Skessuhorn


Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 20.02.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 201914 Rótarýdagurinn verður sem fyrr haldinn hátíðlegur laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Dagur- inn er á alþjóðavísu nýttur til að vekja athygli á starfi hreyfingar- innar og verkefnum sem hún beit- ir sér fyrir. Þórir Páll Guðjónsson er forseti Rótarýklubbs Borgarness. Klúbburinn býður íbúum og öll- um áhugasömum á kynningarfund næstkomandi laugardag á Hót- el Borgarnesi. Þar mun fjölmiðla- konan Sigríður Arnardóttir flytja erindi sem nefnist „Laðaðu til þín það góða,“ þar sem hún fjallar um samskiptatækni og hvernig halda má í orku og jákvæðni jafnvel einnig þegar á móti blæs. Á góðri leið með að útrýma lömunarveiki Meðal helstu verkefna Rótaryhreyf- ingarinnar á heimsvísu er Polioplus sem hún hefur staðið fyrir allt frá 1984. „Eftir 35 ára þrotlaust starf er Rótaryfólk nú langt komið að út- rýma lömunarveiki. Veikin finnst nú einungis í tveimur eða þremur lönd- um, en var áður en átakið hófst út- breiddur og skæður sjúkdómur víða um lönd,“ segir Þórir Páll. Félags- menn sinna ekki sölustarfi af neinu tagi, en leggja gjald í Rótarýsjóð, sem fjármagnar meðal annars Pol- arplus verkefnið. Þórir Páll segir að markmið Rótarýdagsins næstkom- andi laugardag sé einnig að kynna það starf sem Rótarýklúbbur Borg- arness stendur fyrir, vekja athygli á skemmtilegum félagsskap og laða til sín nýja félaga. „Klúbbar eins og okkar þurfa stöðugt að vera að end- urnýja sig. Við reyndar búum vel, erum með 26 starfandi félaga, en viljum gjarnan fjölga í hópnum,“ segir Þórir Páll. Margt borið á góma Rótarýklubbur Borganess var stofn- aður 1952 og hefur síðan starfað með blóma. „Í gegnum tíðina hafa nokkur verkefni verið áberandi hjá okkur. Til dæmis komum við upp- haflega að ritun Sögu Borgarness, höfum sinnt gróðursetningu, lagt göngustíga meðal annars við Borg á Mýrum og sinnt starfsfræðslu fyr- ir grunnskólanemendur í 10. bekk grunnskólanna í héraðinu. Síðast- talda verkefnið hefur raunar verið óslitið í 26 ár og ekkert lát á því. Við höfum þannig stutt við það að nem- endur kynnist starfandi fyrirtækj- um í héraði og oft hefur slík vett- vangsferð kveikt áhuga ungs fólks á að starfa í viðkomandi grein,“ segir Þórir Páll. Á fundum Rótarýklúbbs Borgar- ness er ætíð meginþema þar sem mál eru kynnt. „Það hafa mörg mál- efni borið á góma á fundum okkar í gegnum tíðina. Til dæmis má nefna að fyrst var imprað á brú yfir Borg- arfjörð og gerð friðlands í Einkunn- um á fundum Rótarýklúbbs Borg- arness, svo ég taki dæmi. Það ein- kennir félagsskap okkar að í klúbbn- um er fólk úr ýmsum starfsgreinum. Það eykur breiddina og gerir starf- ið skemmtilegra. Á öllum fundum okkar er meginþema. Til marks um ólík umræðuefni höfum við ný- lega fengið til okkar Vilborgu pólf- ara, rætt var um líffæragjafir á opn- um fundi, nytjaskógrækt var kynnt, Vatnajökulsþjóðgarður, Rússland og áfram mætti telja.“ Engin leyndarmál Þórir Páll segir að klúbburinn hafi í gegnum tíðina beitt sér fyrir afmörk- uðum söfnunarverkefnum og nefnir Lucas hjartahnoðtæki í sjúkraflutn- ingabíla sem dæmi. „Við viljum ætíð leggja góðum málefnum í samfé- laginu lið. Kjörorð okkar hreyfing- ar er; „Þjónusta ofar eigin hag,“ það er að þjóna öðrum án þess að hugsa um eigin hag. Þannig er hugsun- in á bakvið Rótarýklúbbinn fyrst og fremst velvild gagnvart samfélaginu. Hjá okkur eru heldur engin leynd- armál, við bjóðum gesti velkomna á fundi okkar og leggjum okkur fram um að fá áhugverða fyrirles- ara hverju sinni til að gera fundina í senn skemmtilega og fræðandi. „Ég vil að endingu hvetja sem flesta til að mæta á fundinn okkar næstkomandi laugardag klukkan 14 á Hótel Borg- arnesi, hlýða á fræðandi erindi Sir- rýjar og þiggja kaffiveitingar,“ segir Þórir Páll Guðjónsson að endingu. mm Íbúum boðið til kynningarfundar á Rótarýdeginum Áfundinum næstkomandi laugardag mun Sigríður Arnardóttir fjölmiðlakona fjalla um hvernig