Fréttablaðið - 27.12.2019, Síða 36

Fréttablaðið - 27.12.2019, Síða 36
Því miður eru slys tengd flugeldum allt of algeng og koma þau upp á hverju ári, þá sérstaklega augn- og brunaslys. Þó hefur sem betur fer verulega dregið úr þessum slysum undan- farin ár. Flest slys tengd flugeldum má rekja til rangrar notkunar, þar sem ekki er farið eftir leiðbeiningum og grundvallarreglum. Mikil- vægt er að brýna fyrir börnunum hvernig á að umgangast f lugelda og þá sérstaklega hversu hættulegt það er að fikta með þá og taka þá í sundur. Slysavarnafélagið Landsbjörg og Sjóvá hafa unnið hörðum höndum að því að auka notkun flugeldag- leraugna og hefur notkunin aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Hluti af þessu átaki er að senda gjafabréf á öll börn á aldrinum 10-15 ára fyrir f lugeldagleraugum og hefur það reynst afar vel. Flugeldagler- augu eru einfaldur og áhrifaríkur öryggisbúnaður sem getur komið í veg fyrir augnslys. Samhliða notkun á flugelda- gleraugum á áfram að umgangast f lugelda með varúð. Hér hafa Slysavarnafélagið Landsbjörg og Sjóvá tekið saman helstu atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga yfir áramótin: n Geymdu flugelda á öruggum stað. n Lestu vel leiðbeiningar sem fylgja flugeldum. n Vertu aldrei með flugelda í vasa og notaðu hanska til að vernda hendur. n Mundu eftir f lugeldagleraugun- um frá Sjóvá, hvort sem þú ætlar að skjóta upp eða bara horfa á. n Hafðu sérstakar gætur á börn- unum. Gott er að setja heyrnar- hlífar á börn sem eru viðkvæm fyrir hávaða. n Hafðu stöðuga undirstöðu undir f lugeldum, standblysum og skotkökum. n Gættu þess að skotstaðurinn sé í hæfilegri fjarlægð frá fólki, húsum og bílum. n Kveiktu í með útréttri hendi og hallaðu þér aldrei yfir f lugelda. n Forðaðu þér um leið og logi er kominn í kveikiþráðinn. n Aldrei kveikja aftur í f lugeldum sem áður hefur verið kveikt í. n Mundu að áfengi og flugeldar eiga ekki saman. n Haltu dýrum innandyra þar sem þau heyra sem minnst í spreng- ingunum. Það skiptir máli að nota flug- eldagleraugu hvort sem verið er að skjóta upp eða bara horfa á – verum góðar fyrirmyndir og notum gleraugun. Flugeldagler- augu er hægt að nálgast án endur- gjalds í útibúum Sjóvár um land allt og einnig á f lugeldamörkuðum björgunarsveitanna. Gleðilegt nýtt ár og munum að fara varlega. Förum varlega um áramótin Áramótin eru ánægjulegur tími sem við njótum í faðmi fjölskyldu og vina. Fyrir marga er hluti af hátíðarhöldunum að skjóta upp flugeldum og er þá mjög mikilvægt að fyllsta öryggis sé gætt. Lifandi fréttamiðill með nýjustu fréttum allan sólarhringinn ásamt ítarlegri umöllun um málefni líðandi stundar. Fréttablaðið.is - stendur undir nafni 10 2 7 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RBJÖRGUNARSVEITIR Á ÁRAMÓTUM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.