Skessuhorn - 12.06.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 20198
Skrikaði fótur
VESTURLAND: Óhapp varð í
sumarbústað í umdæmi lögregl-
unnar á Vesturlandi á sunnudag-
inn. Maður datt í tröppum bústað-
arins og rotaðist. Hann var illa átt-
aður eftir óhappið en kenndi sér
einskis meins. Kona á áttræðisaldri
datt í stiga við móttökustöð Into
the Glacier í Borgarfirði á mánu-
daginn. Konan fékk kúlu á höfuð-
ið, kenndi sér eymsla í handlegg
og talið var að hún væri mögulega
brotin eða brákuð. Var hún flutt
með sjúkrabíl á heilsugæsluna í
Borgarnesi til frekari skoðunar hjá
lækni. -kgk
Búfé á ferð
VESTURLAND: Ekið var á
lömb við Stafholtstungur í Borgar-
firði á mánudaginn. Eigandanum
var ekki gert viðvart. Hafði hann
því samband við lögreglu og til-
kynnti um málið. Þá var tilkynnt
um kindur og lömb á Snæfellsnes-
vegi við Borg á Mýrum í gærmorg-
un. Lögregla hvetur ökumenn til
að sýna aðgát við aksturinn og að
láta vita ef slys verða þar sem ekið
er á búfénað. -kgk
Reiðhjólaskoðun á
leikskóla
ÓLAFSVÍK: Lögreglan á Vestur-
landi framkvæmdi árvissa reiðhjóla-
skoðun með krökkunum á Leikskóla
Snæfellsbæjar í Ólafsvík á föstudags-
morgun. Þar könnuðu lögreglumenn
útbúnað hjólanna og hjálmanotkun
barnanna. „Allt reyndist í góðu lagi
og krakkarnir stóðu sig vel,“ segir í
dagbók lögreglunnar. -kgk
Dýrast í 10-11
LANDIÐ: Samkvæmt verðlags-
könnun ASÍ frá 3. júní síðastliðinum
er 10-11 dýrasta verslunin. Samkaup
strax og Krambúðin eru næst dýrast-
ar, en verð var kannað í ellefu versl-
unum. Super1 skipar sér í hóp lág-
vöruverðsverslana, með verð sem
eru í mörgum tilfellum sambærileg
við verð í Bónus og Krónunni, en þó
hærri í ákveðnum tilvikum. „Í 62 til-
fellum af 106 var yfir 81% munur á
hæsta og lægsta verði en í 45 af 105
tilfellum var yfir 100% verðmunur.
Hæsta verðið var oftast í 10-11 en
það lægsta oftast í Bónus. Iceland og
Hagkaup eru dýrustu verslanirnar að
minni hverfisverslunum undanskild-
um (10-11, Samkaup strax og Kram-
búðinni) en Iceland er aðeins oftar
með hærri verð en Hagkaup í þessari
könnun,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.
-kgk
Hægt að sækja um
nýliðunarstyrk
LANDIÐ: Matvælastofnun vekur at-
hygli á því að skila þarf inn umsókn-
um um nýliðunarstyrk í landbún-
aði á Bændatorginu eigi síðar en 1.
september næstkomandi. Markmið
stuðningsins er að aðstoða nýliða við
að hefja búskap og auðvelda ættliða-
skipti í búskap.Til að eiga rétt á ný-
liðunarstuðningi þarf fólk að uppfylla
kröfur reglugerðar. Þar er m.a. kveðið
á um að umsækjendur þurfi að vera á
aldrinum 18-40 ára á því ári sem ósk-
að er eftir stuðningi. Einnig að þeir
séu að kaupa búrekstur eða hlut í bú-
rekstri í fyrsta skipti, eða hafi leigt eða
keypt búrekstur innan þriggja ára frá
1. janúar á umsóknarárinu. „Stuðn-
ingur getur að hámarki numið 20%
af heildarfjárfestingarkostnaði á ári
og skulu framlög til einstakra nýliða
ekki vera hærri en níu milljónir króna
í heildarstuðning,“ segir í tilkynningu
MAST. -kgk
Fjárfestinga-
stuðningur í
sauðfjárrækt
LANDIÐ: Alls bárust 56
umsóknir um fjárfestinga-
stuðning í sauðfjárrækt vegna
framkvæmda á árinu 2019.
