Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 19 Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi á Kúludalsá við Hvalfjörð, sendi á sunnudaginn opið bréf til forstjóra og starfsfólks Umhverfisstofnun- ar vegna útsleppis mengandi efna frá Grundartanga. „Þegar ég kom út á hlaðið á Kúludalsá í morg- un, sunnudaginn 17. febrúar 2019, fann ég í lofti svo mikinn fnyk að ekki var hægt að anda með eðlileg- um hætti. Ég forðaði mér þangað sem förinni var heitið, þ.e. í hest- húsið. Klukkutíma síðar þegar ég hafði lokið við að sinna hestunum var fnykurinn mun minni, en hann var samt til staðar. Nokkur hross eru á útigangi og fá þennan við- bjóð beint í lungun og út í blóðið. Sjá má af loftgæðamæli við Gröf að mikið útsleppi mengandi efna hef- ur átt sér stað í nótt og undir morg- un,“ skrifar Ragnheiður. Þá segir hún það algjörlega óvið- unandi að útsleppi sem þetta skuli eiga sér stað. „Það er einfaldlega verið að spara fé á þann ömurlega hátt að tæma hreinsibúnað út í andrúmsloftið. Útsleppin eru end- urtekin af fullkomnu kæruleysi og óvirðingu við menn og dýr, þrátt fyrir ótal beiðnir um að þessu verði hætt. Öll iðjuverin á Grundartanga koma til greina sem sökudólgar. Það eru mannréttindi að fá að anda að sér hreinu lofti. Stund- um mengast loft af óviðráðanleg- um ástæðum, en í þessu tilfelli og fjölmörgum öðrum hvað Grund- artanga snertir, er mengunin af manna völdum og nú verður að stöðva þennan gjörning. Það bætir ekkert þó eftirlitsaðil- ann bendi á að útsleppið sé innan leyfilegs ársmeðaltals. Sú aðferð við að meta mengun er fáránleg. Um- hverfisstofnun hefur lagt blessun yfir þessa aðferð í starfsleyfum fyr- ir iðjuverin og talar um hana eins og hún sé sé meitluð í stein. Með- altöl segja ekkert um raunveruleg- ar aðstæður eins og það sem gerð- ist í nótt og í morgun. Mengunar- topparnir eru hættulegir hérna við Hvalfjörð, rétt eins og annarsstað- ar þar sem eiturefni eru notuð.“ Að lokum beinir Ragnheiður orðum sínum til Kristínar Lindu Árnadóttur forstjóra og samstarfs- fólks Umhverfisstofnunar. „Þið eruð á launum hjá þjóðinni til að verja okkur fyrir mengun. Ástand- ið er löngu orðið nógu slæmt til að þið takið til hendinni og það er ykkar verk! Þið fáið greitt fyrir slíka vinnu á hverjum einasta degi,“ skrifar Ragnheiður Þorgrímsdótt- ir. mm Skrifaði starfsfólki Umhverfisstofn- unar opið bréf vegna loftmengunar Grunnur að fyrstu heildarstefnu ríkisins um almenningssamgöngur fyrir allt landið hefur verið mótuð og er nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda til 7. mars nk. Starfs- hópur sem Sigurður Ingi Jóhanns- son samgönguráðherra skipaði leggur til að almenningssamgöngur með flugi, ferjum og almennings- vögnum myndi eina sterka heild og að boðið verði upp á eitt leið- arkerfi fyrir allt landið. Markmiðið er auka hlutdeild almenningssam- gangna í ferðum milli byggða á Ís- landi og stuðla þannig að umhverf- isvænni, öruggari og þjóðhagslega hagkvæmari umferð um allt land. Í nýju stefnumótuninni er miðað við að þróa eitt samtengt leiðarkerfi á landi, láði og legi. Skilgreind- ar eru fimm stærri skiptistöðvar á landinu þar sem huga þarf að því að skipuleggja samgöngumiðstöðv- ar. Þær eru á höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Sjö minni skiptistöðvar yrðu einnig í kerfinu fyrir afmark- aðri svæði. Stefnt er að því að öll- um upplýsingum um áfangastaði og tímasetningar í leiðarkerfi almenn- ingssamgangna verði á einni sam- eiginlegri upplýsingagátt. Á þeim vef verði hægt að fá ferðatillögur í rauntíma, sem tengir saman mis- munandi leiðir og ferðamáta og bjóði upp á kaup á farmiðum alla leið. Í skýrslunni er fjallað um sett verði samræmd viðmið um þjón- ustustig almenningssamgangna um land allt. Fjárveitingar taki mið af þjónustustigi hverrar leiðar til að tryggja gagnsæi og treysta rekstr- argrundvöll. Þá er lagt til að far- gjöld í almenningssamgöngum verði lækkuð og þjónustan gerð að- gengilegri almenningi. Í nýrri sam- þykktri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að fargjöld í innanlands- flugi verði lækkuð í þessu skyni. Loks telur starfshópurinn mikil- vægt að fjárfest verði í innviðum al- menningssamgangna, hvort tveggja með uppbyggingu samgöngumið- stöðva á stórum skiptistöðvum og hefðbundnum biðskýlum víða um land. mm Móta heildarstefnu í almenningssamgöngum Lagt er til að ein af fimm stærri skiptistöðvum á landinu verði í Borgarnesi þar sem þessi mynd var tekin. Ljósm. úr safni. Aðstandendur Minningarsjóðs Ein- ars Darra hafa nú farið af stað með uppfræðsluerindi fyrir nemendur í 7.