Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 201918 Sælkerarnir og systurnar Ragn- heiður og Elísabet Stefánsdæt- ur tóku vel á móti blaðamanni Skessuhorns á heimili Ragnheið- ar á Akranesi nú fyrir helgi. Hús- ið ilmaði af nýbakaðri gulrótaköku sem Ragnheiður hafði bakað og sýnt frá hverju skrefi á Snapchat undir nafninu Matar-lyst. En Mat- arlyst er Snapchat-aðgangur sem þær systur halda úti saman. Þar sýna þær frá öllu því sem þær gera í eldhúsinu en þær er einnig hægt að finna á Facebook og Instagram undir sama nafni. „Við höfum allt- af haft mikinn áhuga á að baka og elda og ég var oft að sýna frá því sem ég var að gera á mínum pers- ónulega Snapchat aðgangi. Þar var fólk oft að biðja mig um uppskrift- ir og frekari leiðbeiningar á því sem ég var að gera og þá kvikn- aði þessi hugmynd, að opna að- gang bara fyrir þetta áhugamál. Ég ræddi það við Elísabet sem tók vel í hugmyndina og í október á síð- asta ári opnuðum við Matarlyst,“ útskýrir Ragnheiður. „Þannig að við erum bara nýlega byrjaðar.“ Fengu að blómstra í eldhúsinu Þegar Ragnheiður og Elísabet voru börn, en það eru átta ár á milli þeirra, fengu þær mikið frelsi í eld- húsinu og mamma þeirra var dug- leg að leyfa þeim að spreyta sig. „Við fengum alltaf að blómstra í eldhúsinu og mamma leyfði okkur að baka og elda, bæði með henni og sjálfar. Mér þykir rosalega dýr- mætt að hafa fengið þetta frelsi og ég held að það sé alltaf gott þeg- ar foreldrar sýna börnum þetta traust, að leyfa þeim að spreyta sig í eldhúsinu,“ segir Ragnheiður og Elísabet tekur undir. „Minn áhugi hefur meira verið á eldamennsku á meðan Elísabet bakar meira, enda er hún ótrúlega hæfileikaríkur bak- ari sem á alltaf kökur,“ segir Ragn- heiður brosandi og horfir á syst- ur sína. „Ég á fjögur börn og er í tveimur saumaklúbbum þannig að það eru alltaf tilefni til að baka,“ skýtur Elísabet þá inn í og bætir við að Ragnheiður eigi líka alltaf til köku. „Já, ég verð alltaf að eiga köku til að bjóða upp á.“ En þær segjast alveg ómögulegar ef þær eiga ekkert að bjóða gestum upp á annað en svart kaffi. „Ég fer al- veg í mínus ef ég á ekki köku til að bjóða gestum en á sama tíma finnst mér alls ekkert að því ef aðrir hafa ekkert nema kaffi til að bjóða upp á þegar ég kem í heimsókn. Ég held að þetta sé tengt því uppeldi sem við fengum, mamma átti alltaf eitthvað til að bjóða gestum,“ seg- ir Elísabet. Eru enn að finna taktinn Auk þess að vera snapparar eru þær systur báðar útivinnandi mæð- ur sem alltaf hafa nóg fyrir stafni. Ragnheiður vinnur hjá Starfsend- urhæfingu Vesturlands, er tveggja barna móðir og amma auk þess sem hún stundar líkamsrækt og hestamennsku af kappi. Elísabet er móðir fjögurra ungra barna og starfar í vaktavinnu á Hjúkrun- ar- og dvalarheimilinu Höfða. En eru samfélagsmiðlarnir ekki tíma- frekt áhugamál? „Jú, þetta er mik- il vinna og sérstaklega það sem við erum að gera því við erum ekki bara að blaðra eitthvað heldur að baka og elda og sýna frá því. Við höfðum enga hugmynd út í hvað við værum að fara áður en við byrj- uðum,“ segir Elísabet og hlær. „Að baka köku tekur kannski ekki svo langan tíma en þegar maður er að sýna frá hverju skrefi við bakstur- inn er maður alveg þrisvar sinn- um lengur að þessu. Okkur finnst við líka þurfa að vera duglegar að setja eitthvað inn reglulega og þá er rosalega gott að við séum tvær saman og getum skipst á. Við erum líka tiltölulega nýjar í þessu og erum enn að fikra okkur áfram og finna taktinn,“ segir Ragnheið- ur. „En þetta er mjög skemmti- legt og við erum bara rétt að byrja. Draumurinn er að setja upp blogg- síðu fyrir uppskriftirnar en við þurfum bara að drífa okkur í að út- færa það verkefni,“ segja þær. Skemmtilegt að finna viðbrögðin Er erfitt að opna heimili sitt og líf með þessum hætti og hleypa ókunnugu fólki svo nærri sér? „Ég er frekar opin og finnst þetta ekki erfitt,“ svarar Ragnheiður. Og Elísabet tekur undir. „Maður finn- ur lítið fyrir því að snappa það er ekki fyrr en eftir á að maður átt- ar sig á þeim fjölda áhorfa sem við erum að fá og undirtektum að þetta er aðeins stærra ævintýri en við töldum í fyrstu. Við höfum ekki mikið verið að sýna frá dagsdag- legu lífi en höfum fengið beiðnir um að gera meira af því. Við erum enn að þróa þennan miðil okk- ar og höfum ekki sett nein mörk ennþá og vitum í raun ekki hvar þau mörk koma til með að vera,“ segir Elísabet „Það er svo gaman að finna