Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 20192
Hæsta fjárveiting innan vestursvæð-
is er vegna Dýrafjarðarganga, sam-
tals 7,2 milljarðar á þessu ári og því
næsta.
Næstmestu fé verður varið til
vegagerðar um Gufudalssveit, eða
samtals 6,7 milljörðum á fjögurra
ára tímabili. Fjárveitingin nemur
100 milljónum í ár, 1,5 milljörð-
um á næsta ári, 2,7 milljörðum árið
2021, 1,8 milljörðum árið 2022 og
600 milljónum árið 2023.
Gert er ráð fyrir 250 milljóna
króna framlagi til vegagerðar um
Fróðárheiði á þessu ári og 300 millj-
ónum í Heiðarsporð (Biskupsbeygju
á Holtavörðuheiði) árið 2021.
Að lokum er gert ráð fyrir 200
milljóna króna fjárveitingu vegna
Akranesvegar um Faxabraut á Akra-
nesi, vegna sjóvarna og hækkunar
vegarins; 100 milljónir í ár og 100
milljónir árið 2020.
Þá má geta þess að gert er ráð fyrir
samtals 3,2 milljörðum króna vegna
þjóðvegar 1 um Kjalarnes næstu
fjögur árin. Fjárveiting ársins 2019
er 200 milljónir, 200 milljónir einn-
ig árið 2020, 1,64 milljarðar árið
2021 og 1,16 milljarðar 2022. Tvö-
földun Hvalfjarðargangna er ófjár-
mögnuð í vegaáætlun, en þess getið
sérstaklega að leitað verði leiða til
að fjármagna tvöföldun ganganna í
samstarfi við einkaaðila.
Töluverðar fram-
kvæmdir við hafnir
Gert er ráð fyrir rétt tæplega fimm
milljarða fjárveitingu Hafnabóta-
sjóðs á vestursvæði í samgönguáætl-
un ársins 2019-2023.
Fjárveiting vegna framkvæmda
við Ólafsvíkurhöfn nemur sam-
tals 298,8 milljónum. Þar ber hæst
fjárveiting vegna endurbygging-
ar Norðurtanga sem nemur sam-
tals 187,9 milljónum árin á öðru,
þriðja og fjórða ári áætlunarinnar;
24,8 milljónir árið 2020, 75,8 millj-
ónir árið 2021 og 87,3 milljónir árið
2022.
Fjárveiting vegna lengingar
Norðurgarðs nemur 72,3 milljón-
um árið 2019 og 5,8 milljónum árið
2020. Þá er gert ráð fyrir 21,3 millj-
ónum til að dýpka innsiglinguna
árið 2021 og 11,6 milljónum til að
stækka trébryggju og bæta löndun-
araðstöðu árið 2023.
Fjárveitingar til Grundarfjarð-
arhafnar nema 293,7 milljónum
samtals, þar af 255 milljónir vegna
lengingar Norðurgarðs. Vegna stál-
þils, þekju og lagna við lengingu
Norðurgarðs er gert ráð fyrir 81,8
milljónum árið 2019, 78,7 milljón-
um 2020 og 66,2 milljónum 2021.
Fjárveiting til brimvarnar vegna
lengingu Norðurgarðs nemur 18,9
milljónum á þessu ári og 9,4 millj-
ónum á því næsta. Að lokum er gert
ráð fyrir 38,7 milljónum til endur-
byggingar steyptrar kerjabryggju
Norðurgarðs árið 2023 og 4,1 millj-
ón til viðhaldsdýpkana á hafnarinn-
ar árið 2019.
Samgönguáætlun gerir ráð fyrir
32,9 milljóna fjárveitingu úr hafna-
bótasjóði til framkvæmda við Stykk-
ishólmshöfn. Árið 2021 stendur til
að verja 11,1 milljón í framkvæmd-
ir við smábátaaðstöðuna og 21,8
milljónum í hafnskipabryggjuna
árið 2023.
Ólafsvíkurhöfn, Grundarfjarðar-
höfn og Stykkishólmshöfn eru all-
ar innan grunnnetsins. Þegar kem-
ur að framkvæmdum við hafnir
utan grunnnets verður veitt sam-
tals 210,5 milljónum til endurbygg-
ingar stálþilsbryggju Reykhólahafn-
ar; 53,7 milljónum árið 2021, 91,5
milljónum árið 2022 og 65,3 millj-
ónum árið 2023.
