Skessuhorn - 12.06.2019, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 2019 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið hefur fellt úr gildi ákvörðun
Fiskistofu að svipta skipið Kleifa-
berg RE-70 leyfi til veiða í atvinnu-
skyni í 12 vikur vegna
meints brottkasts afla.
„Fiskistofa byggði
ákvörðun sína á grund-
velli þess sem sást
á fimm innsendum
myndskeiðum. Fjögur
myndskeiðanna voru
frá árinu 2008 og 2010 og eitt frá
árinu 2016. Í ljósi þess hve langur
tími leið frá meintum brotum, 8 –
10 ár, þar til kæranda var tilkynnt
um að málið væri til meðferðar hjá
Fiskistofu taldi ráðuneytið að það
væri í andstöðu við meðalhófsreglu
stjórnsýslulaga að beita viðurlögum
vegna meintra brota. Ráðuneytið
felldi því ákvörðun Fiskistofu úr
gildi að því leyti sem hún laut að
meintum brotum frá árinu 2008 og
2010.
Varðandi myndskeið frá árinu
2016, hafnar ráðuneyt-
ið túlkun Fiskistofu á
2. mgr. 2. gr. laga nr.
57/1996, um að það
teljist vera brottkast
þrátt fyrir að um sé að
ræða eignarspjöll af
hálfu áhafnarmeðlims.
Ráðuneytið úrskurðar að Fiskistofu
hafi borið að rannsaka betur hvort
um eignarspjöll hafi verið að ræða
fremur en brottkast. Ráðuneytið
taldi því að rannsóknaregla 10. gr.
stjórnsýslulaga hefði verið brot-
in og vísaði þessum hluta málsins
aftur til meðferðar hjá Fiskistofu,“
segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
mm
Káramenn töpuðu stórt þegar þeir
mættu Víði frá Garði í 2. deild karla
í knattspyrnu á föstudagskvöld.
Leikið var í Akraneshöllinni.
Eftir markalausan fyrri hál-
fleik brutu gestirnir ísinn á 59.
mínútu leiksins þegar Ari Steinn
Guðmundsson skoraði. Ari var
síðan aftur á ferðinni á 67. mínú-
tu og gestirnir komnir í vænlega
stöðu. Atli Freyr Ottesen Pálsson
bætti þriðja marki Víðis við á 80.
mínútu áður en Ari fullkomnaði
þrennu sína og 0-4 sigur Víðis á 84.
mínútu leiksins.
Kári situr í ellefta sæti deildarin-
nar með fimm stig eftir sex leiki,
jafn mörg og ÍR í sætinu fyrir ofan
en fimm stigum á eftir botnliði
Tindastóls.
Næsti leikur Kára er gegn Dalvík/
Reyni í Akraneshöllinni sunnudag-
inn 16. júní næstkomandi.
kgk
Fjórir leikmenn hafa samið við
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
undanfarna viku og munu leika
með meistaraflokki karla í 1. deild
karla næsta vetur. Þetta eru þeir
Kristján Örn Ómarsson, Almar
Örn Björnsson, Kristófer Gíslason
og Davíð Guðmundsson.
Kristján og Almar leika stöðu
framherja og endurnýjuðu báðir
samninga sína við Skallagrím.
Kristófer og Davíð leika stöðu
bakvarðar. Kristófer snýr aftur
í raðir Skallagríms eftir að hafa
leikið með Hamri frá áramótum
en Davíð lék með Fjölni á síðasta
tímabili.
Þeir Kristján, Almar, Kristófer
og Davíð eru allir uppaldir hjá
Skallagrími og gerðu allir tveggja
ára samning við liðið.
kgk/ Ljósm. Skallagrímur.
ÍA vann öruggan sigur á ÍR með
þremur mörkum gegn engu þeg-
ar liðin mættust í fjórðu umferð 1.
deildar kvenna í knattspyrnu. Leik-
ið var í Reykjavík á fimmtudags-
kvöld.