Af þessum umsóknum voru
55 samþykktar, en einni var
hafnað. Umsækjendur geta
nálgast svarbréf við sinni um-
sókn á Bændatorginu. Mark-
miðið með stuðningum er
að stuðla að bættum aðbún-
aði sauðfjár og hagkvæmari
búskaparháttum. Stuðning-
ur er veittur bæði til nýfram-
kvæmda og endurbóta eldri
bygginga. Heildarkostnaður
við framkvæmdir samkvæmt
umsóknunum er um 418
milljónir króna. Hæsti ein-
staki styrkurinn er áætlaður
rétt rúmar sex milljónir króna
en sá lægsti 155 þúsund krón-
ur. Umsóknir vegna nýfram-
kvæmda voru 16 en umsókn-
ir vegna endurbóta 40. Fjár-
hæð til úthlutunar að þessu
sinni er tæplega 60,6 milljón-
ir. „Skerða þurfti stuðnings-
greiðslur hlutfallslega á allar
samþykktar umsóknir í sam-
ræmi við 27. gr. reglugerðar-
innar og er styrkhlutfall til út-
hlutunar um 14,5% af heild-
arupphæð umsókna.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
1.-7. júní
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 13 bátar.
Heildarlöndun: 14.543 kg.
Mestur afli: Stapavík AK:
2.530 kg í þremur róðrum.
Arnarstapi:15 bátar.
Heildarlöndun: 25.722 kg.
Mestur afli: Heppinn AK:
3.250 kg í fjórum róðrum.
Grundarfjörður: 20 bátar.
Heildarlöndun: 232.969 kg.
Mestur afli: Bergey VE:
78.241 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 28 bátar.
Heildarlöndun: 81.618 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarna-
son SH: 25.677 kg í þremur
róðrum.
Rif: 22 bátar.
Heildarlöndun: 124.605 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
27.529 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 25 bátar.
Heildarlöndun: 89.854 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 6.169
kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Bergey VE - GRU: 78.241
kg. 6. júní.
2. Steinunn SF - GRU:
65.900 kg. 5. júní.
3. Hringur SH - GRU:
38.190 kg. 5. júní.
4. Örvar SH - RIF: 27.529
kg. 6. júní.
5. Hringur SH: 19.299 kg.
7. júní.
-kgk
„Í tilefni þess að nú liggur fyrir
fasteignamat fyrir næsta ár ætl-
ast Alþýðusamband Íslands til
þess að sveitarfélög standi við yf-
irlýsingar gefnar í tengslum við
kjarasamninga í apríl og lækki
álagsprósentur fasteignaskatts-
ins vegna ársins 2020. Þannig
má koma í veg fyrir að hækkun
fasteignamats skili sér sjálfkrafa
í skattahækkun til almennings í
gegnum hærri álagningu,“ segir
í tilkynningu frá ASÍ.
