Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 201930 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvaða fræga manneskju, lifandi eða látna, myndir þú helst vilja hitta? Spurni g vikunnar (Spurt á Akranesi) Sigurður Hannes Sigurðsson Jónas Hallgrímsson. Matthías Haukstein Ólafsson Muhammad Ali. Philippe Ricart Albert Einstein. Inga Björg Sigurðardóttir Tom Waits. Gestur Helgason Móðir Teresu. Félagar úr Keilufélagi Akraness gerðu gott mót á Íslandsmóti unglinga í keilu, sem haldið var helgina 9. og 10. febrúar síðast- liðna. Krakkarnir sneru heim með sjö verðlaun í heildina, þar af fjóra Íslandsmeistaratitla. Jóhann Ársæll Atlason fagn- aði Íslandsmeistaratitli í opnum flokki og hann hafnaði í öðru sæti í 1. flokki pilta. Sindri Már Ein- arsson varð þriðji í 3. flokki pilta, Sóley Líf Konráðsdóttir sigraði í 3. flokki stúlkna, Adda Steina Sig- þórsdóttir hafnaði í þriðja sæti í sama flokki, Matthías Leó Sig- urðsson sigraði í 4. flokki pilta og Særós Erla Jóhönnudóttir sótti verðlaun í 5. flokki stúlkna, en allir keppendur fá verðlaun í 5. flokki. „Allir keppendur stóðu sig vel. Oft á tíðum er keppnin ansi hörð og þá reynir á keppnisskapið. Mark- miðið er að hver og einn geri alltaf sitt besta miðað við sjálfan sig og svo kannski örlítið meira en það. Keppendur allra félaga sýndu af sér prúðmennsku og eru keiluí- þróttinni til sóma,“ segir í tilkynn- ingu á Facebook-síðu Keilufélags Akraness. kgk/ Ljósm. KLÍ. Keiluspilarar sóttu verðlaun á Íslandsmót unglinga Jóhann Ársæll Atlason sigraði í opnum flokki pilta. Sóley Líf Konráðsdóttir sigraði í 3. flokki stúlkna og Adda Steina Sigþórsdóttir hafnaði í þriðja sæti. Matthías Leó Sigurðsson varð Íslandsmeistari í 4. flokki pilta. Særós Erla Jóhönnudóttir sótti verðlaunapeninginn í 5. flokki stúlkna, en í 5. flokki er ekki keppt um titil heldur eru allir keppendur sigurvegarar. Fyrsta mót Íslandsmeistaramót- araðarinnar í grjótklifri var haldið á Smiðjuloftinu á Akranesi síðast- liðinn laugardag. Mótið var hald- ið af Klifurfélagi ÍA í samstarfi við Smiðjuloftið. Fyrr um morguninn klifruðu yngri flokkar ÍA, en hátt í 80 klifrar æfa klifur hjá Klifurfélagi ÍA og Smiðjuloftinu. Keppt var í flokki 12-13 ára á Ís- landsmeistaramótaröðinni Akra- nesi. Keppendur voru rúmlega 30 frá þremur félögum. „Hart var bar- ist um sæti á verðlaunapalli og stóðu Skagamenn sig mjög vel á heima- velli,“ segir í tilkynningu frá klifur- félaginu. Sylvía Þórðardóttir landaði gull- verðlaunum fyrir ÍA í stúlknaflokki. Hún klifraði allar leiðir í fyrstu til- raun og fékk fullt hús stiga, ásamt Ásthildi Elfu Þórisdóttur úr Hafn- arfirði sem gerði slíkt hið sama. Í þriðja sæti hafnaði Þórdís Nilsen frá Klifurfélagi Reykjavíkur. Í drengjaflokki sigraði Garðar Logi Björnsson frá KfR. Rétt á eftir hon- um í öðru sæti var Rúnar Sigurðsson frá ÍA og Elís Gíslason úr KfR hafn- aði í þriðja sæti. Ellert Kári Samú- elsson hafnaði í fjórða og Sverrir Elí Guðnason í því fimmta, en báðir keppa þeir fyrir ÍA. Eldri flokkarnir kepptu í Reykja- vík og þar klifruðu fyrir hönd ÍA þær Gyða Alexandersdóttir og Ragn- heiður Hjálmarsdóttir í flokki 14-15 ára og Brimrún Eir Óðinsdóttir, sem keppti í fyrsta sinn í fullorðins- flokki. „Stúlkurnar klifruðu vel en það dugði þó ekki til verðlauna að þessu sinni.“ Framundan hjá klifrurum ÍA er Bikarmeistaramót ÍSÍ í lok mars og áframhaldandi mótaröð þar sem næstu þrjú mót ráða úrslitum um það hver hreppir Íslandsmeistaratit- ilinn. kgk/ Ljósm. Klifurfélag ÍA. Keppt í grjótklifri á Akranesi Sylvía Þórðardóttir úr ÍA krækti í gullverðlaun í stúlkna- flokki. Rúnar Sigurðsson frá ÍA hafnaði í öðru sæti í drengjaflokki. Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Fjölni á útivelli, 89-65, þeg- ar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á mánudagskvöld. Heimamenn stjórnuðu leiknum frá því snemma í fyrsta leikhluta og unnu að lokum öruggan 24 stiga sigur. Snæfellingar skoruðu fyrstu stigin en voru ekki lengi í forystu. Heima- menn héldu Hólmurum stigalaus- um næstu sex mínúturnar og kom- ust á meðan í 13-3. Snæfellingar fundu sig engan veginn í upphafs- fjórðungnum og skoruðu aðeins sjö stig allan leikhlutann gegn 20 stig- um Fjölnis. Snæfellingar léku bet- ur í öðrum leikhluta en það gerðu heimamenn einnig. Fjölnir leiddi með 17 stigum í hálfleik, 47-30. Fjölnisliðið mætti ákveðið til leiks í síðari hálfleik en Snæfelling- ar áttu erfitt uppdráttar. Hólmarar skoruðu ellefu stig gegn 21 í þriðja leikhluta og staðan orðin 68-41 fyrir lokafjórðunginn. Snæfelling- ar löguðu stöðuna lítið eitt í loka- fjórðungnum en máttu að lokum sætta sig við 24 stiga tap, 89-65. Ísak Örn Baldursson skoraði ellefu stig og tók sex fráköst í liði Snæfells. Darrel Flake var með ell- efu stig og fimm fráköst og Sæþór Sumarliðason skoraði tíu stig. Róbert Sigurðsson var atkvæða- mestur í liði Fjölnis með 20 stig og fimm fráköst, Rafn Kristján Krist- jánsson var með 15 stig og sjö frá- köst, Egill Arnar Októsson skor- aði tólf stig og tók fimm fráköst og Andrés Kristleifsson skoraði ellefu stig. Snæfell hefur tvö stig á botni deildar- innar eftir 17 leiki, jafn mörg og Sindri í sætinu fyrir ofan en Hólmarar eiga leik til góða. Næst leika þeir gegn Hamri föstudag- inn 22. febrúar næst- komandi. Sá leikur fer fram í Stykkishólmi. kgk Tap gegn Fjölni Snæfellingar fundu ekki taktinn gegn Fjölni á mánudagskvöld. Ljósm. úr safni/ sá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.