Skessuhorn - 12.06.2019, Blaðsíða 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 22. árg. 12. júní 2019 - kr. 750 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Heildarmat fasteigna á Íslandi
hækkar mest á Vesturlandi frá yf-
irstandandi ári, eða um 10,2%.
Næst mest hækkar matið á Suð-
urnesjum, eða um 9,8% og þá um
8% á Suðurlandi. Heildarhækkun
fasteignamats á landinu öllu nem-
ur 6,1%. Þetta kemur fram í nýju
fasteignamati fyrir árið 2020 sem
Þjóðskrá Íslands kynnti á miðviku-
dag. Fasteignamat íbúða á landinu
öllu hækkar um 6% milli ára. Þar
af hækkar sérbýli um 6,6% en fjöl-
býli um 5,3%. Hækkunin er meiri
á landsbyggðinni en í höfuðborg-
inni, eða 9,1% samanborið við
5%. Fasteignamat atvinnuhúsnæð-
is hækkar um 6,9% á landsvísu; um
5,9% á höfuðborgarsvæðinu en um
9,3% á landsbyggðinni. Fasteigna-
mat sumarhúsa er nær óbreytt milli
ára, hækkar um 0,7% frá yfirstand-
andi ári.
Hækkar mest á Akranesi
Sé litið til einstakra sveitarfélaga á
Vesturlandi má sjá að heildarfast-
eignamat hækkar alls staðar nema
í Skorradal, þar sem það lækkar
um hálft prósent. Mest er hækkun-
in á Akranesi, eða 19,1% og er það
mesta hækkun á landsvísu. Matið
hækkaði um 8,3% í Hvalfjarðar-
sveit, 7,5% í Stykkishólmi, 6,1%
í Helgafellssveit, 5,6% í Borgar-
byggð, 5,2% í Dalabyggð, 3,4% í
Grundarfirði, 2,7% í Snæfellsbæ
og um 2,3% í Eyja- og Miklaholts-
hreppi.
Fasteignamatið byggir á upplýs-
ingum úr þinglýstum kaupsamning-
um, auk fleiri þátta sem hafa áhrif á
verðmæti fasteigna. Nýtt mat miðast
við verðlag fasteigna í febrúar 2019.
Það tekur gildi 31. desember 2019
og gildir fyrir árið 2020.
Ætla að lækka
fasteignaskatta
Sem fyrr segir hækkar heildarfast-
eignamat hvergi meira en á Akranesi,
eða um 19,1%. Þar hækkar fasteigna-
mat íbúða um 21,8%, sem er jafn-
framt mesta hækkun á landinu öllu.
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á
Akranesi, segir að Akraneskaupstað-
ur muni lækka álagningaprósentu
fasteignaskatta til að tryggja að stað-
ið verði við yfirlýsingu sem gefin
var út við gerð lífskjarasamninganna
svokölluðu. Þar var kveðið á um að
gjöld íbúa verði ekki hækkuð meira
en sem nemur 2,5 prósentum. „Ég er
búinn að vera bæjarstjóri í tvö ár en
á þeim tíma hafa bæjarstjórnir Akra-
neskaupstaðar lækkað álagsprósentu
heimila um 20,66% og fyrirtækja um
4,21% samhliða hækkandi fasteigna-
mati. Við lofum að það verður fram-
hald á þessu um næstu áramót. End-
anleg útfærsla mun liggja fyrir í des-
ember þegar fjárhagsáætlun ársins
2020 verður samþykkt,“ segir Sævar
í samtali við Skessuhorn.
„Bæjarfélag í sókn“
Sævar segir mikla ásókn í lóðir og
fasteignir á Akranesi eina af helstu
skýringum þess að fasteignamat
Þjóðskrár hefur hækkað jafn mikið
og raun ber vitni. „Við erum bæjar-
félag í sókn og þess vegna er mikil-
vægt að við sjáum að þeir sem ákveða
að byggja fái eðlilegt og sanngjarnt
verð fyrir eignir sínar. Á sama tíma
erum við engu að síður með 20-40%
lægra verð á íbúðum hér á Akranesi
en í höfuðborginni. Fyrir 100 fer-
metra íbúð kemur það um það bil
þannig út að fólk borgar 70 þúsund
krónum minna í afborganir af lánum
á Akranesi af slíkri íbúð en í sambæri-
legu húsnæði í höfuðborginni,“ segir
hann. Bæjarstjórinn segir enn fremur
að gatnagerðargjöld séu ein af stærri
skýringum þess að verð á íbúðum á
Akranesi sé á bilinu 20-40% lægra en
á höfuðborgarsvæðinu. „Við lítum
ekki á gatnagerðargjöld sem hagnað-
armyndun hjá kaupstaðnum heldur
erum við að selja þau undir kostnað-
arverði eins og staðan er í dag. Stefn-
an er að í framtíðinni verði gatna-
gerðargjöld í takt við kostnað kaup-
staðarins af gatnagerð en ekki til
hagnaðarmyndunar, en því er öfugt
farið í höfuðborginni,“ segir Sævar
Freyr Þráinsson.
kgk
Nýr Bárður SH var sjósettur síð-
astliðinn fimmtudag hjá Bredga-
ard Bådeværft í Rødbyhavn í Dan-
mörku. Báturinn er 26,9 metra lang-
ur og sjö metra breiður með 2,5
djúpristu. Stærð hans gerir hann því
að stærsta trefjaplastbáti sem smíð-
aður hefur verið fyrir íslenska út-
gerð, að sögn Péturs Péturssonar,
útgerðarmanns í Snæfellsbæ. Nýr
Bárður er væntanlegur til landsins
fyrir lok júlí.
Sjá nánar bls. 19
Stærsti
trefjaplast
báturinn
Fasteignamat hækkar mest á Vesturlandi
Hvergi er meiri hækkun fasteignamats en á Akranesi. Hér er Sævar Freyr Þráins-
son bæjarstjóri og hluti nýbygginga í baksýn. Ljósm. mm.