Skessuhorn - 20.02.2019, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 8. tbl. 22. árg. 20. febrúar 2019 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Gildir alla daga
frá 11–16
ef þú sækir
1.000 KR.
Lítil pizza af matseðli
0,5 lítra gos
1.500 KR.
Pizza af matseðli, miðstærð
0,5 lítra gos
Landnámssetrið
Borgarnesi
sími 437-1600
„Farðu á þinn stað“
Í flutningi Tedda löggu
föstudaginn 22. febrúar kl. 20:00
laugardaginn 23. febrúar kl. 20:00
sunnudaginn 24. febrúar kl. 16:00
Ný sýning á Söguloftinu
Njálssaga Bjarna Harðar
Frumsýning
laugardaginn 2. mars kl. 20:00
Næsta sýning
sunnudaginn 3. mars kl. 16:00
Nánar um dagskrá og miðasala á
landnam.is/vidburdir
UPPSELT
NOKKUR
SÆTI LAUS
UPPSELT
20 ÁR
Í liðinni viku hélt Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar opna æfingu við bækistöðvar slökkviliðsins við Kalmansvelli á Akranesi. Þar gat fólk fengið leiðsögn í með-
ferð slökkvitækja, skoðað tækjakost og þá sýndu slökkviliðsmenn þegar klippa þurfti bíl. Á meðfylgjandi mynd er verið að slökkva eld í bíl. Tíu nýliðar hófu sama dag
störf í slökkviliðinu og sjást tveir þeirra spreyta sig á verkefninu. Sjá nánar í frétt í blaðinu í dag. Ljósm. mm.
Á þriðjudagsmorgni í liðinni viku
varð árekstur tveggja bíla í ofan-
verðum Hvalfjarðargöngum, um
500 metra frá gangamunnanum
að norðanverðu. Tveir menn slös-
uðust. Atvikalýsing var þannig að
lítill jepplingur á norðurleið varð
kyrrstæður í göngunum. Virð-
ist sem ökumaðurinn hans hafi
verið í vandræðum með akstur-
inn í nokkurn tíma, ef marka má
atburðaskráningu frá Vegagerð-
inni, sem Skessuhorn hefur und-
ir höndum. Öðrum bíl er svo ekið
aftan á hinn kyrrstæða. Bilaða
bílnum hafði verið ekið út úr því
sviði sem Vegagerðin nær að taka
upp í eftirlitsmyndavélakerfi sínu
og starfsmenn geta séð í vaktstöð.
Höfðu þeir því ekki vitneskju um
slysið fyrr en þeim barst útkalls-
boð frá Neyðarlínunni. Eftir að
Neyðarlínan fékk boð var ekki
sett á hæsta viðbúnaðarstig jafn-
vel þótt eldsneyti læki frá bílunum
og eldhætta því umtalsverð. Loks
varð misbrestur á að slökkvilið
yrði kallað út með forgangi, en 13
mínútur liðu frá því Neyðarlínu
var gert viðvart um slysið og þar
til Slökkvilið Akraness og Hval-
fjarðarsveitar var kallað út.
Þráinn Ólafsson, slökkviliðs-
stjóri á Akranesi, segir í samtali við
Skessuhorn að margt hafi greini-
lega brugðist í þessu óhappi, bæði
í eftirliti með umferð, en ekki síð-
ur í útkalli Neyðarlínunnar eft-
ir að vegfarandi gerði viðvart. Af
þessari reynslu beri að draga lær-
dóm og mun hann við fyrsta tæki-
færi kalla til fundar forsvarsmenn
Vegagerðar, ríkislögreglustjóra
og Neyðarlínunnar til að fara yfir
það sem augljóslega verði að bæta
í viðbragðsáætlun. Þráinn telur
vísbendingar um að menn hafi
sofnað á verðinum hvað varðar
alvarleika óhappa í jarðgöngum,
með tilliti til viðbúnaðar vegna
eld- og sprengihættu. Þá kem-
ur einnig fram í viðtali við Þrá-
inn í Skessuhorni í dag að dreg-
ið hafi úr þjónustu og öryggi eftir
að rekstur ganganna fór úr hönd-
um Spalar og til Vegagerðarinnar
síðastliðið haust. Dráttarbíll við
gangamunnann og mönnuð vakt í
skýli hafi oft komið sér vel, en sú
vakt er ekki lengur til staðar. Sjá
nánar bls. 10.
mm
Eftirliti og viðbragðsáætlun ábótavant
Frá vettvangi áreksturs tveggja bíla í Hvalfjarðargöngum að morgni þriðjudags-
ins 12. febrúar sl.