Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2019 11 KONUDAGURINN SK ES SU H O R N 2 01 9 15% afsláttur af öllum dömu ilm- og snyrtivörum Gildir fimmtudag, föstudag og laugardag SK ES SU H O R N 2 01 9 Bæjarstjórnarfundur 1288. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar- þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, • mánudaginn 25. febrúar kl. 20:00. Framsókn og frjálsir í Stúkuhúsinu, • mánudaginn 25. febrúar kl. 20:00. Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, • laugardaginn 23. febrúar kl. 10:30. • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Nýtt náms- og stuðningsver var opnað í Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi í janúar. Námsver- ið er hluti af verkefni sem styrkt var af mennta- og menningarmálaráðu- neytinu í þeim tilgangi að sporna við brotthvarfi úr námi. Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við skólann, á hug- myndina að námsverinu og hefur hún séð um að koma því á laggirnar. „Í mínu starfi er maður alltaf að leita leiða til að bæta þjónustuna og gera meira fyrir nemendur og námsverið er hluti af því,“ segir Guðrún þegar Skessuhorn ræddi við hana og Írisi Björgu Jónsdóttur, skóla- og geð- hjúkrunarfræðing, um stuðnings- þjónustu nemenda við FVA. Guðrún og Íris vinna náið sam- an að því að aðstoða nemendur við ýmis mál sem kunna að koma upp hjá þeim bæði hvað varðar nám eða í persónulegu lífi. Íris sér um al- mennan stuðning fyrir nemendur með kvíða, þunglyndi eða annan heilsufarsvanda auk þess sem hún er tengiliður nemenda við heilsu- gæslustöðina. Íris starfar hjá Heil- brigðisþjónustu Vesturlands á Akra- nesi og er með viðveru í FVA eftir hádegi alla þriðjudaga og fimmtu- daga. „Þá geta nemendur leitað til mín hingað og ég aðstoðað þá, bæði hvað varðar andleg vandamál og líkamleg eins og veikindi eða meiðsli,“ útskýrir Íris. „Mín þjón- usta gæti reynst sérstaklega vel fyrir nemendur sem búa á heimavistinni og hafa ekki foreldri til að leita til með læknisaðstoð. Ég get þá að- stoðað nemendur og vísað þeim áfram til læknis ef þörf er á,“ segir Íris og Guðrún bætir því við að þær séu einnig báðar tilvísunaraðilar til sálfræðings sem starfar hjá HVE á Akranesi ef nemendur þurfi á að- stoð sálfræðings að halda. Vill gera enn meira fyrir nemendur Markmið náms- og stuðningsvers- ins er að auka þjónustu við nemend- ur og veita þeim meiri stuðning við námið. Þangað geta nemendur farið bæði til að finna næði til heimanáms og til að fá aðstoð kennara. Tvisvar í viku verða kennarar í námsverinu í klukkutíma í senn að aðstoða nem- endur, stærðfræðikennari, ensku- kennari og íslenskukennari. „Á öðr- um tímum verður ekki starfsmaður á svæðinu en nemendur geta alltaf leitað til mín eftir aðstoð. Það er mín von að geta aukið þjónustuna með tímanum og þá hafa námsverið opið allan daginn alla daga og að þar verði alltaf starfsmaður innan handar fyr- ir nemendur. Tíminn verður þó að leiða í ljós hvort það verði að veru- leika,“ segir Guðrún en bætir því við að hún sé bjartsýn fyrir framhaldinu. Aðstaðan í námsverinu er mjög góð en þar er tafla, borð, stólar, hæginda- stólar, lampi og teppi. „Nemendur geta farið þangað og fengið næði til að læra, hvort sem það er að vinna verkefni eða hafa það notalegt undir teppi að lesa kjörbók. Það eru þegar nokkrir nemendur farnir að nýta sér þjónustuna og við Íris erum dugleg- ar að hvetja fleiri til þess. En það er enn stutt síðan námsverið var opn- að og ég bind vonir við að sjá fleiri nemendur þar með tímanum,“ seg- ir Guðrún. „Við trúum því að með auknum stuðningi og aðstoð við nemendur til að takast á við nám- ið geti bætt námsárangur og virkni auk þess sem brottfall minnki,“ segir Guðrún og Íris tekur undir. Námsverið er opið frá kl. 13:05-15:55 mánudaga og föstu- daga, frá kl. 9:40-12:30 þriðjudaga og fimmtudaga og allan daginn á miðvikudögum. Á miðvikudög- um frá klukkan 14:55-15:55 verða stærðfræðikennari og íslenskukenn- ari á staðnum með námsaðstoð og á fimmtudögum frá kl. 9:40-10:40 er enskukennari með viðveru. arg Verið, náms- og stuðningsver, opnað í FVA Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, og Íris Björg Jóns- dóttir, skóla- og geðhjúkrunarfræðingur, við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þær eru nemendum innan handar sem þurfa aðstoð. Guðrún hefur nú opnað náms- og stuðningsver til að auka þjónustu við nemendur. Verið, náms- og stuðningsver, er vel búið með borðum, stólum, töflu, hægindastólum, lampa og teppum. Nemendur ættu því að geta komið sér vel þar fyrir við heimalærdóm. www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.