Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Qupperneq 6

Skessuhorn - 12.06.2019, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 20196 Hraðavakt í íbúðahverfum AKRANES: Í kjölfar ábend- inga frá íbúum hefur lögregla aukið vöktun á umferð með myndavélabílnum í íbúða- hverfum þar sem hámarks- hraði er 30 km/klst. Lög- reglumenn vöktuðu Ketils- flöt við Beykiskóga á Akra- nesi milli kl. 16 og 17 á föstu- dag. Alls fóru 106 ökutæki um götuna þessa klukku- stund. Meðalhraði allra öku- tækja var 33 km/klst. en 70% óku yfir leyfilegum hámarks- hraða. Alls voru 20 kærð- ir, eða 19% og meðalhraði kærðra var 43 km/klst. Sá sem hraðast ók var á 47 km/ klst. Sama dag milli 17 og 18 vöktuðu lögreglumenn svæðið við íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi, þar sem hámarkshraði er einnig 30 km/klst. Á þessari klukku- stund fóru 30 bílar um svæð- ið og 73% þeirra var ekið of hratt. Sex hraðakstursbrot voru kærð, sá sem ók hraðast var á 50 km/klst. -kgk Sprungið dekk í göngunum HVALFJ: Eldri ökumaður, 87 ára gamall, lenti í vandræð- um þegar dekk sprakk und- ir bifreið hans í Hvalfjarðar- göngum á fimmtudaginn var. Lögregla mætti á vettvang og aðstoðaði manninn við að skipta um dekk. Hann gat síðan haldið för sinni áfram og ætlaði að aka beint á hjól- barðaverkstæði og láta athuga með dekkið. Vörubifreið stað- næmdist í Hvalfjarðargöngum aðfararnótt þriðjudags þegar loftslanga fór í sundur. Bilun- in varð á þeim kafla þar sem vegurinn er tvöfaldur þann- ig að umferð komst framhjá. Manninum var veitt aðstoð á meðan gert var við bílinn. -kgk Ölvunarakstur BORGARNES: Lögreglunni á Vesturlandi barst ábending um hugsanlega ölvaðan öku- mann í Borgarnesi að morgni hvítasunnudags. Var maður- inn stöðvaður við Olísplanið og mældist vínandi yfir leyfi- legum mörkum við útblástur. Maðurinn var handtekinn og gert að gefa blóðsýni. -kgk Gaskútum hnuplað ÓLAFSVÍK: Gaskútum var stolið úr húsi við Ólafsbraut í Ólafsvík á mánudaginn. Kút- arnir voru tengdir við gas- grill sem stóð við inngang- inn að neðri hæð hússins þeg- ar einhver kom og skrúfaði þá frá grillinu og hnuplaði þeim. Engin vitni voru að þjófnað- inum. -kgk Rúðubrot AKRANES: Skemmdarverk var unnið á húsi við Kirkju- braut á Akranesi í vikunni sem leið þegar rúður í úti- dyrahurð voru brotnar. Ekki er vitað hver var þar að verki en greinilegt að rúðurnar voru brotnar utan frá að sögn lög- reglu. -kgk Hraðakstur um helgina VESTURLAND: Hraðakst- ur var mjög áberandi í verk- efnum Lögreglunnar á Vestur- landi í vikunni sem leið. Eink- um kom mikið um hraðaksturs- brot um hvítasunnuhelgina. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns var mjög algengt að ökumenn væru stöðvaðir á milli 110 og 120 km/klst. og töluvert marg- ir óku enn hraðar. Sá sem hrað- ast ók í vikunni var stöðvaður á Snæfellsnesvegi kl. 7:35 á föstu- dagsmorgun. Hann var á hvorki meira né minna en 144 km/klst., en leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Viðurlög við ákæru vegna aksturs á 144 km/klst. eru sér 210 þúsund króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír punktar í ökuferilsskrá. Annar var mældur á Snæfells- nesvegi á 129 km/klst. sama dag og var gert að greiða 115 þús- und krónur og annar þurfti að reiða fram sömu upphæð fyr- ir að hafa ekið á 132 km/klst. um Snæfellsnesveg við Tungu- ós á sunnudag. Þá var enn ann- ar ökumaður á Snæfellsnesvegi sektaður um 80 þúsund krón- ur fyrir að aka á 121 km/klst. við Kolgrafafjarðarbrú. Lög- regla vill minna á að leyfilegur hámarkshraði er miðaður við bestu aðstæður, sem þýðir að fólk á að hægja á sér þegar það kemur að brúm, gatnamótum og slíku. -kgk Krakkar að príla AKRANES: Tveir 14 ára gamlir strákar príluðu upp still- ansa upp á fimmtu hæð nýbygg- ingar við Stillholt á Akranesi á föstudaginn. Lögregla útskýrði fyrir drengjunum að stranglega væri bannað að fara inn á bygg- ingasvæðið, enda er það girt af. Haft var samband við foreldra drengjanna og þeim gert við- vart. -kgk Spáð er 23 stiga hita um landið vestanvert á morgun, fimmtudag. útlit er fyrir að hitinn verði allt að 20 stig víða á landinu næstu daga og fram yfir helgi. Hægum vindi er spáð víðast hvar á landinu. Fyr- ir norðan og austan má búast við smá vætu á morgun og þá rignir á Austur- og Suðausturlandi á á laug- ardaginn. Að öðrum kosti er eng- in úrkoma í kortunum. „Eru norð- lægar áttir ríkjandi næstu daga með lítilsháttar vætu A-til á landinu, en lengst af bjart með köflum annars staðar og frekar hlýtt í veðri,“ seg- ir í hugleiðingum verðurfræðings Veðurstofu Íslands. kgk/ Ljósm. úr safni/ glh. Föstudaginn 24. maí var 30 þúsund laxaseiðum komið fyrir í tveimur sleppitjörnum við Andakílsá í Borg- arfirði. „Þetta er liður í endurreisn lífríkis árinnar í kjölfar atburðar sem varð sumarið 2017 vegna við- halds og ástandsmats á stíflumann- virkjum Andakílsárvirkjunar,“ seg- ir í tilkynningu á vef Orku náttúr- unnar. Eins og greint var frá í Skessu- horni varð óhapp í Andakílsá vorið 2017. Við tæmingu á uppistöðulóni Andakílsárvirkjunnar um botnloka stíflunnar hlupu um 20 þúsund rúmmetrar af aur niður í ána, sem fyllti veiðihyli og hrygningarstaði laxins. Orka náttúrunnar lýsti síð- ar ábyrgð á tjóninu og hefur unn- ið að endurreisn lífríkis árinnar í samvinnu við Veiðifélag Andakíls- ár og sérfræðinga Hafrannsókna- stofnunar. Hafró lagði til á síðasta ári að veiði í ánni hæfist ekki að nýju fyrr en árið 2020 og að seiðum yrði sleppt árin 2019 og 2020 til að vinna á móti hruni laxastofnsins og styðja við endurreisn hans. Síðsumars 2017 var hluti þeirra laxa sem skiluðu sér aftur í ána tek- inn í klak. Seiðin sem sleppt var í ána 24. maí sl. eru hluti af því klaki. „Seiðin verða í sleppitjörnum í nokkrar vikur, þar til þau verða til- búin að fara í ána. Sumarið 2020 verður öðrum 30.000 seiðum sleppt til viðbótar í Andakílsá,“ segir á vef Orku náttúrunnar. kgk Seiðunum sleppt í Andakílsá. Ljósm. Orka náttúrunnar. Seiðum sleppt í Andakílsá Blíða í kortunum

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.