Fjárveiting til sjóvarna
Á Akranesi er gert ráð fyrir að sam-
tals 37,5 milljónum króna verði var-
ið til sjóvarna á tímabili samgön-
guáætlunar. Fjárveiting vegna styrk-
ingar og hækkunar sjóvarnar á Breið
er 22 milljónir árið 2019. Lenging á
bakkavörn í Höfðavík (Miðvogi) fær
5,9 milljóna fjárveitingu 2021. Sama
ár er veitt 2,8 milljónum til lenging-
ar sjóvarnar Leynis og 6,8 milljón-
um til sjóvarnar á Sólmundarhöfða
vestanverðum.
Gert er ráð fyrir 22,6 milljóna
fjárveitingu til sjóvarna í Snæfellsbæ
í samgönguáætlun. Árið 2022 verður
9 milljónum veitt til sjóvarna vestan
við Gufuskála og 13,6 milljónum
verður veitt til sjóvarna í Staðarsveit,
við Barðastaði, einnig árið 2022.
Í Dalabyggð verður 10,2 millj-
ónum varið til að styrkja sjóvörn
við Ægisbraut í Búðardal. Kemur sú
fjárveiting til á árinu 2019.
Í Hvalfjarðarsveit verður 12,7
milljónum varið í sjóvörn við Belgs-
holt árið 2023.
kgk
Á morgun er Valentínusardagurinn sem
hefur undanfarin ár verið að ryðja sér til
rúms hér á landi. Það væri því vert að nýta
tækifærið til að gera vel við þann sem
maður elskar mest. Ýmsir viðburðir verða
einnig á Vesturlandi á næstu dögum og
má þar nefna dansbyltinguna Milljarður
rís í Grundarfirði á morgun þar sem dans-
að verður gegn kynbundnu ofbeldi. Þá
verður leikritið Leitin frumsýnt í Bíóhöll-
inni Akranesi á föstudaginn. Fyrir upplýs-
ingar um fleiri viðburði er bent á að lesa
hvað verður á döfinni hér aftar í blaðinu
og á vef Skessuhorns.
Á fimmtudag og föstudag er spáð suð-
vestlægri átt 5-13 m/s og víða él en lengst
af þurrt og bjart á norðanverðu landinu.
Frost 0-6 stig en hiti 0-4 stig syðst á land-
inu. Á laugardag má gera ráð fyrir hægri
vaxandi austlægri átt og lengst af björtu
veðri en hvassviðri og slydda eða snjó-
koma á sunnanverðu landinu um kvöldið.
Hægari vindur og úrkomulítið á Norður-
landi og hiti breytist lítið. Á sunnudag er
spáð austan- og norðaustanátt og snjó-
komu á Norður- og Austurlandi en annars
verður þurrt að mestu, hiti um frostmark,
en vægt frost inn til landsins. Á mánu-
dag er útlit fyrir norðlæga átt. Él um land-
ið Norðanvert en annars úrkomulítið og
frost 2-10 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
hvaða sjónvarpsstöð lesendur horfa mest
á. Ríflega helmingur svarenda, eða 54%
sögðust mest horfa á RUV. 13% horfa
mest á erlendar eða aðrar stöðvar, 11% á
Sjónvarp Símans, 10% á Stöð2, 5% á N4
en 4% svarenda sögðust ekki horfa á sjón-
varp. 3% horfa mest á Hringbraut, 1% á Al-
þingi og einn svaranda sagðist mest horfa
á Bíórásina.
Í næstu viku er spurt:
Freistast þú stundum til að nota snjall-
tæki þegar þú ert að keyra?
Margrét Björk Björnsdóttir ferðamála-
fræðingur í Böðvarsholti hefur undanfar-
ið stýrt verkefni um stefnumótun í ferð-
arþjónustu á Vesturlandi. Lesa má um
Áfangastaðaáætlun í viðtali við hana í
Skessuhorni í dag. Maggý er Vestlending-
ur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Árekstur í
göngunum
HVALFJ: Árekstur tveggja bíla
varð í norðanverðum Hval-
fjarðargöngum á tíunda tím-
anum í gærmorgun. Talsverð-
ur viðbúnaður var vegna slyss-
ins og var göngunum lokað fyr-
ir umferð í um þrjá tíma meðan
aðgerðir á vettvangi og hreins-
unarstarf stóð yfir. Slysið varð
með þeim hætti að annar bíll-
inn var kyrrstæður og var öku-
maður hans fyrir framan bílinn
þegar ekið var aftan á bíl hans,
sem kastaðist á hann. Ökumenn
beggja bíla voru fluttir á sjúkra-
hús en þeir eru ekki taldir al-
varlega slasaðir. Betur fór því
en á horfðist, að sögn lögreglu.