-10. bekk í grunnskólum lands- ins og fyrir foreldra og kennara grunnskólabarna. „Við viljum hafa þetta valdeflandi fræðslu þar sem við gefum foreldrum, kennurum og krökkum verkfæri til að bregð- ast við með upplýstum hætti þegar þau eru komin í aðstæður þar sem er verið að misnota lyf eða fíkni- efni. Hvort sem það er að geta sagt nei eða að þora að láta vita ef þau sjá eða vita af einhverjum sem nota þessi lyf. Oft halda krakkar að þau séu að svíkja vini sína með því að segja frá en raunin er að þau gætu verið að bjarga lífi viðkomandi,“ útskýrir Bára Tómasdóttir móðir Einars Darra í samtali við Skessu- horn. „Krakkarnir vita ekki hversu hættulegt þetta getur verið og einn nemandi sagði við mig eftir að hafa hlustað á uppfræðsluerindið að hann vissi ekki að maður gæti dáið við að fikta. Við viljum gefa þessum krökkum verkfæri svo þau þori sjálf að bregðast við í þessum aðstæð- um Við vitum að svona fræðsla mun aldrei ná til allra og þess vegna vilj- um við valdefla þá sem fræðslan nær til svo þeir krakkar segi frá og bjargi kannski þeim sem fræðslan nær ekki til,“ segir Bára og bætir við að þau fari einnig inn á geðheilbrigðis- mál í fræðslunni og þá sérstaklega kvíða. „Við höfum miklar áhyggjur af hversu mörg börn og ungmenni glími við kvíða og bendum krökk- unum á að það er alltaf til lausn og leiðir fyrir alla.“ Mikil vinna lögð í uppfræðsluerindið Mikil vinna var lögð í Eitt líf upp- fræðsluerindið en að því standa Bára, Andrea Ýr Arnarsdóttir og Aníta Rún Óskarsdóttir, systur Ein- ars Darra, auk Kristjáns Ernis Björg- vinssonar, vinar Einars Darra og fík- ils í bata. Við úrvinnslu uppfræðslu- erindisins var stuðst við rannsóknir og fyrri reynslu aðstandenda Einars Darra frá því þau héldu sambærilegt erindi fyrir nemendur í framhalds- skólum landsins. „Við leituðum líka mikið til unga fólksins og fræða- fólks og vorum til að mynda með rýnihóp sem var samsettur af ungu fólki, óvirkum fíklum, lækni, félags- ráðgjafa og fleiri fræðimönnum. Við gerðum líka skoðanakönnun á net- inu sem rúmlega 500 ungmenni á aldrinum 15-22 ára tóku þátt í. Þetta notuðum við til að sjá hvað myndi ná til unga fólksins og hvað það myndi hlusta á,“ segir Bára. Fyrsta uppfræðsluerindið var haldið í byrjun mánaðarins í Heið- arskóla í Hvalfjarðarsveit, heima- sveit Einars Darra bjó. Einnig er búið að halda erindi í Grundaskóla á Akranesi og í framhaldinu verð- ur farið með uppfræðsluerindið í grunnskóla um allt land. „Við erum nánast fullbókuð út skólaárið en við erum að fara á Neskaupsstað, Reykjavík, Borgarbyggð og víðar. Við erum fyrst með fræðslu fyrir kennara og foreldra deginum áður en við tölum við krakkana. Þetta er svo bæði kennarar og foreldrar verði tilbúnir að ræða við krakkana og svara spurningum þeirra eftir þeirra fræðslu,“ segir Bára og bætir því við að einnig verði haldið erindi fyrir eldri borgara í Hvalfjarðarsveit. „Þetta er eitthvað sem allir þurfa að heyra og ekki síst eldra fólk. Lyfja- skápurinn hjá afa og ömmu getur verið mjög hættulegur, en þetta er eitthvað sem krakkarnir hafa sjálfir bent okkur á,“ segir Bára. arg Valdeflandi fræðsla gegn misnotkun á lyfjum og fíkniefnum Aníta Rún Óskarsdóttir, systir Einars Darra, Kristján Ernir Björgvinsson, vinur Einars Darra og fíkill í bata, Andrea Ýr Arnarsdóttir, systir Einars Darra og Bára Tómas- dóttir, móðir Einars Darra, héldu fyrsta uppfræðsluerindið í Heiðarskóla í byrjun mánaðarins. Nú hafa bakverðir Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar komið hon- um formlega á laggirnar og sýslu- maður gefið út leyfisbréf. Eins og kunnugt er voru fyrstu tónleikar á vegum sjóðsins haldnir í vetur í Reykholtskirkju. Markmið sjóðs- ins er að heiðra minningu Heim- is Klemenzsonar, tónlistarmanns frá Dýrastöðum og styrkja með aflafé ungt og efnilegt tónlistarfólk í Borgarfirði. „Við í stjórn sjóðsins viljum þakka þeim fjölmörgu tón- listarmönnum og áheyrendum sem lögðu leið sína á tónleikana í Reyk- holtskirkju á degi íslenskrar tungu í nóvember síðastliðnum. Einnig öll- um þeim sem hafa lagt fé til sjóðs- ins og gert þetta að veruleika,“ seg- ir í tilkynningu. Hægt er að styrkja sjóðinn með því að leggja inn á bankareikn- ing: 326-22-1916 og kennitala: 500119-0980. mm Minningarsjóður Heimis formlega skráður

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.