Skessuhorn - 13.02.2019, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 20196
Húsbíll út af í
hávaðaroki
HVALFJ.SV: Ótrúlegt um-
ferðaróhapp varð um átta-
leytið á föstudagskvöld. Þá
fauk húsbíll út af Vesturlands-
vegi við Skipanes í Hvalfjarð-
arsveit. Virðist sem vindhviða
hafi feykt bílnum út af vegin-
um og yfir skurð þar sem bíll-
inn staðnæmdist. Í dagbók lög-
reglu er bókað sérstaklega að
mjög slæmt veður hafi verið á
svæðinu þegar óhappið varð.
Til marks um það var ekki
hægt að draga bílinn upp vegna
veðurs. Tveir erlendir ferða-
menn voru á ferð í húsbílnum
og virðast þeir ekki hafa gert
sér grein fyrir veðri né vindum.
Þeir voru fluttir með sjúkra-
bíl til skoðunar á HVE á Akra-
nesi en virðast hafa sloppið að
mestu ómeiddir. -kgk
Hálkan varasöm
VESTURLAND: Það eru
ekki aðeins ökumenn sem tíð-
arfarið hefur áhrif á. Nokkr-
um sinnum var haft samband
við Lögregluna á Vesturlandi
vegna slysa og óhappa þar sem
gangandi vegfarendur hrösuðu
í hálkunni. Eitt alvarlegt hálku-
slys var bókað í Borgarnesi í
vikunni sem leið. Manneskja
á göngu datt illa með þeim af-
leiðingum að hún handlegg-
brotnaði, rifbeinsbrotnaði og
hlaut áverka á andliti. Lögregla
vill hvetja vegfarendur, gang-
andi sem akandi, til að fara var-
lega í hálkunni því hún get-
ur verið mjög varasöm. Gang-
andi vegfarandi hrasaði í hálku
á Akranesi kl. 22 á laugardags-
kvöld og var fluttur með sjúkra-
bíl til skoðunar hjá lækni.
-kgk
Fastir ferðamenn
GRUNDARFJ: Lögreglan
fékk fjölmargar tilkynningar
um ferðamenn sem höfðu fest
bíla sína í vikunni sem leið. Síð-
degis miðvikudaginn 6. febrúar
sátu til að mynda tíu manns í
þremur bílum fastir á Snæfells-
nesvegi á sama tíma. Þá segir
lögegla að vandræði við Kirkju-
fell séu orðin sagan endalausa.
Nefnir lögregla sem dæmi að
miðvikudaginn 6. janúar hafi
öll bílastæði verið troðfull og
fólk úti um allt að reyna að ná
myndum af norðurljósunum.
Skapar það vitaskuld töluverða
hættu fyrir fólkið sjálft sem og
aðra vegfarendur. -kgk
Fjúkandi plötur
AKRANES: Lögreglunni á
Vesturlandi bárust tvær til-
kynningar um plötur að fjúka í
gærmorgun, þriðjudaginn 12.
febrúar. Kl. 9:30 var tilkynnt
um þakplötur að fjúka við ný-
byggingu við Akralund á Akra-
nesi. Hálftíma síðar var til-
kynnt um járnplötur að fjúka
við Sólmundarhöfða, en íbúar
voru búnir að tryggja plöturnar
þegar lögregla kom á staðinn.
-kgk
Óhöpp vegna
veðurs og vinda
VESTURALAND: Enn eina
vikuna setur tíðarfarið sterkan
svip á dagbók Lögreglunnar á
Vesturlandi. Síðdegis mánudag-
inn 4. febrúar fóru þrír bílar út
af Vesturlandsvegi við Hafnar-
skóg með stuttu millibili, vegna
hálku. Aftanákeyrsla var í Hval-
fjarðargöngum sama dag, en um
minniháttar óhapp var að ræða.
Á miðvikudagskvöld, 6. febrú-
ar, varð umferðarslys á Snæ-
fellsnesvegi við Erlulund. Öku-
maður missti stjórn á bíl sínum
með þeim afleiðingum að hann
valt tvær veltur og ökumaður
slasaðist á hendi. Á laugardag-
inn varð bílvelta í Dölum. Öku-
maður sem ók um Vestfjarða-
veg fékk vindhviðu á bílinn sem
feykti honum út af veginum þar
sem bíllinn endaði á toppnum.
Ökumaðurinn var fluttur með
sjúkrabíl á heilsugæslustöð-
ina í Búðardal. Björgunarsveit-
armenn frá Lífsbjörgu í Snæ-
fellsbæ aðstoðuðu unga menn
á tveimur bílum aðfaranótt 9.
febrúar. Þeir voru staddir til
móts við Langavatn í Staðar-
sveit, komust ekki áfram vegna
veðurs og voru orðnir blautir og
kaldir. Því var ákveðið að hafa
samband við björgunarsveit-
ina sem kom mönnunum til að-
stoðar.
-kgk
Hrossastóð á
veginum
BORGARFJ: Tilkynnt var um
hrossastóð á Þverárhlíðarvegi
kl. 11 að morgni síðasta mið-
vikudag. Er það sama saga og
verið hefur, hrossin hafa slopp-
ið yfir girðingar í snjónum. Vill
lögregla benda vegfarendum á
að hafa varann á, því hross geti
sloppið úr girðingum sínum
þegar tíðarfarið er eins og verið
hefur undanfarnar vikur. Jafn-
framt vill lögregla biðja bændur
að hafa auga með hrossum sín-
um. -kgk
Kvenfélagið 19. júní í Borgarfirði
kom færandi hendi í liðinni viku og
afhenti Brákarhlíð í Borgarnesi að
gjöf fjölþjálfa, æfingatæki sem nýt-
ast mun íbúum. Við sama tækifæri
buðu kvenfélagskonur upp á glæs-
legt kökuhlaðborð og flott söng-
atriði í flutningi þeirra Kristjáns
Karls Hallgrímssonar og Snorra
Hjálmarssonar. „Við á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Brákarhlíð fær-
um kvenfélagskonum kærar þakkir
fyrir höfðinglega gjöf, veisluföng
og skemmtun,“ segir Björn Bjarki
Þorsteinsson framkvæmdastjóri.
mm
Færðu
Brákarhlíð
fjölþjálfa
að gjöf
Um liðna helgi voru alls sex útköll á
dráttarbíl í Dölum og tengdust þau
öll veðri og færð en mjög slæmt
skyggni var frá föstudagskvöldi og
fram á laugardag samhliða hálku. Í
þremur tilfellum var um útafakst-
ur að ræða sökum snjóblindu og
slæmrar færðar. Ein bílvelta varð
rétt við Fellsenda sem rakin er til
hálku og hvassviðris. Tveir árekstr-
ar urðu, annar þegar bíll lenti á brú-
arhandriði í Laxárdal og hinn þegar
bíll endaði á vegriði skammt frá Ár-
bliki. Í báðum tilvikum runnu bif-
reiðar til í snjó á vegi. Engin alvar-
leg slys urðu á fólki en þrír bílanna
reyndust óökufærir eftir óhöppin.
sm
Annasöm helgi í
dráttarbílaþjónustu í Dölum