonlaust að sofna fyrr en þau hafa fengið mjólkursopa uppi í rúmi og séu með tvær til þrjár snuddur hvert. Þau sofna í rúmunum sínum og eiga að sofa þar en það kemur fyrir að þau komi upp í til mín. Það hefur sem betur fer hitt þannig á að yfirleitt er bara eitt barn sem vaknar um miðja nótt og tilkynnir að það vilji sofa í mömmurúmi. Eitt barn er notalegt en þrjú eru of mikið af því góða því þá er ekkert pláss fyrir mig!“ segir Valborg sposk. Dýrmætt að eiga systkini Börnin byrjuðu í leikskóla Hjalla­ stefnunnar í haust. Hann er kynja­ skiptur. „Það hefur komið vel út fyrir þau. Brynjari Kára fannst þetta svolítið skrýtið fyrst, að vera ekki með systrum sínum, en hann hefur gott af smá fríi frá þeim og hittir þær glaður seinnipartinn. Bergdís Kara og Bríet Karítas eru hvor í sínum hópnum á sinni deild svo þær eru ekki saman í öllu. Mér finnst skipta miklu máli að þau séu líka ein­ staklingar en ekki alltaf hópur. Þau sækja mikið hvert í annað þegar þau hittast á leikskólanum en þegar ekki annað systkini er nærri leika þau við aðra vini og vinkonur í meiri mæli,“ segir Valborg. Þríburarnir eru sannir vinir. „Þau leika sér yfirleitt alltaf saman hér heima og ræða mikið sín á milli hvernig allt á nú að vera. Ég vona að þau verði alltaf náin hvert öðru og haldi miklu sambandi hvert við annað þegar þau eldast. Ég held að það sé mjög dýrmætt að eiga systkini sem standa manni nærri í vináttu og lífinu öllu,“ segir Val­ borg af móðurást. Útivera kemst ofarlega á lista yfir það sem börnunum þykir skemmtilegast að gera. „Þeim finnst líka alls kyns kubb­ ar mjög skemmtilegir og að leira. Okkur finnst líka öllum gaman að baka og stundum skellum við í köku þótt allt heimilið beri þess eflaust merki á eftir,“ segir Valborg sæl. Uppáhaldstími hennar yfir daginn eru helgarmorgnar með börnunum. „Kósíkvöld eru ekki til á þessu heimili fyrr en börnin eru sofnuð! Við tökum kósímorgna í staðinn um helgar og kíkjum þá kannski á eina teiknimynd eða svo, þessa stuttu stund sem athygli barnanna nær. Fljótlega förum við svo bara að púsla, lesa eða leira, svona ef við ætlum að hafa það rólegt. Mér finnst gott þegar við getum öll haft það kósí saman, leikið okkur og tekið allan þann tíma sem okkur hentar í verkefnin. Ég er því ansi spennt fyrir frídögum yfir jólin þar sem við getum átt nokkra svona daga saman.“ Besti tíminn með börnunum Valborg fór aftur til vinnu þegar þríburarnir byrjuðu í leikskóla. „Það var dásamlegt að fá tækifæri til að vera með þau heima í tvö og hálft ár og ég er mjög þakklát fyrir það. Ég á enn svolítið erfitt með þetta leikskólalíf og myndi vilja hafa efni á því að vera meira heima með börnunum mínum. Stundum finnst mér erfitt að aðrir en maður sjálfur njóti þeirra forréttinda að eyða deginum með þeim. Ég vildi að lífið gæti gengið upp þannig að við værum í vinnu og leikskóla hálfan daginn en það gerir það því miður ekki,“ segir Valborg sem vinnur rúmlega fulla vinnu, sem matráður í öðrum leikskóla á daginn og við þrif í fyrirtæki á kvöldin þegar börnin eru sofnuð. „Þessi blessaði kostnaður við börnin og heimilishaldið hefur sem betur fer alltaf reddast. Það er vissulega mjög dýrt þegar þarf að kaupa útifatnað og skó á öll þrjú en dýrasti liðurinn er klárlega húsnæðislánið á íbúðinni sem ég keypti í vor. Við bjuggum áður á þriðju hæð í blokk sem hentaði mjög illa en erum nú komin í hent­ ugra húsnæði á jarðhæð sem hefur gert lífið mun auðveldara þó pen­ ingalega séð hafi róðurinn þyngst. Að öðru leyti finnst mér leikskóla­ gjöldin frekar há og fann mikið fyrir því þegar þau bættust við reikninga heimilisins. Börnin eru enn með bleiu að hluta til en ætli það fari ekki að koma að því að við kveðjum þær. Ég er allavega ansi spennt fyrir því. Ég hef ekki efni á miklum munaði eða ferðalögum en yfirleitt næ ég að láta mánuðinn ganga upp. Ég væri vissulega til í að hafa meira á milli handanna, eins og flestir, það væru sennilega allir til í það sama hvað sem við eigum mikið eða lítið,“ segir Valborg sem gefst sjaldan frí með sjálfri sér. „Það gerist bara ef krakkarnir gista hjá mömmu og pabba og þá fer ég