Skessuhorn


Skessuhorn - 13.02.2019, Síða 22

Skessuhorn - 13.02.2019, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 201922 Knattspyrnukonan Bryndís Rún Þór- ólfsdóttir hefur framlengt samn- ing sinn við Knatt- spyrnufélag ÍA. Skrifaði hún undir tveggja ára samn- ing. Bryndís er fædd árið 1997 og leikur á miðju vallarins. Hún hefur verið ein af lykilleikmönnum í liði Skagakvenna undanfarin ár. Bryndís á að baki 76 leiki fyr- ir meistaraflokk ÍA og í þeim leikjum hefur hún skorað sex mörk. Þar að auki hefur hún leikið við góðan orðstír með University of the Pacific í bandaríska háskólaboltanum undanfarin tvö ár. Var hún m.a. valin í úr- valslið nýliða í Vesturdeild NCAA keppninn- ar eftir sitt fyrsta tímabil. kgk MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvað óttast þú mest? Spurni g vikunnar (Spurt á Akranesi) Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir Að missa fjölskylduna. Jóhann Sigurðsson Að deyja. Erla Rún Rúnarsdóttir Að eitthvað komi fyrir börnin mín. Anna María Þórðardóttir Að drukkna. Eva Ósk Gísladóttir Köngulær. Valdís Þóra Jóns- dóttir komst ekki í gegnum niður- skurðinn á ISPS Handa Vic Open mótinu sem haldið var í Ástralíu í síðustu viku, en mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Valdís lék fyrsta hring mótsins á pari og ann- ar hringurinn var leikinn aðfararnótt föstu- dags. Í honum byrjaði Valdís ekki vel, fékk skramba strax í upphafi. Henni tókst að koma sér aftur niður á parið eftir tíu holur en tap- aði tveimur höggum á næstu tveimur. Hún fékk síðan fugl á 16. holu og þurfti annan fugl til að tryggja sig áfram á mótinu. Fugl- inn kom hins vegar ekki. Valdís fékk skolla á 17. holu og þar með ljóst að hún kæmist ekki í gegnum niðurskurðinn. Hringnum lauk Val- dís á 75 höggum og endaði mótið á tveimur höggum yfir pari. Varð hún jöfn í 88. sæti. kgk/ Ljósm. úr safni. Valdís Þóra spilaði í LPGA mótaröðinni Bryndís Rún Þórólfsdóttir í leik með ÍA. Ljósm. úr safni/ gbh. Bryndís Rún framlengir við ÍA K n at t s py r n u m a ð u r - inn Vignir Snær Stef- ánsson skrifaði á dög- unum undir tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. Samhliða sam- komulaginu er að hann verður lánaður út fyrra ár samningstímans til Stord í Noregi. Vignir Snær er fæddur 1996, uppalinn í Víking Ólafs- vík, og gegndi lykilhlutverki hjá liðinu sum- arið 2018, lék 24 leiki í Innkasso deildinni og bikarnum og skoraði tvö mörk. Hann var valinn bæði knattspyrnumaður og íþrótta- maður HSH árið 2018. Vignir Snær hélt utan um liðna helgi en þjálfari Stord sem leikur í norsku D-deildinni er Jón Páll Pálmason, fyrrverandi þjálfari kvennaliðs Fylkis og kar- laliðs Hattar. þa Vignir Snær á láns- samning til Stord Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 11-14 ára fór fram í Laugardals- höll um helgina. Þar voru 341 keppandi skráður til leiks frá 15 félögum og héraðssamböndum. Þar af voru tveir kepp- endur frá Ungmennasambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga, þær Katrín Einarsdóttir og Jóhanna Vígdís Pálmadóttir, og fjórir keppend- ur frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar, þau Guðmundur Bragi Borgarsson, Ólafur Auðunn Sigvaldason, Ingibjörg Þórðardóttir og Unnur Björg Ómarsdóttir. Öll stóðu þau sig með prýði en Katrín Einarsdóttir var sú eina sem komst á verðlaunapall þegar hún hafnaði í öðru sæti í hástökki. arg/ Ljósm. Svala Svavarsdóttir. Varð í öðru sæti í hástökki Á ársþingi KSÍ um liðna helgi hlaut ÍA Dómaraverð- laun KSÍ fyrir árið 2018 fyr- ir öflugt dómarafélag sem starfar innan ÍA, Knatt- spyrnudómarafélag Akra- ness. „ÍA og KDA gera ár- lega með sér samning um að KDA sjái um dómgæslu frá 4. flokki og uppúr. Samstarf- ið hefur verið