Þá segir í yfirlýsingu ASÍ að
launafólk á almennum vinnu-
markaði hafi gengið til samninga
og samþykkt þá með því fororði
að hið opinbera legðist á árarnar
með aðilum vinnumarkaðarins við
að halda aftur af útgjaldaaukningu
heimila landsins. „Stoðirnar undir
þeim samningum voru yfirlýsingar
stjórnvalda, þar með talin yfir-
lýsing Sambands íslenskra sveit-
arfélaga. Nú þegar hefur það
sveitarfélag þar sem fasteigna-
mat hækkar mest, Akranes, lýst
því yfir að skatthlutfallið verði
lækkað þannig að ekki komi til
skattahækkunar á heimili. Við
fögnum því og hvetjum önnur
sveitarfélög til að axla ábyrgð
og standa með launafólki til að
markmið nýgerðra kjarasamn-
inga um aukinn kaupmát, lága
verðbólgu og lægri vexti og nái
fram að ganga. ASÍ mun í fram-
haldinu fylgjast vel með gjald-
skrábreytingum sveitarfélag-
anna og viðbrögðum þeirra við
hækkun fasteignamats.“
mm
Á fimmtudag var staðfest sam-
komulag um allt að 71 milljóna
króna framlag fjarskiptasjóðs vegna
þriggja verkefna Neyðarlínunnar á
árinu 2019. Verkefninu eru í fyrsta
lagi bygging þriggja fjarskiptastaða
til að bæta farsímaþjónustu vestan
við Snæfellsjökul, kringum Kross-
holt á Barðaströnd og á hring-
veginum syðst á Holtavörðuheiði.
Annars vegar lagning ljósleiðara frá
Bláfellshálsi á Kili að Kerlingafjöll-
um og Hveravöllum samhliða lagn-
ingu rafstrengs. Í þriðja lagi lagn-
ing ljósleiðara milli Seyðisfjarð-
ar og Mjóafjarðar, sem fyrri hluti
hringtengingar á Austfjörðum.
Eignarhald verður eftir sem áður
hjá Öryggisfjarskiptum ehf., sem
er fyrirtæki í eigu Neyðarlínunnar
og íslenska ríkisins. „Fyllstu hag-
kvæmni verður gætt í ofantöldum
framkvæmdum með fjárframlagi
helstu hagsmunaaðila eins og við
á. Tryggt verður jafnframt að að-
gengi og gjald fyrir afnot af þessum
innviðum sé hagkvæmt og byggi
á jafnræði,“ segir í tilkynningu frá
Stjórnarráði Íslands.
Það voru þeir Sigurður Ingi jó-
hannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, Páll jóhann Páls-
son, formaður stjórnar fjarksipta-
sjóðs og Þórhallur Ólafsson, for-
stjóri Neyðarlínunnar, sem skrif-
uðu undir samkomulagið.
kgk/ Ljósm. Stjórnarráð Íslands.
Þjóðvegi 1 var lokað meðfram Akra-
fjalli í gærmorgun og verður vegur-
inn lokaður þangað til á morgun,
fimmtudaginn 13. júní, vegna mal-
bikunarframkvæmda. Byrjað var að
malbika á vegarkafla norðan við af-
leggjarann niður að Grundartanga.
Hjáleið verður um Akrafjallsveg,
framhjá Akranesi, á framkvæmda-
tímanum.
kgk
Vegaframkvæmdir á Fróðárheiði
hafa staðið yfir síðan í vetur en ver-
ið er að leggja nýjan veg frá Vala-
vatni að vegamótum útnesveg-
ar Ólafsvíkurmegin. Borgarverk
sér um framkvæmdina og að sögn
Valdimars Guðmundssonar verk-
efnastjóra gengur verkið vel og er
á áætlun. „Það gengur bara ótrú-
lega vel, það er sól og blíða og það
er ekkert að skemma,“ segir Valdi-
mar. „Við stefnum á að fyrsti áfangi
klárist næsta haust en við hlaupum
þó ekki umferð á hann þá. Verkið
á svo að klárast haustið 2020,“ seg-
ir hann.
arg Framkvæmdir á Fróðárheiði ganga vel. Ljósm. Snæfellsbær.
Sól og blíða við vegaframkvæmdir
á Fróðárheiði
Hringvegurinn lokaður við Akrafjall
Unnið að
malbikun.
Ljósm. úr safni.
Framlag til Neyðarlínu úr fjarskiptasjóði
Í gærmorgun var verið að reisa þetta heiðgula hús
á Akranesi. Bæjaryfirvöld þar hafa þegar ákveðið
að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta til að
koma til móts við húseigendur vegna hækkunar
fasteignamats.
ASÍ brýnir fyrir sveitarfélögum að
halda álögum í hófi