Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 23 WEST ICELAND Travel Ferðast um Vesturland 2019-2020 Fr ee Co pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is Travel W EST ICELA N D - Ferðast um Vesturland 2019-2020 - Your guide to W est Iceland West Iceland Vesturland Kynning á ferðablaðinu Travel West Iceland 2019-2020 Útgáfuþjónusta Skessuhorns, í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands, mun í apríl 2019 gefa út ferðablaðið Travel West Iceland 2019-2020. Blaðið verður á ensku og íslensku. Allir sem starfa við ferðaþjónustu á Vesturlandi og vilja koma sér á framfæri við ferðafólk eru hvattir til að vera með í blaðinu og gera sig sýnilega fyrir gesti. Þau fyrir- tæki sem eru skráðir samstarfsaðilar Markaðsstofu Vesturlands fá sem hluta af félagsaðild 1/8 aug- lýsingu í blaðinu. Auk þess eru stærri auglýsingar boðnar til sölu. Blaðið verður litprentað í A5 broti, 96-112 blaðsíður og gefið út í 60 þúsund eintökum. Efnistök í blaðinu verða með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þar verður almennur kafla um Vestur- land, héraðslýsingar fyrir Akranes og Hvalfjörð, Borgarfjörð, Snæfellsnes auk Dala og Reykhóla á ensku og íslensku sem og ábendingar um mark- verða viðkomustaði og náttúruundur. Kort verða á sínum stað auk viðburðaskrár og fjallað um Vestur- land að vetri. Helstu dreifingarstaðir nú verða á höfuðborgar- svæðinu, upplýsingamiðstöðvum um land allt, aðkomuleiðum ferðamanna á Vesturland og síðast en ekki síst á öllum helstu áningar- og ferðamanna- stöðum á Vesturlandi sjálfu. Lager af blaðinu verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vestur- lands í Borgarnesi. Einnig verður blaðið aðgengi- legt á www.skessuhorn.is og á www.west.is, þaðan sem ferðaþjónustuaðilar geta hvenær sem er hlaðið því niður og sent viðskiptavinum sínum á rafrænu formi. Lögð er áhersla á að auglýsendur noti alþjóðleg ferðaþjónustumerki í auglýsingum sínum. Auglýsingasala Panta þarf auglýsingapláss tímanlega eða í síðasta lagi fyrir 22. febrúar 2019. Boðið er upp á heil- síðuauglýsingar, hálfsíðuauglýsingar, 1/4 auglýs- ingar og 1/8 auglýsingar. Auglýsingaverð hefur verið lækkað frá því í fyrra. Um sölu auglýsinga sér Ingunn Valdís Baldurs- dóttir í síma 433-5500 eða á netfangið ferdablad@skessuhorn.is. Athygli er vakin á því að Markaðsstofa Vesturlands mun á þessu ári ekki gefa út bæklinginn West Iceland - The Official Tourist Guide. Við hlökkum sem fyrr til góðs samstarfs við ferða- þjónustufyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vestur- landi. Útgáfuþjónusta Skessuhorns Sími 433-5500 og ferdablad@skessuhorn.is. 1/1 1/2 1/4 1/8 Allt frá árinu 2004 ferðaðist Sig- urður Sigurðarson dýralæknir um landið, leitaði heimilda og merkti staði þar sem þekktar miltisbrands- grafir er að finna. Þetta eru staðir þar sem dýr sem drápust úr miltis- brandi voru grafin. Sýkillinn sem veldur miltisbrandi myndar dval- argró og getur í aldir lifað í jörðinni og þannig valdið nýju smiti komist hann upp á yfirborðið löngu síð- ar. Verkefnið Sigurðar var unnið á vegum Matvælastofnunar og var ít- arlega kynnt hér í Skessuhorni um svipað leiti og heimildavinna hans var að hefjast. Sjálfur bjó Sigurður yfir