Skagkonur voru mun sterkari
meira og minna frá fyrstu mínútu
leiksins en ÍR-liðið átti erfitt upp-
dráttar. Skagakonur skapaði sér
nokkur ákjósanleg marktækifæri og
komust yfir á 22. mínútu. Þó ekki
eftir færi úr opnum leik heldur úr
vítaspyrnu. Aníta Sól Ágústsdóttir
steig á punktinn og skoraði.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
fyrri hálfleik en þau áttu eftir að
verða fleiri í þeim síðari. Fríða Hall-
dórsdóttir bætti öðru marki ÍA við
á 61. mínútu leiksins. Skagakonur
voru áfram sterkara lið vallarins allt
til leiksloka. Eva María jónsdóttir
innsiglaði síðan sigur ÍA með marki
á lokamínútu leiksins.
Skagakonur hafa átta stig í öðru
sæti deildarinnar. Þær eru fjórum
stigum á eftir toppliði Þróttar sem
hefur fullt hús eftir fjórar umferðir
en stigi á undan FH og Grindavík
í sætunum fyrir neðan. Næst leik-
ur ÍA miðvikudaginn 19. júní næst-
komandi, þegar liðið mætir Hauk-
um. Sá leikur fer fram á Akranes-
velli. kgk
Skallagrímsmenn máttu sætta sig
við 5-2 tap gegn Sindra þegar lið-
in mættust í 3. deild karla í knatt-
spyrnu á mánudagskvöld. Leikið
var á Höfn í Hornafirði.
Mate Paponja kom heima-
mönnum yfir á 18. mínútu leiks-
ins og Tómas Leó Ásgeirsson bætti
öðru marki við fyrir Sindra þrem-
ur mínútum síðar. Á 31. mínútu
varð Kristófer Daði Kristjánsson
fyrir því óláni að skora sjálfsmark
og minnka þar með muninn í 2-1.
En Sindramenn áttu eftir að bæta
tveimur mörkum við rétt fyrir hálf-
leikinn. Á 43. mínútu skoraði Ro-
bertas Fridgeimas og Kristinn just-
iniana Snjólfsson á 45. mínútu.
Staðan 4-1 fyrir Sindra þegar
flautað var til hálfleiks og staðan
ekki björguleg fyrir Borgnesinga.
Skúli Pálsson minnkaði muninn
fyrir Skallagrím á 74. mínútu en
Kristinn innsiglaði 5-2 sigur Sindra
með öðru marki sínu á 85. mínútu.
Skallagrímur situr í ellefta sæti
deildarinnar með sex stig eftir sex
leiki, jafn mörg stig og næstu tvö lið
fyrir ofan. Í næstu umferð mæta Borg-
nesingar toppliði KV. Sá leikur fer
fram í Borgarnesi á föstudaginn, 14.
júní. kgk/ Ljósm. úr safni/ sas.
Snæfell og Kormákur/Hvöt skildu
jöfn, 2-2, þegar liðin mættust
fjórðu umferð 4. deildar karla í
knattspyrnu á sunnudagskvöld.
Leikið var í Stykkishólmi.
Leikurinn byrjaði ekki gæfulega
fyrir Hólmara því strax á 12. mínú-
tu leiksins fengu gestirnir vítaspyr-
nu. Ingvi Rafn Ingvarsson steig á
punktinn og kom Kormáki/Hvöt
yfir. En þeir leiddu ekki nema gott
korter. Á 28. mínútu jafnaði julio
Fernandez De La Rosa metin fyrir
Snæfell og þannig var staðan þegar
flautað var til hálfleiks.
Metto Tuta kom Snæfelli síðan
yfir í 2-1 á 63. mínútu og þannig
virtist leikurinn ætla að enda allt
þar til á lokamínútunni að Ingvi
Rafn skoraði annað mark sitt og
tryggði gestunum dramatískt jaf-
ntefli.
Snæfell er í öðru sæti B riðils
með tíu stig eftir fjóra leiki, tveimur
stigum á eftir toppliði Hvíta Rid-
darans en þremur stigum á undan
Kormáki/Hvöt í sætinu fyrir neðan.
Næst leika Snæfellingar gegn KM á
útivelli á föstudaginn, 14. júní.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Snæfell.
Samið við fjóra leikmenn
Kári tapaði stórt
Ákvörðun Fiskistofu vegna
Kleifabergs felld úr gildi
Dramatík í Stykkishólmi
Sterkari frá fyrstu mínútu
Aníta Sól Ágústsdóttir skoraði fyrsta mark ÍA úr vítaspyrnu. Ljósm. úr safni/ gbh.
Tap á Hornafirði