Skessuhorn


Skessuhorn - 13.02.2019, Qupperneq 13

Skessuhorn - 13.02.2019, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 13 þess þurfti ég að þvælast út um all- an heim, hitta yfirmenn flugmála og ráðherra í öllum mögulegum löndum. Ég held ég hafi komið til 92 landa í gegnum tíðina,“ segir hann og kveðst hafa lent í alls konar ævintýrum á þeim ferðalögum sín- um. „Ég man eftir því að einu sinni fluttum við tólf farma af ítölskum marmara til Gabon. Það var þegar Ali Bongo forseti og einræðisherra var að byggja sér höll. Það var ótrú- legt að koma þangað. Sagt var að frá höllinni var búið að grafa kaf- bátaskurð og hægt að sigla kafbát inn í hana. Þar gat forsetinn farið um borð og flúið með kafbátnum ef þurfti. Ég held þeir hafi samt ekki hugsað út í það að það væri auð- veldlega hægt að stífla skurðinn,“ segir Einar og brosir. „Ég kom líka til Ródesíu, sem nú heitir Sim- babve, þegar uppreisnin stóð sem hæst. Þá voru Ródesíubúar að basla við að smygla kjöti, sem var helsta útflutningsvaran þeirra, í gegn- um Libreville í Gabon. Í Ródesíu af öllum stöðum rakst ég á Íslend- ing, sem hafði verið með rekstur hér heima en lent í einhverju basli og flúið til Afríku,“ segir hann og brosir. „Ouagadougou, höfuðborg Búrkína Fasó, fannst mér ákaflega falleg borg, skemmtileg og snyrti- leg en það var ekki alls staðar svo- leiðis. Ég man að í Sambíu var ástandið ömurlegt, húsakynni fólks hrörleg, mikill óþrifnaður og allt á niðurleið í landinu. Á öllum ferða- lögum mínum fannst mér skína í gegn að gömlu frönsku nýlendurn- ar hefðu almennt verið betur í stakk búnar að verða sjálfstæðar. Frakk- arnir lögðu sig að minnsta kosti að- eins fram við að byggja upp ein- hverja innviði og styðja aðeins við fólkið í aðdraganda sjálfstæðisins. Það er eins og öðrum þjóðum hafi staðið fullkomlega á sama um afdrif gömlu nýlendanna, þær virtust ekki hafa fengið neina aðstoð í aðdrag- anda sjálfstæðisins,“ segir hann. „Nýjasta ævintýrið í fullum gangi“ „Eftir að Víetnamstríðinu lauk þá fór ég til Víetnam um leið til að reyna að fá yfirflugsheimild fyrir Cargolux. Það munaði litlu að við yrðum þeir fyrstu til að fljúga yfir landið eftir stríðið. En við fengum ekki heimildina, var skipað að láta vélina bíða og vissum ekki alveg af hverju. Það kom síðan á daginn að Bandaríkjamenn höfðu krafist þess að láta okkur bíða, Pan American Airlines skyldu verða fyrsta flug- félagið til að fljúga yfir Víetnam eftir stríðið. Það var nú meiri pissu- keppnin hjá Könunum,“ segir Ein- ar og hristir hausinn. „Svo lentum við einu sinni í því að vél frá okk- ur var kyrrsett í Jakarta í Indónesíu og áhöfninni haldið í stofufangelsi. Ég flaug þangað frá Lúxemborg til að reyna að liðka fyrir málunum en það gekk ekkert í marga daga og alltaf var áhöfnin bara strand uppi á hótelherbergi. Eftir mikið japl, jaml og fuður þá leystist málið nú. En mér virtist sem vélin hefði bara verið kyrrsett vegna þess að ein- hvers staðar í kerfinu hjá þeim hafði einhver ekki fengið brúna umslagið sem hann taldi sig eiga að fá. Þetta var stundum svoleiðis,“ segir Einar. „En eftir þetta allt saman stendur margt skemmtilegt. Það var gaman að fá að taka þátt í þessu og einn- ig í uppgangi Hong Kong sem iðn- aðarsvæðis í gegnum Cargolux. Við vorum alla tíð mjög vel liðnir þar,“ segir hann. „Þannig að ég er bú- inn að upplifa og reyna ýmislegt