mikilli þekkingu frá starfi sínu sem dýralæknir og um tíma yfir- dýralæknir og sá gilda ástæðu til að varðveita þessar heimildir eins og best yrði á kosið. Sigurður segir að þegar verkefnið hófst árið 2004 hafi um 40 þekktir militisbrandsstað- ir verið skráðir á landinu en nú séu jarðirnar 124, þar af 20 hér á Vest- urlandi, og merktar grafir í heild eru 152. Talið er að miltisbrandsveikinn- ar hafi fyrst orðið vart hér á landi 1873 en hingað barst hún með sýktum innfluttum nautshúðum frá Englandi. Veikinnar varð síðast vart í Borgarfirði árið 1952, en hún kom upp á Vatnsleysuströnd 2004 eftir að jarðvegsrof af ágangi sjáv- ar opnaði gröf sýktra dýra. Beinin voru brennd á staðnum og mik- ils viðbúnaðar gætt. Við merkingu Sigurðar á þekktum miltisbrands- gröfum notaði hann hvítan staur, um hálfs metra háan og bókstaf- urinn „A“ er notaður til auðkennis að um miltisbrandsgröf sé að ræða. Síðan ertu tölur við bókstafinn, hér á Vesturlandi og á Vestfjörðum eru þær frá 101-200. Athygli um- ráðamanna jarða er vak- in á því að vakta þarf að hross og annar búfén- aður felli ekki staurana þar sem þeim hefur ver- ið komið fyrir á þekktum gröfum. Lífsseigur sjúk- dómur Miltisbrandur er afar lífs- seigur bakteríusjúkdóm- ur sem sýkill að nafni Bacillus anthracis veldur. Það eru einkum grasbít- andi dýr sem taka sjúk- dóminn en menn geta þó sýkst af honum og getur hann hæglega verið ban- vænn, einkum ef bakterí- an kemst í opið sár. Síð- ast er vitað til að maður hafi sýkst af miltisbrandi fyrir miðja síðustu öld en hann tókst að lækna og viðkomandi varð reynd- ar manna elstur. Það sem gerir miltisbrandinn lífs- seigari en aðrar bakterí- ur er að sýkillinn getur myndað dvalargró eða spora. Þeir geta síðan lifað áratug- um og öldum saman í jarðvegi. Sig- urður segir að þekkt sé frá Englandi að sýkillinn hafi fundist í jarðvegi 500 árum eftir að urðað hafði ver- ið yfir hann, en það mun hafa verið á sjúkrahúsi sem jafnað hafði verið við jörðu eftir að miltisbrandsfar- aldur kom þar upp. Viðbrögð skulu vera fumlaus Nauðsynlegt er að landeigendur, bændur, allir eigendur dýra, um- ráðamenn lands og einnig þeir að- ilar sem koma að hvers kyns fram- kvæmdum og jarðraski í sambandi við t.d. byggingarframkvæmdir, skurðgröft eða vegagerð, séu með- vitaðir um hættuna sem getur fylgt því að raska jörð á þekktum stöðum miltisbrands. Skipulagssvið Borg- arbyggðar vekur til að mynda máls á þessu þar sem innan sveitarfélags- ins er nokkrar þekktar miltisbrands- grafir að finna. Að sögn Sigurðar dýralæknis skulu viðbrögð, ef upp koma bein eða dýraleifar við fram- kvæmdir, vera í fyrsta lagi að stöðva framkvæmdir tafarlaust, kalla því- næst til dýralækni eða lækni til að fá faglegt mat á smithættu og fela í kjölfarið lögreglu að vakta stað- inn svo að skepnur, börn eða aðrir komist ekki að honum þar til smit- hættu hefur verið eytt í eldi, þ.e. hið grunaða flutt burtu til brennslu eða brennt á staðnum. mm Merking og hnitsetning miltisbrandstilfella Á tuttugu jörðum í Dölum, Mýrasýslu og Borgarfirði er að finna þekktar miltisbrandsgrafir Staðsetning miltisbrandstilfella. Heimild og kort: Sigurður Sigurðarson og Bændablaðið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.