Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Síða 2

Skessuhorn - 12.06.2019, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 20192 Vestlendingar hafa getað notið sólarinnar undanfarið og ekkert útlit er fyrir að breyting verði þar á. Því er ástæða til að minna á sól- arvörnina, því eins kærkomin og yndisleg og hún er þá getur sólin líka verið varasöm. Spáð er 23 stiga hita um landið vestanvert á morgun, fimmtudag. Útlit er fyrir að hitinn verði allt að 20 stig víða á landinu næstu daga og fram yfir helgi. Hægum vindi er spáð víðast hvar á land- inu á sama tíma. Fyrir norðan og austan má búast við smá vætu á morgun og þá rignir á Austur- og Suðausturlandi á laugardaginn. Að öðrum kosti er engin úrkoma í kortunum. „Ætlar þú að ferðast um Vestur- land í sumarfríinu?“ var spurt á vef Skessuhorns í síðustu viku. „Já, eitthvað“ segja flestir, eða 51%. „Já, töluvert mikið“ segja næst- flestir, eða 19%. „Hef ekki ákveð- ið mig“ sögðu 10% og jafn marg- ir sögðust síður eiga von á því. Að lokum eru 9% sem segjast ekki fá neitt sumarfrí. Í næstu viku er spurt: Hversu sterka sólarvörn notarðu? Hjónin Sigurbjörg Helgadóttir og Óskar Þór Óskarsson á Tröðum á Mýrum verja þessa dagana öll- um stundum, nótt sem degi, í að verja æðarvarp sitt fyrir varginum sem sækir í varpið. Fyrir eljusemi og staðfestu eru þau Vestlend- ingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Tvær bílveltur VESTURLAND: Bílvelta varð á Leirársveitarvegi síðdegis þriðju- daginn 4. júní. Ökumaður missti stjórn á bílnum sínum með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og á hliðinni og nánast úti í skurði. Ökumaðurinn hafði komist út úr bílnum af sjálfsdáðum þeg- ar lögregla kom á vettvang. Hann kenndi sér eymsla í hálsi og baki og var fluttur á HVE á Akranesi til aðhlynningar. Bíll valt á útnesvegi við Vatnshóla á föstudagskvöld. Ökumaður lenti í lausamöl í ve- göxl, missti stjórn á bílnum, hafn- aði utan vegar þar sem hann fór nokkrar veltur og endaði á toppn- um. Ökumaður og farþegi voru skoðaðir af lækni í sjúkrabifreið sem kölluð var á vettvang. Þeir voru með skrámur og laskaðir en annars ómeiddir og fengu að fara heim að skoðun lokinni. -kgk Slasaðist á göngu SNÆFELLSBÆR: Laust eftir hádegi á fimmtudag voru björg- unarsveitarmenn á Snæfellsnesi kallaðir út til aðstoðar sjúkraflutn- ingamönnum vegna manns sem slasaðist á göngu að Lóndröng- um við Malarrif. Koma þurfti hin- um slasaða um tveggja kílómetra leið að sjúkrabíl. Sexhjól var notað til að flytja hinn slasaða að sjúkra- bílnum og honum síðan komið undir læknishendur. útkallið stóð yfir þar til um fjögurleytið. -kgk Datt í Baldri BREIÐAFJ: Erlend kona á sex- tugsaldri varð fyrir því óláni að hrasa þegar hún var að ganga upp stiga í ferjunni Baldri á mánu- daginn. Hún rann til í stigan- um, féll og gat ekki staðið upp aftur. Hún hafði dottið daginn áður í Reykjavík, farið á bráða- móttöku en verið send þaðan aft- ur. Eftir að konan hrasaði í Baldri var farið með hana á sjúkrahúsið á Akranesi og þar kom á daginn að hún var mjaðmarbrotinn. Tal- ið er að hún hafi jafnvel brotnað þegar hún hrasaði í Reykjavík og það hafi ekki komið í ljós fyrr en þarna, að sögn lögreglu. -kgk Veiði hefst á laugardaginn ARNARV.H: Opnað verður fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði næstkomandi laugardag, 15. júní, venju samkvæmt. Að sögn Snorra jóhannessonar veiðivarðar er heiðin óvenjuþurr miðað við árs- tíma og þar á meðal lág vatns- staða í Norðlingafljóti. Veiðileyfi er hægt að nálgast í Veitinga- staðnum við Hraunfossa. -mm Taldi bílnum hafa verið stolið STYKKISH: Maður hafði sam- band við Lögregluna á Vestur- landi á þriðjudaginn í síðustu viku og tilkynnti um nytjastuld á bifreið sinni. Hann hafði sent bíl sinn yfir Breiðafjörð með ferj- unni Baldri. Þegar hann síðan kom og sótti bifreiðina taldi hann að fleiri kílómetrar væru á mæl- inum en þegar hann skildi við hann og minna eldsneyti á tankn- um. Hafði hann því samband við lögreglu. Myndbandsupptökur frá hafnarsvæðinu í Stykkishólmi voru kannaðar. Þar sést hvar bíln- um er ekið úr bátnum og lagt í stæði. Hann sást hins vegar ekki hreyfast þar til eigandinn kom og sótti hann. -kgk Skóla- og frístundasvið Akranes- kaupstaðar leggur til að byggður verði nýr leikskóli á Akranesi. Til- laga ráðsins byggir á niðurstöð- um starfshóps um framtíðarþörf á leikskólaplássi á Akranesi. Skýrsla