Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 201928 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Núna eru sauðfjábændur að fara að greiða atkvæði um endurskoðun á sauðfjársamningi. Ég reikna með að bændur hafi farið ítarlega í gegn- um tillögurnar og mætt á kynninga- fundi. Það er mikil mismunun gerð á milli bænda í þessum tillögum og kemur það einna best í ljós í þeirri framkvæmd að minnka ríkisstuðn- inginn við þá bændur sem hafa hvað minnstan stuðning og auka stuðn- ing við þá bændur sem hafa mest- an stuðning fyrir. En þar kemur vel í ljós að allir þeir sem hafa færri ær- gildi í sauðfé munu tapa á þessum samningi og þeir sem fá greitt sam- kvæmt 0,7 reglunni munu hagn- ast mest. Mig langar aðeins að fara hérna í gegnum tillögunar. Í 2. grein fyrsta lið samnings- ins kemur fram að aðlögunarsamn- ingur er bara hagstæður fyrir þá bændur sem eru með greiðslumark. En ef bóndi með lítið eða ekkert greiðslumark, og myndi vilja fækka um 100-300 kindur og gera aðlög- unarsamning, fær hann miklu minni stuðning til þess en sá sem er með greiðslumark. Þetta yrði því ekki hagstætt fyrir hann nema ef hann ætlaði að hætta alveg. Ég trúi því ekki að það sé það sem við viljum. Þá er sett takmark fyrir hvað margir fá að fara þessa leið þar sem fækk- un á fé má ekki vera nema 10% af vetrarfóðruðum kindum miðað við fjárfjölda 1. janúar 2017, en fé hefur verið að fækka síðastliðin tvö ár. Í 2. lið er tillaga sem miðar bara að því að minnka ríkisstuðninginn við þá sem hafa minnstan stuðn- ing og auka hann hjá þeim sem sem hafa mestan stuðning (þá sem eru í 0,7). Við gerðum 10 ára sauðfjár- saming en með svona langan samn- ing átti að auðvelda okkur að gera okkar rekstraráætlanar en þessi kú- vending núna kemur harðast niður á þeim sem hafa minnstan ríkisstuðn- ing. Er það eðlileg framkvæmd að minnka stuðninginn við þá sem standa verst? Í 3. lið er fjallað um markað með greiðslumark. Það er nú nóg að horfa til kúabænda með mjólkur- kvótann til að sjá hversu gáfulegt þetta er. En það mun aldrei koma þarna inn það magn af greiðslu- marki sem þarf miðað við eftirspurn til að þetta dæmi gangi upp. En þetta hljómar vel í eyrum og loforðið um forgangshópa hljómar líka vel og allir telja sig vera í forgangshópi. Og ekki vitum við hverjar reglur mark- aðarins verða, okkur hafa eingöngu verið kynntar hugmyndir okkar fólks um það hvernig þær skuli vera, ekkert um hugmyndir viðsemjanda eða niðurstöður Búnaðarstofu sem á að sjá um þennan markað. Eins er það dapurlegt að þessir skattpen- ingar fólksins í landinu, sem eiga að koma sem ríkisstuðningur og niður- greiðsla á matvælum fyrir fólkið í landinu, skuli ganga kaupum og sölu má milli bænda og það er þá bank- inn sem fær mikinn hluta að ríkis- stuðningnum þegar upp er staðið. Í fjórða lið er rætt um fram- leiðslujafnvægi. Það er flottur liður en spurning er hvort það verði eitt- hvað af ónýttu greiðslumarki eftir í þennan lið? Fimmti liður er einnig flottur og kannski er lausnin þarna hvernig á að greiða ríkisstuðninginn út til bænda með því að búa til svokallaða innanlandsvog og greiða allan ríkis- stuðning út á hana. En þá þarf að sjálfsögðu að setja eðlilegt hámark á ríkisstuðning á bú en þakið á ríkis- stuðning á bú í dag er alveg fárán- lega hátt. Varðandi 6. lið á ég bara ekki orð yfir dugleysi núverandi ráðherra og ráðherra síðustu ára, því þarna er ástæðan komin fyrir því að stuðn- ingi til sauðfjárbænda er svona mis- skipt og sundrar okkur sem einni heild. En í dag eru einungis 364.000 ærgildi sem hljóta greiðslur og á bak við þær eru 435.000 kindur, það eru 1,19 kindur á ærgildi. Bændur eru nú þegar byrjaðir að undirbúa sig og kaupa greiðslumark til að vera 0,6 og með því að viðhalda þessu 0,7 (sem verður 0,6) kerfi býður það bara áfram upp á enn meiri misskiptingu á ríkisstuðningi en hann er í dag. Núverandi sauðfjársamingur miðar að því að eyða út greiðslu- markinu og jafna ríkisstuðning- inn á mill bænda en þessar til- lögur miða að því að stoppa það ferli fram að næstu endurskoðun og mun það líka auka bilið á milli bænda hvað varðar stuðning. Það er í lagi að segja NEI við þessum samningi. Þá höldum við bara áfram með núverandi samning sem við erum öll svolítið óánægð með, en í lok hans erum við þó öll orðin sem ein heild varðandi rík- isstuðning og getum þá sett alla orku okkar saman sem ein heild í að vinna að markaðsmálum og berjast fyrir hækkun á afurða- verði. Það ætti að vera aðal málið hjá okkur en ekki að slást um ríkis- stuðninginn. Svona í lokin: Hvað haldið þið að hefði skeð ef forsvarsmenn verka- lýðshreyfingarinnar hefðu mætt á fundi hjá sínum félagsmönnum og boðað það að samið yrði um lækk- un launa hjá þeim lægstlaunuðu og hækkun hjá þeim hjá þeim hæst- launuðu? Það er akkúrat það sem þessar tillögur boða. Þóra Sif Kópsdóttir Höf. er sauðfjárbóndi á Ystu-Görðum. Pennagrein Bændur - Fellum sauðfjársamninginn! Í Í meðfylgjandi töflum fyrir 100, 500 og 700 ærgilda bú er miðað við fallþunga samkvæmt landsmeðaltali, eða 16,9 kg. Þá er miðað við afurðaverðið 400 kr/kg. Bornar eru saman þrjár sviðsmyndir fyrir bú með þennan fjárfjölda og mismunandi fjölda ærgilda. Skoðað er hvaða áhrif endurskoðun á sauðfjársamningi ársins 2019 hefur á tekjustreymi þeirra, samanborið við þann samning sem nú er í gildi, frá 1. janúar 2017. Allar tölur um opinberar greiðslur eru reiknaðar út frá fjárlögum ársins 2016, en núgildandi samningur tekur mið af þeim. • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.