í gegnum tíðina og lenda í alls kon- ar ævintýrum. Það var síðan algjör kúvending að flytja heim til Íslands og gerast hrossabóndi. Það er nýj- asta ævintýrið og er í fullum gangi,“ segir Einar Ólafsson í Söðulsholti að endingu. kgk ERUM MEÐ LAUST BORÐ TIL ÚTLEIGU Coworking Akranes er við Akratorg og því á besta stað í bænum. Getur þú unnið þína vinnu hvar sem er eða ertu einyrki? Komdu þá til okkar í skemmtilegt og skapandi umhverfi. Innifalið í leigu eru afnot af fundarherbergi, kaffi, internet og þú getur mætt hvenær sem er. Nánari upplýsingar heidar@muninnfilm.is/s.864 5545 SK ES SU H O R N 2 01 9 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli Fyrsta mót ársins í Þrekmótaröð- inni var haldið í íþróttahúsi HK í Digranesi laugardaginn 9. febrúar. Á mótunum er keppt í einstaklings-, para- og liðaflokkum og reyna mót- in á þrek, styrk og þol. Öllum er vel- komið að skrá sig og voru þónokkr- ir Vestlendingar skráðir til leiks á þessu fyrsta móti Þrekmótaraðar- innar 2019. Í opnum flokki ein- staklingskeppni kvenna kepptu þær Þóra Björg Þorgeirsdóttir og Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir hjá Cross- fit Ægi á Akranesi. Þóra Björk hafn- aði í 9. sæti og Helga Ingibjörg í 11. sæti. Þóra Björk tók einnig þátt í einstaklingskeppni kvenna 29 ára og yngri og hafnaði í 6. sæti. Helga Ingibjörg tók einnig þátt í einstak- lingskeppni kvenna 30-39 ára og hreppti bronsið. Í opnum flokki ein- staklingskeppni karla kepptu þeir Ingvar Svavarsson og Sævar Berg Sigurðsson, báðir frá Crossfit Ægi. Ingvar hafnaði í 9. sæti og Sævar Berg í 19. sæti. Í einstaklingskeppni karla 29 ára og yngri kepptu þeir Sævar Berg og Axel Guðni Sigurðs- son hjá Crossfit Ægi. Axel varð í 8. sæti og Sævar Berg í 14. sæti. Ing- var Svavarsson keppti einnig í ein- staklingskeppni 30-39 ára karla og hreppti gullið. Í parakeppninni tóku þátt þau Axel og Þóra Björk frá Crossfit Ægi, Jói og Sigga frá Bootcamp Akranesi og Peta og Sævar frá Crossfit Ægi. Axel og Þóra Björg höfnuðu í 10. sæti, Jói og Sigga í 13. sæti og Peta og Sæv- ar í 17. sæti. Í parakeppni 39 ára og eldri tóku Jói og Sigga einnig þátt og lentu í 3. sæti. Í opnum flokki í liðakeppni kvenna tóku fjögur lið af Vesturlandi þátt, Ægisdætur sem all- ar komu frá Crossfit Ægi lentu í 20. sæti, Queens sem komu frá Cross- fit Grundarfirði og Crossfit Ægi lentu í 29. sæti, Júllurnar að Vestan sem komu frá Átaki í Stykkishólmi lentu í 34. sæti og BC Skagaskvísur sem allar komu frá Bootcamp Akra- nesi lentu í 36. sæti. Í opnum flokki í liðakeppni karla tóku þrjú lið af Vesturlandi þátt. Ónýt hné, sem allir koma frá Átaki í Stykkishólmi, lentu í 8. sæti, Litlu ljótu andarungarnir sem einnig komu frá Átaki í Stykk- ishólmi urðu í 12. sæti og Skagastál Bootcamp frá Bootcamp Akranesi urðu í 14. sæti. arg Vestlendingar á Þrekmótaröðinni um helgina Þessar stelpur kepptu saman á Þrekmótaröðinni um síðustu helgi. F.v. Elva Björk Jónsdóttir Grundarfirði, Björg Hermannsdóttir Grundarfirði, Erika Rún Heiðars- dóttir Ólafsvík og Inga Rós Jónsdóttir Borgarnesi. Ljósm. Björg Ágústsdóttir. Vinna í fullum gangi í reiðhöllinni í Söðulsholti. Um þessar mundir Einn bústaðanna fjögurra í Söðulsholti. Gistingu var bætt við reksturinn fyrir fjórum árum síðan. Inni í einum af bústöðunum fjórum á bænum.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.