yfirleitt heim eftir kvöld­ mat að laga til og svo að sofa. Ég væri auðvitað alveg til í meira frí en það er tæplega möguleiki núna þegar við erum öll í vinnu og leikskóla. Maður vill nýta tímann eftir vinnu með börnunum og sem mest af helgunum. Svo þarf jú að sinna heimilinu líka og halda öllu gangandi. Mér finnst tíminn með krökkunum yfirleitt það besta en það hafa allir gott af því að gera eitthvað fyrir sjálfa sig líka. Það verður bara einhvern tímann seinna,“ segir Valborg kát. „Að vera mamma brátt þriggja ára barna er klárlega best þegar allir eru brosandi og hlæjandi. Heimilið fullt af gleði og endalausri orku. Það er dásamlegt að horfa á þau þegar þau leika sér öll fallega saman og fyllir mann þakklæti. Þrjú veik börn er sennilega erfiðast, sem og mótþrói þriggja barna þegar ekkert gengur upp. Mér hafa oft fallist hendur, en sennilega mest yfir öllu dótinu og tiltektinni sem bíður mín eftir mjög langa daga,“ segir Valborg. Nú í desember lögðust þau öll, Valborg og börnin þrjú, lasin á sama tíma. „Þá ganga börnin fyrir og maður verður bara að reyna eins og maður getur. Sinna þeim og kalla svo á aðstoð þegar maður er búinn á því. Við búum vel að hjálpsamri fjöl­ skyldu sem léttir undir með okkur, bæði í leik og heimilisstörfum. En við höfum sem betur fer sloppið vel við veikindi og ég vona að þannig verði það áfram. Góð heilsa er jú gulli betri!“ Til í fleiri börn þegar róast Jólaundirbúningur hjá litlu fjöl­ skyldunni hefur gengið vel. „Ég stressa mig ekki á neinu. Hvorki jólaþrifum eða því að baka ótal sortir af smákökum. Hér eru jólaljós í öllum gluggum og svolítið af skrauti, en mér finnst þetta jóla­ dúllerí mjög skemmtilegt. Jólatréð fór upp um helgina og það verður spennandi að sjá hvort það fái að vera hér um bil í friði fyrir litlum fingrum um jólin. Krakkarnir eru spenntir fyrir þessu öllu en skilja held ég ekki alveg hver þessi jól eiginlega eru sem alltaf er verið að tala um,“ segir Valborg sem í kvöld heldur jól í þriðja sinn með þríbur­ unum sínum. „Ég vona að jólin okkar verði góð og kósí. Aðfangadagskvöld verður sennilega ansi spennandi en ég hugsa að ég dreifi pakkagleðinni á nokkra klukkutíma til að draga úr yfirþyrmandi spennu og svo krakkarnir pæli meira í hverri gjöf áður en þau fá þá næstu. Það var ekki planið að börnin fengju öll það sama í jólagjöf en það þarf að velja sér baráttur og stundum er bara auðveldara að allir fái eins þó það verði til þrennt á heimilinu. Þannig fór þetta einmitt núna að hluta til. En þau eru jú af tveimur kynjum og það er nú bara þann­ ig að áhugamálin eru ekki öll þau sömu. Svo það verður líka eitthvað um hluti sem sumum á eftir að þykja meira spennandi en öðrum,“ segir Valborg sem kveðst afslöppuð þegar kemur að hefðum jólanna. „Ætli ég leggi ekki mest upp úr því að jólastress sé sem minnst og að meira sé lagt upp úr róleg­ heitum, núvitund og samveru­ stundum. Jólaboðum hefur fækkað með árunum en sum lifa enn sem mér finnst gaman og mikilvægt.“ Þríburarnir fengu svo auðvitað í skóinn frá jólasveininum en fyrir talnaglögga gerir það 39 skógjafir þrettán dagana fyrir jól. „En ég játa að jólasveinunum var fækkað svolítið hér á bæ og skórinn settur aðeins seinna í gluggann. Mömmunni fannst þessir þret­ tán sveinar svona full mikið af því góða fyrir svona litla krakka, en okkur finnst þetta öllum nokkuð skemmtilegt,“ segir Valborg í jóla­ skapi. Þegar þríburarnir voru sjö mánaða kvaðst hún vel geta hugsað sér fleiri börn. „Akkúrat núna myndi ég senni­ lega segja pass í bili. Ég á alveg nóg með þessa þrjá uppátækjasömu snillinga. En um leið og þau fara aðeins að róast væri ég alveg til í f leiri, þó mér þyki ólíklegt að af því verði.“ Valborg segist vonast til að systkinin verði alltaf náin enda sé dýrmætt að eiga systkini sem standa manni nærri í lífinu. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Ég á enn svolítið erfitt með leik- skólalífið og vildi hafa efni á að vera meira heima með börnunum. Stundum finnst mér erfitt að aðrir njóti þeirra forréttinda að eyða deginum með þeim. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.