Þá lak olía úr bílunum og tók
nokkurn tíma að hreinsa hana
upp ásamt braki úr þeim áður
en hægt var að hleypa umferð
um göngin að nýju. Viðbragðs-
aðilar komu bæði af höfuðborg-
arsvæðinu og frá Akranesi vegna
slyssins. -mm
42 kaupsamningar
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 42 samningum um
húsnæði þinglýst í janúar. Þar
af voru 15 samningar um eign-
ir í fjölbýli, 14 samningar um
eignir í sérbýli og 13 samn-
ingar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 1.281 millj-
ón króna í þessum viðskiptum
og meðalupphæð á samning
30,5 milljónir króna. Af þess-
um 42 voru 24 samningar um
eignir á Akranesi. Þar af voru
13 samningar um eignir í fjöl-
býli, átta samningar um eignir
í sérbýli og þrír samningar um
annars konar eignir. Heildar-
veltan var 876 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
36,5 milljónir króna. -mm
Útskrift á
laugardaginn
BIFRÖST: Laugardaginn 23.
febrúar næstkomandi kl. 13:00
verður brautskráning frá Há-
skólanum á Bifröst. Alls munu
um 80 nemendur útskrifast úr
grunnnámi og meistaranámi
ásamt Háskólagátt og símennt-
un. Vilhjálmur Egilsson rektor
skólans mun útskrifa nemendur
ásamt sviðsstjórum. Tónlistar-
atriði í athöfninni verða í hönd-
um Karlakórsins Söngbræðra
ásamt undirleikurum. Boðið
verður upp á móttöku að athöfn
lokinni.
-fréttatilkynning
Grunsamlegar
mannaferðir
BORGARNES: Um kvöld-
matarleytið þriðjudaginn 5.
febrúar síðastliðinn var Lög-
reglunni á Vesturlandi tilkynnt
um grunsamlegar mannaferð-
ir í Borgarnesi. Maður varð
var við fótspor í snjónum þar
sem sást að einhver hafði geng-
ið að húsi og kíkt á gluggana.
Lögregla vill hvetja fólk til að
hafa auga með nágrenni sínu
og láta vita ef það verður vart
við grunsamlegar mannaferðir
í görðum og kringum hús hjá
öðru fólki.
-kgk
Þingsályktunartillaga um sam-
gönguáætlun 2019-2023 var sam-
þykkt á Alþingi á fimmtudag með
38 atkvæðum. Enginn þingmað-
ur greiddi atkvæði gegn tillögunni
en 18 sátu hjá. Sjö voru fjarverandi
við atkvæðagreiðsluna. Í áætlun-
inni eru lagðar til nýjar leiðir til að
fjármagna vegakerfið, meðal ann-
ars gert ráð fyrir því að nýjar vega-
framkvæmdir verði fjármagnað-
ar með veggjöldum. Mikil umræða
skapaðist um samgönguáætlunina í
þinginu. Snerist umræðan einkum
um veggjöld.
Hér á eftir fer samantekt um
helstu fjárveitingar til framkvæmda á
starfssvæði Skessuhorns, bæði vega-
og hafnaframkvæmdir en einnig sjó-
varnir.
Fróðárheiði kláruð
Samkvæmt áætluninni verður sam-
tals um 18 milljörðum varið til ný-
framkvæmda á vegum á vestursvæði
árin 2019 til 2023; 4,99 milljörðum
árið 2019, 5,65 árið 2020, 3,44 millj-
örðum árið 2021, 2,35 milljörð-
um 2022 og 1,45 milljörðum 2023.
Átján milljarðar til vegagerðar á vestursvæði
- Töluverðar hafnarframkvæmdir á dagskrá á Vesturlandi
Frá Grundarfjarðarhöfn. Gert er ráð fyrir fjárveitingu sem nemur samtals 293,7 milljónum til framkvæmda á tímabili sam-
gönguáætlunar. Ljósm. úr safni/ tfk.
Gert er ráð fyrir 250 milljónum króna til vegagerðar á Fróðárheiði árið 2019 í samgönguáætlun. Á meðfylgjandi mynd má sjá
framkvæmdir við næstsíðasta áfanga heiðarinnar fyrir tíu árum síðan. Ljósm. úr safni/ mm.