fólk getur laðað til sín það góða. Þórir Páll Guðjónsson er forseti Rótarýklúbbs Borgarness. „Frekari rannsókn á örverumeng- un hjá Ópal Sjáv- arfangi í Hafn- arfirði gefur til- efni til að ætla að ekki hafi tekist að uppræta listeríu- mengun í fyrir- tækinu og að fleiri afurðir kunni að vera mengaðar af bakteríunni,“ seg- ir í tilkynningu sem Matvæla- stofnun sendi frá sér í síðustu viku. Fyrirtækið hefur ákveðið að inn- kalla allar reykt- ar afurðir þess úr verslunum, í sam- ráði við Matvæla- stofnun. Ópal Sjávar- fang hefur jafn- framt stöðvað alla framleiðslu og dreifingu á með- an unnið er að úrbótum, undir eftirliti Matvæla- stofnunar. „Inn- köllunin nær til allra lotunúmera á reyktum afurð- um (birkireyktum, hangireyktum og heitreyktum) frá Ópal Sjávar- fangi sem eru á markaði (síðustu notkunardagar í janúar, febrúar og mars). Átt er við allan kaldreyktan lax, heitreyktan lax, reykta fjalla- bleikju, reyktan makríl og síld: bita, hálfflök, flök, kubba, hnakka, sneiðar, áleggslax, laxakurl. Dreifingaraðilar hafa verið versl- anir 10-11, verslanir Hagkaupa, verslanir Nettó, verslanir Kjörbúð- arinnar, verslanir Krambúðarinnar, Melabúðin, verslanir Iceland og verslunin Kvosin. Fólk sem e.t.v. á vörur frá fyrirtækinu í frysti er bent á að sama gildir um hana, ekki er ráðlagt að neyta þeirra og ætti að skila til framleiðanda og fá endur- greitt. mm Starfsemi stöðvuð og frekari innkallanir vegna listeríu „Umhverfisvaktin við Hvalfjörð skorar á Umhverfisstofnun sem starfsleyfisgjafa og eftirlitsstofn- un og Faxaflóahafnir sem eiganda Grundartanga, að halda skaðsemi vegna stóriðju á Grundartanga í al- gjöru lágmarki með auknu eftirliti og grunnrannsóknum á áhrifum eiturefna á umhverfið. Loftgæða- mælingar vegna flúors og brenni- steins eru í skötulíki og útsleppi í stórum stíl frá Elkem Ísland er leikur að heilsu manna og dýra. Þar sem mengunartopparnir valda mestum skaða er engin afsökun að útsleppið kunni að rúmast innan leyfilegs ársútsleppis,“ segir í álykt- un sem Umhverfisvaktin við Hval- fjörð samþykkti á aðalfundi sínum 9. febrúar síðastliðinn. „Fundurinn skorar á Umhverfis- stofnun að taka nú þegar upp mæl- ingar á mengandi efnum sem stafa frá stóriðjunni á Grundartanga og geta skilað sér inn í matvæli frá landbúnaði á svæðinu. Ágiskanir eru ekki boðlegar og áreiðanleg- ar niðurstöður verða ekki til nema með endurteknum vísindaleg- um mælingum. Umhverfisvaktin minnir á mengunarslys hjá Norð- uráli sumarið 2006 en það haust mældist flúor í kjálkum lamba margfalt meiri en haustið 2005. Af- urðir lambanna fóru á markað án nokkurra eiturefnamælinga. Iðju- verin sem sjá sjálf um umhverfis- vöktunina birtu niðurstöður flúor- mælinganna í apríl næsta ár. Þann- ig er staðan enn. Sé minnsti grunur um óæskileg efni í mætvælum eiga bændur og neytendur rétt á upp- lýsingum tafarlaust.“ Þá skorar fundur Umhverfis- vaktarinnar á Umhverfisstofn- un að birta allar niðurstöður um- hverfisvöktunar vegna iðjuver- anna á Grundartanga rafrænt jafn- óðum og þær verða til á vef Um- hverfisstofnunar, sveitarfélaganna við Hvalfjörð, Faxaflóahafna og Reykjavíkurborgar. Kynningar- fundir sem fari fram einu sinni á ári, til að kynna gamlar niðurstöð- ur umhverfisvöktunar, séu úreltir og ómarkvissir. „Fundurinn bendir á þá óhugnanlegu staðreynd að ár eftir ár er verið er að vakta mæli- þætti sem engin viðmiðunargildi eru til um í íslenskum reglugerð- um og starfsleyfum. Þetta á t.d. við um flúor í kjálkum sauðfjár. Fund- urinn fer eindregið fram á að Um- hverfisstofnun komi fyrir loftgæða- mælistöð vegna flúors og brenni- steins norð-vestan við iðjuverin á Grundartanga, utan þynningar- svæða, vegna Berjadalsár sem er vatnsból Akraneskaupstaðar. Loft- gæðamælistöð sunnan Hvalfjarðar verði einnig ávallt í notkun, en það er hún ekki nú,“ segir að endingu í ályktun stjórnar Umhverfisvaktar- innar við Hvafljörð. mm Umhverfisvaktin vill bæta mengunar- mælingar við stóriðjuna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.