starfshópsins var lögð fram á fundi skóla- og frístundaráðs þriðjudag- inn 4. júní. Ráðið leggur einnig til að skoðað verði hvernig bæta megi starfsaðstæður barna og starfsfólk í eldri leikskólabyggingum. „Með því að ráðast í byggingu á nýjum leikskóla næst að mæta ákalli eft- ir meiri þjónustu leikskólastigsins, íbúaþróun og nýjum hugmynd- um um gæði húsnæðis. Þessi hug- mynd gerir ráð fyrir því að leikskól- inn Garðasel flytjist í nýtt húsnæði sem skapar hagræði í stjórnun og rekstri og mætir að einhverju leyti húsnæðisþörf Grundaskóla,“ segir í fundargerð. Sviðsstjóra var falið að koma með útfærðar tillögur um málið sem innlegg í fjárhagsáætlanagerð ársins 2020. Sviðsstjóra var einnig falið að meta áætlaða þörf á leikskólaplássi næstu fimm árin, byggt á þeim up- plýsingum sem fram koma í skýrslu starfshópsins. jafnframt að afla up- plýsinga um búsetudreifingu bar- na á leikskólaaldri og spá fyrir um þróun hennar. kgk „Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur þung- ar áhyggjur af ástandi sjúkrabi- freða, sem heilt yfir landið fer nú versnandi. Ástandið er alvarlegt Nemendur og starfsfólk leikskólans Vallarsels í skrúðgöngu á 40 ára afmæli skólans núna í vor. Vallarsel er einn fjögurra leikskóla á Akranesi. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni. Leggja til að nýr leikskóli verði byggður á Akranesi „Stefnir í algjört óefni“ LSS segir ástand sjúkrabílaflotans óviðunandi og er það óásættanlegt með öllu að ekki sé enn búið að tryggja fjár- mögnun til endurnýjunar.“ Þannig hefst bréf sem LSS sendi Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra síðastliðinn miðvikudag. „Sjúkra- bifreiðar eru mikilvæg flutnings- tæki og er þeim ætlað að vera ekið forgangsakstri þar sem líf og heilsa liggja við. Forgangsakstur er hættulegur og afar mikilvægt er að sjúkrabílar séu í góðu ástandi til þess að auka ekki á hættuna á alvar- legum slysum í umferðinni. For- gangsakstur eykur álag á ökutæk- in og eykur þar með á slit þeirra. Regluleg endurnýjun er lykilat- riði,“ segir í bréfi LSS. Landssambandið telur öryggi sjúkraflutningamanna og skjól- stæðinga þeirra ógnað vegna ástands sjúkrabílaflota, en engin endurnýjun hefur átt sér stað síðan 2015. Í ályktun LSS segir að ástand ökutækja sé víða orðið þannig að ekki sé sjálfgefið að mæta megi með viðunandi öryggi þeim kröf- um sem gerðar eru um viðbragðs- tíma. Tíðni bilana aukist og þar með hættan á því að sjúkrabifreið komist ekki á vettvang til að sinna bráðveikum og slösuðum. Sam- bandið skorar því á ábyrgðaraðila að tryggja lausn á málinu án taf- ar. „Samkvæmt útgefnum viðmið- um er nú þegar orðin þörf á end- urnýjun rúmlega helmings allra sjúkrabifreiða í landinu. útboði nýrra sjúkrabifreiða hefur nú verið frestað samtals 11 mánuði og ekki er enn búið að tryggja fjármögnun þess,“ segir í bréfinu. „Það stefnir í algjört óefni, enda tekur um 10 mánuði frá því gengið er frá samn- ingum á grundvelli útboðs þar til fyrstu bifreiðar eru afgreiddar.“ kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk. „Vegna langvarandi þurrka á Vest- urlandi hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Vesturlandi, lýst yfir óvissustigi al- mannavarna vegna hættu á gróð- ureldum,“ segir í tilkynningu frá almannavarnanefnd ríkislögreglu- stjóra sem send var í gær stjórn- endum sveitarfélaganna í lands- hlutanum og viðbragðsaðilum. „Almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra, almannavarnir í hér- aði, ásamt viðbragðsaðilum, hafa áhyggjur af hættu á gróðureldum á Vesturlandi, sérstaklega í Skorra- dal. Því er talið rétt að lýsa yfir óvissustigi til samræmis við vinnu og viðbrögð þessara aðila.“ Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almanna- varna, til að tryggja formleg sam- skipti og upplýsingagjöf milli við- bragðsaðila. „Óvissustig á við þeg- ar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða manna- völdum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.“ Í tilkynningunni kemur einnig fram að Veðurstofa Íslands spáir ekki úrkomu á svæðinu næstu vik- una. Þvert á móti er spáð áfram- haldandi hlýindum. „Fólk og land- eigendur eru beðnir um að sýna aðgát í meðferð opins elds og eld- unartækja þar sem mikill gróður er.“ kgk Óvissustig vegna hættu á gróðureldum á Vesturlandi Slökkviliðsbíll í Skorradal. Ljósm. úr safni/ PD.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.