ákaflega far- sælt og átt mikinn þátt í því að styrkja öflugt starf sem unnið er í knattspyrnumál- um á Akranesi,“ segir í um- sögn KSÍ um verðlaunin. arg ÍA hlaut Dómaraverðlaun KSÍ ÍA hlaut Dómaraverðlaun KSÍ. Alþjóðleg þríþrautarkeppni verð- ur haldin á Snæfellsnesi laugardag- inn 27. júlí næstkomandi. Greint er frá þessu á heimasíðu Snæfellsbæj- ar. Keppnisfyrirkomulag mótsins er heill járnkarl. Vegalengdir eru 3.862 m sund, 195 km hjólreiðar og 43,5 km hlaup. Keppt er í þess- ari röð í einni beit. Járnkarl er al- mennt talinn vera einhver erfiðasta keppni íþróttaheimsins sem keppt er í á einum degi. Keppnin hefst kl. 04 að morgni laugardagsins við Eiði í Kolgrafa- firði á tæplega fjögurra kílómetra sjósundi. Að sundi loknu hjóla keppendur 195 km leið frá Kolg- rafafirði, í gegnum Snæfellsbæ, út fyrir Jökul og yfir Vatnaleið og enda síðan í Ólafsvík. Að lokum verður hlaupið yfir Jökulhálsinn; frá Ólafsvík að Arnarstapa og aftur til baka. Bækistöðvar mótsins verða í Ólafsvík. Gert er ráð fyrir að allt að 250 keppendur geti tekið þátt, en ekki er útséð með heildarfjölda kepp- enda á þessum tímapunkti. „Þó er ljóst að fjölmargir þaulvanir kepp- endur frá öllum heimshornum verði meðal keppenda þar sem skráning fór vel af stað í desember síðastliðnum,“ segir í fréttinni. Þá segir enn fremur að búast megi við að flestum keppendum fylgi nokkur hópur sem muni dvelja á Snæfells- nesinu á meðan keppni stendur. „Er svona alþjóðlegt mót því góð viðbót í fjölbreytileikann í ferða- þjónustu hér á Snæfellsnesi,“ segir á heimasíðu Snæfellsbæjar. Extreme Endurance Events frá Bandaríkjunum eru mótshald- arar keppninnar. Aðrar keppnir á vegum þeirra eru haldnar árlega í Alaska og á Havaí. „Þess má geta að þeir leituðu sérstaklega eftir því að mótið yrði haldið hér á Snæfells- nesi og skyldi engan undra. Þeim innan handar eru íslenskir aðilar sem staðið hafa að þríþrautarmót- um hér á landi og því vanir einstak- lingar sem koma að skipulagningu mótsins.“ kgk Keppt í járnkarli á Snæfellsnesi í sumar Mynd af hlaupaleið keppninnar. Hlaupið verður yfir Jökulhálsinn frá Ólafsvík að Arnarstapa og aftur til baka. Ljósm. Extreme Endurance Events/ Aaron Palaian. Karlalið Snæfells reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hött, þegar liðin mættust í Stykkishólmi á föstudagskvöldið í 1. deildinni. Leikurinn var alger einstefna frá fyrstu mínútu og endaði með risa- sigri gestanna frá Egilsstöðum, 36-122. Mikil kraftur var í liði Hattar í fyrsta leikhluta, þar sem þeir skor- uðu 35 stig gegn tíu stigum Snæ- fellinga. Annar leikhluti var nán- ast alveg eins og sá fyrsti, gestirn- ir skoruðu nánast að vild en hvorki gekk né rak hjá heimamönnum. Staðan í hléinu var 18-66. Snæfellingar skoruðu aðeins fimm stig allan þriðja leikhluta gegn 37 stigum gestanna. Hattar- menn slökuðu aðeins á í lokafjórð- ungnum, þar sem þeir skoruðu 19 stig gegn 13 stigum Hólmara. Lokatölur urðu 36-122, Hetti í vil. Það var fátt um fína drætti á stiga- töflunni í liði Snæfells. Ísak Örn Baldursson skoraði sjö stig Dawid Einar Karlsson skoraði sjö stig og tók fimm fráköst. Aron Ingi Hin- riksson var með sex stig og Darrel Flake sex stig og sjö fráköst. Charles Clark var atkvæðamest- ur í liði Hattar með 30 stig og sex fráköst. Andrée Farse Michelsson skoraði 21 stig, André Hughes var með 20 stig og 13 fráköst, Eysteinn Bjarni Ævarsson skoraði 15 stig og Dino Supcic var með 14 stig. Snæfellingar hafa tvö stig eftir 16 leiki í botnsæti deildarinnar. Næst leika þeir mánudaginn 18. febrúar, þegar þeir heimsækja Fjölni. kgk Snæfellingar rótburstaðir Það hvorki gekk né rak hjá Snæfelli gegn Hetti á föstudagskvöld. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.