viðbrögðin og fá jákvæð skilaboð frá fólki allsstaðar af land- inu þar sem verið er að hrósa okk- ur, og þakka fyrir skemmtileg og lærdómsrík snöpp. Og það sem mestu máli skiptir er að við höf- um svo gaman að þessu,“ segja þær systur. „En svo sýni ég kannski eitthvað sem Elísabet myndi ekki sýna og öfugt,“ bætir Ragnheiður við. „Sem gerir þetta kannski enn fjölbreyttara,“ segja þær. Hittu fylgjanda í Amsterdam Það fylgir því ákveðin athygli að vera virkur á samfélagsmiðlum og segjast þær systur enn vera að venjast því. Þær segjast finna fyr- ir því að fólk þekki þær úti á götu þó þær hafi aldrei séð viðkomandi. „Fólki finnst það jafnvel þekkja okkur þó það hafi aldrei talað við okkur, en við tökum nú bara vel í það. Við erum kannski komin bara upp í rúm hjá þeim öll kvöld,“ seg- ir Ragnheiður og hlær. „Þá þeg- ar fólk er sko að horfa á okkur á Snapchat,“ bætir hún við og bros- ir. „Við finnum alveg að fólk horf- ir á okkur út um víðan völl og veit augljóslega hver við erum þó við höfum ekki hugmynd um hver þau eru. En þetta er bara skemmti- legt og angrar okkur ekkert,“ segja þær systur. „Við lentum nú líka í skemmtilegu atviki á flugvellin- um í Amsterdam núna á mánudag- inn [í síðustu viku, innsk. blaða- manns]. Við fórum í helgarferð og ætluðum að koma heim á sunnu- deginum og vorum búnar að sýna frá þessu öllu á Snapchat. Svo þeg- ar við vorum að pakka niður fyr- ir heimferð kom í ljós að við ætt- um ekki flug heim fyrr en á mánu- deginum og við deilum því auð- vitað með fylgjendum okkar. Dag- inn eftir á flugvellinum hittum við mann sem spurði okkur svo hvern- ig bónusdagurinn hefði verið. En hann hafði þá séð allt um þetta á Snapchat,“ segir Ragnheiður. „Við erum því farnar að finna fyrir því að fólk þekkir okkur ansi víða,“ bætir Elísabet við og hlær. Fjölskylduleyndarmálin öll á netið Eins og fram hefur komið deila þær systur ráðum og uppskrift- um úr eldhúsinu en þær hafa ýmis skemmtileg eldhúsleyndarmál sem þær ljóstra upp á samfélagsmiðl- um. „Við gefum upp allar okkar uppáhalds uppskriftir sem við höf- um sankað að okkur í gegnum tíð- ina,“ segja þær systur. „En annars hefur Ragnheiður aðallega ver- ið í því að búa uppskriftirnar til á meðan ég er meira í því að koma okkur á framfæri,“ segir Elísabet og hlær. „Mamma segir að öll fjöl- skylduleyndarmálin séu nú komin á netið,“ bætir Ragnheiður kímin við. „Við höfum alltaf haft gaman að því að prófa hluti en það er að- eins erfiðara núna því við erum að sýna frá því öllu í beinni á Snapc- hat og ef eitthvað misheppnast er það bara þannig,“ segir Ragnheið- ur. „En stundum þegar ég er að setja saman nýja uppskrift þá útbý ég hana nokkrum sinnum og fæ fólk til að smakka og meta. Og gef svo út uppskriftina að því loknu. Ég er smá fullkomnunarsinni,“ bæt- ir hún við. „Ég nenni því ekki og deili bara öllu strax í fyrstu tilraun og enn sem komið er hefur ekkert misheppnast,“ segir Elísabet. Djúpsteiktir kanilsnúðar Eitt af því sem þær hafa sýnt frá á samfélagsmiðlum sem hefur feng- ið mikla athygli er þegar Ragn- heiður var að djúpsteikja kanilsn- úða. „Ég er með smá djúpsteik- ingaræði og fannst þetta bara góð hugmynd. Þetta er líka mjög einfalt og svo ótrúlega gott,“ segir Ragn- heiður. Aðspurðar segjast þær hafa þetta hugmyndaflug í eldhúsinu frá mömmu þeirra. „Mamma var mjög nýmóðins í eldhúsinu og sem dæmi gerir hún bestu pizzu í heimi, botninn er steiktur á olíuborinni pönnu og á meðan er álegginu rað- að á pizzuna og að því loknu fer hún undir grillið í ofninum og bak- ast þar til gullinbrún að ofan. Þetta gerir pizzuna þær bestu í heimi,“ segir Ragnheiður. „Mamma var mikill snillingur í eldhúsinu og hún og pabbi voru alltaf dugleg að hrósa okkur. Ég held að það sé ástæðan fyrir því hversu óhræddar við erum að opna okkur og prófa nýja hluti,“ segja þær systur að endingu. Til þess að fylgjast með þeim systrum er hægt að finna þær á Fa- cebook og Instagram undir nafn- inu Matarlyst og á Snapchat undir nafninu Matar-lyst. Þær setja inn allar uppskriftir og ráð á Facebo- ok og Instagram en sýna frá öllu baksturs- eða eldamennskuferlinu á Snapchat. arg/ Ljósm. úr einkasafni Hugmyndaríkar systur með Matarlyst Systurnar Ragnheiður og Elísabet Stefánsdætur sýna frá því sem þær gera í eldhúsinu á Snapchat reikningnum Matar-lyst. Kræsingar í barnaafmæli. Glæsilegt veisluborð í boði þeirra systra.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.