Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Núna eru sauðfjábændur að fara að
greiða atkvæði um endurskoðun á
sauðfjársamningi. Ég reikna með
að bændur hafi farið ítarlega í gegn-
um tillögurnar og mætt á kynninga-
fundi. Það er mikil mismunun gerð
á milli bænda í þessum tillögum og
kemur það einna best í ljós í þeirri
framkvæmd að minnka ríkisstuðn-
inginn við þá bændur sem hafa hvað
minnstan stuðning og auka stuðn-
ing við þá bændur sem hafa mest-
an stuðning fyrir. En þar kemur vel
í ljós að allir þeir sem hafa færri ær-
gildi í sauðfé munu tapa á þessum
samningi og þeir sem fá greitt sam-
kvæmt 0,7 reglunni munu hagn-
ast mest. Mig langar aðeins að fara
hérna í gegnum tillögunar.
Í 2. grein fyrsta lið samnings-
ins kemur fram að aðlögunarsamn-
ingur er bara hagstæður fyrir þá
bændur sem eru með greiðslumark.
En ef bóndi með lítið eða ekkert
greiðslumark, og myndi vilja fækka
um 100-300 kindur og gera aðlög-
unarsamning, fær hann miklu minni
stuðning til þess en sá sem er með
greiðslumark. Þetta yrði því ekki
hagstætt fyrir hann nema ef hann
ætlaði að hætta alveg. Ég trúi því
ekki að það sé það sem við viljum.
Þá er sett takmark fyrir hvað margir
fá að fara þessa leið þar sem fækk-
un á fé má ekki vera nema 10% af
vetrarfóðruðum kindum miðað við
fjárfjölda 1. janúar 2017, en fé hefur
verið að fækka síðastliðin tvö ár.
Í 2. lið er tillaga sem miðar bara
að því að minnka ríkisstuðninginn
við þá sem hafa minnstan stuðn-
ing og auka hann hjá þeim sem sem
hafa mestan stuðning (þá sem eru
í 0,7). Við gerðum 10 ára sauðfjár-
saming en með svona langan samn-
ing átti að auðvelda okkur að gera
okkar rekstraráætlanar en þessi kú-
vending núna kemur harðast niður á
þeim sem hafa minnstan ríkisstuðn-
ing. Er það eðlileg framkvæmd að
minnka stuðninginn við þá sem
standa verst?
Í 3. lið er fjallað um markað með
greiðslumark. Það er nú nóg að
horfa til kúabænda með mjólkur-
kvótann til að sjá hversu gáfulegt
þetta er. En það mun aldrei koma
þarna inn það magn af greiðslu-
marki sem þarf miðað við eftirspurn
til að þetta dæmi gangi upp. En þetta
hljómar vel í eyrum og loforðið um
forgangshópa hljómar líka vel og
allir telja sig vera í forgangshópi. Og
ekki vitum við hverjar reglur mark-
aðarins verða, okkur hafa eingöngu
verið kynntar hugmyndir okkar
fólks um það hvernig þær skuli vera,
ekkert um hugmyndir viðsemjanda
eða niðurstöður Búnaðarstofu sem á
að sjá um þennan markað. Eins er
það dapurlegt að þessir skattpen-
ingar fólksins í landinu, sem eiga að
koma sem ríkisstuðningur og niður-
greiðsla á matvælum fyrir fólkið í
landinu, skuli ganga kaupum og sölu
má milli bænda og það er þá bank-
inn sem fær mikinn hluta að ríkis-
stuðningnum þegar upp er staðið.
Í fjórða lið er rætt um fram-
leiðslujafnvægi. Það er flottur liður
en spurning er hvort það verði eitt-
hvað af ónýttu greiðslumarki eftir í
þennan lið?
Fimmti liður er einnig flottur og
kannski er lausnin þarna hvernig
á að greiða ríkisstuðninginn út til
bænda með því að búa til svokallaða
innanlandsvog og greiða allan ríkis-
stuðning út á hana. En þá þarf að
sjálfsögðu að setja eðlilegt hámark á
ríkisstuðning á bú en þakið á ríkis-
stuðning á bú í dag er alveg fárán-
lega hátt.
Varðandi 6. lið á ég bara ekki orð
yfir dugleysi núverandi ráðherra og
ráðherra síðustu ára, því þarna er
ástæðan komin fyrir því að stuðn-
ingi til sauðfjárbænda er svona mis-
skipt og sundrar okkur sem einni
heild. En í dag eru einungis 364.000
ærgildi sem hljóta greiðslur og á bak
við þær eru 435.000 kindur, það eru
1,19 kindur á ærgildi. Bændur eru
nú þegar byrjaðir að undirbúa sig og
kaupa greiðslumark til að vera 0,6 og
með því að viðhalda þessu 0,7 (sem
verður 0,6) kerfi býður það bara
áfram upp á enn meiri misskiptingu
á ríkisstuðningi en hann er í dag.
Núverandi sauðfjársamingur
miðar að því að eyða út greiðslu-
markinu og jafna ríkisstuðning-
inn á mill bænda en þessar til-
lögur miða að því að stoppa það
ferli fram að næstu endurskoðun
og mun það líka auka bilið á milli
bænda hvað varðar stuðning.
Það er í lagi að segja NEI við
þessum samningi. Þá höldum við
bara áfram með núverandi samning
sem við erum öll svolítið óánægð
með, en í lok hans erum við þó öll
orðin sem ein heild varðandi rík-
isstuðning og getum þá sett alla
orku okkar saman sem ein heild
í að vinna að markaðsmálum og
berjast fyrir hækkun á afurða-
verði. Það ætti að vera aðal málið
hjá okkur en ekki að slást um ríkis-
stuðninginn.
Svona í lokin: Hvað haldið þið að
hefði skeð ef forsvarsmenn verka-
lýðshreyfingarinnar hefðu mætt á
fundi hjá sínum félagsmönnum og
boðað það að samið yrði um lækk-
un launa hjá þeim lægstlaunuðu og
hækkun hjá þeim hjá þeim hæst-
launuðu? Það er akkúrat það sem
þessar tillögur boða.
Þóra Sif Kópsdóttir
Höf. er sauðfjárbóndi á
Ystu-Görðum.
Pennagrein
Bændur - Fellum sauðfjársamninginn!
Í
Í meðfylgjandi töflum fyrir 100, 500 og 700 ærgilda bú er miðað við fallþunga samkvæmt landsmeðaltali, eða 16,9 kg. Þá er miðað við afurðaverðið 400 kr/kg. Bornar eru saman þrjár sviðsmyndir fyrir bú með
þennan fjárfjölda og mismunandi fjölda ærgilda. Skoðað er hvaða áhrif endurskoðun á sauðfjársamningi ársins 2019 hefur á tekjustreymi þeirra, samanborið við þann samning sem nú er í gildi, frá 1. janúar
2017. Allar tölur um opinberar greiðslur eru reiknaðar út frá fjárlögum ársins 2016, en núgildandi samningur tekur mið af þeim.
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög