Skessuhorn - 28.08.2019, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 2019 5
Lýðheilsugöngur í september á Akranesi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í
góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og
taka með sér vatn í brúsa. Börn skulu ávallt vera í fylgd með fullorðnum.
Miðvikudaginn 4. september
Skógarganga í Slögu, skógræktarsvæði Skógræktarfélags Akraness. Lagt af stað frá Slögu
(bílastæðinu við græna gáminn) við Akrafjall kl. 18:00 í Slögunni. Gangan um Slöguna tekur um
1 klukkustund þar sem spjallað verður um sögu skógræktar og möguleika hennar sem útivistar-
svæði. Fararstjóri er Katrín Leifsdóttir.
Miðvikudaginn 11. september
Strandganga. Gangan hefst kl. 18:00 við Leyni, nánar tiltekið við listaverkið „Himnaríki” sem
staðsett er rétt innan við Höfða. Gengið verður meðfram ströndinni að tjaldstæðinu við Kalmans-
vík. Einhverjir fróðleiksmolar gætu fylgt með á leiðinni og er gert ráð fyrir að gangan taki um 1½ - 2
klukkustundir. Gönguna leiða Anna Bjarnadóttir og Hallbera Jóhannesdóttir.
Miðvikudaginn 18. september
Rætur Akrafjalls og Reynisrétt. Gangan hefst kl. 18:00 og verður gengið frá bílastæðinu við Akrafjall til suðurs með
fjallinu og inn að Reynisrétt og til baka. Á leiðinni verða örnefni svæðisins skoðuð og saga fjallsins hvort sem hún tengist
ísaldarjöklinum, útilegumönnum eða frekum tröllskessum. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna og tekur hún um 1½ klukku-
stund. Gönguna leiðir Eydís Líndal.
Miðvikudaginn 25. september
Nánar auglýst síðar.
Fjölmennum og höfum gaman!
Nánari upplýsingar hér á www.lydheilsa.fi.is
Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn
frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar
leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa.
Ásmundur Einar Daðason, fé-
lags- og barnamálaráðherra, hef-
ur ákveðið að hrinda í fram-
kvæmd tillögum til að styrkja hús-
næðismarkaðinn á landsbyggð-
inni. Þess er vænst að fyrstu til-
lögur, þar á meðal að breyting-
ar á lögum og reglugerðum, til
að styrkja húsnæðismarkaðinn
á landsbyggðinni verði komnar
til framkvæmda á haustdögum.
„Landsbyggðin hefur setið eft-
ir þegar kemur að uppbyggingu í
húsnæðismálum. Í ljósi jákvæðra
athugasemda við tillögum að úr-
bótum munum við einhenda okk-
ur í koma fram með nýjar reglu-
gerðir og lagafrumvörp til að inn-
leiða þær að fullu enda um mikil-
vægt hagsmunamál að ræða,” seg-
ir Ásmundur Einar.
Jákvæðar umsagnir
hagsmunaaðila
tillögurnar voru upphaflega lagð-
ar fram í ríkisstjórn til kynningar í
lok maí en í lok júlí voru þær birt-
ar í samráðsgátt stjórnvalda þar
sem almenningi og öllum hags-
munaaðilum gafst tækifæri til að
gefa álit. Þær umsagnir sem bárust
eru allar jákvæðar í garð tillagn-
anna en einnig komu fram í þeim
nokkrar gagnlegar ábendingar um
þætti sem má skoða betur. Sam-
band íslenskra sveitarfélaga hrós-
aði tillögunum og nefndi sérstak-
lega þá jákvæðu nálgun sem unn-
ið hefur verið eftir í svokölluðu
landsbyggðarverkefni sem félags-
málaráðuneytið og Íbúðalána-
sjóður settu af stað á síðasta ári.
Nýr lánaflokkur og
byggðaframlag
tillögur ráðherrans byggja að
stóru leyti á upplýsingum sem hafa
komið í gegnum tilraunaverkefni
með sjö sveitarfélögum, en því var
ætlað að bregðast við alvarlegum
vanda í húsnæðismálum á lands-
byggðinni. Meðal reglugerðanna
sem ráðuneytið er nú með í vinnslu
má nefna heimild fyrir nýjum lána-
flokki hjá Íbúðalánasjóði til að auð-
velda sjóðnum að veita fjármögn-
un til verkefna á landsbyggðinni.
tryggja þurfi íbúum landsbyggðar-
innar aðgengi að fjármagni á sam-
bærilegum kjörum og fást á virkari
markaðssvæðum.
Þá gera tillögurnar ráð fyrir að
brugðist verði við skorti á hag-
kvæmu leiguhúsnæði með því
að gera sveitarfélögum á lands-
byggðinni kleift að byggja íbúðir
í almenna leigukerfinu með stofn-
framlagi ríkisins. Heimilt verði að
veita sérstakt byggðaframlag vegna
leiguíbúða á svæðum þar sem mis-
vægi ríkir á milli byggingarkostn-
aðar og markaðsverðs og þá verði
heimildir sveitarfélaga til þess að
leggja fram stofnframlög rýmkaðar.
mm
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, undirritaði á
mánudaginn breytingar á reglugerð
sem gerir það að verkum að sveitar-
félög, einstaklingar og óhagnaðar-
drifin félög á landsbyggðinni muni
fljótlega geta tekið lán hjá Íbúðal-
ánasjóði til húsnæðisuppbyggingar á
stöðum þar sem önnur fjármögnun
er ekki í boði. Undirritunin fór fram
á Drangsnesi við Steingrímsfjörð, en
Vestfirðir eru einmitt dæmi um land-
svæði þar sem markaðsbrestur veldur
því að ekki er byggt íbúðarhúsnæði
þrátt fyrir mikla eftirspurn.
Komið hefur fram að bæta þurfi
aðgengi að lánsfjármagni á lands-
byggðinni til að bregðast við þeim
húsnæðisvanda og stöðnun í hús-
byggingum sem þar ríkir. Fjármögn-
unin er háð því að um nýbyggingar
sé að ræða og er aðeins í boði á þeim
stöðum þar sem opinber húsnæð-
isáætlun, staðfest af Íbúðalánasjóði,
sýnir að skortur sé á húsnæði af því
tagi sem byggja á. Einnig er skilyrði
fyrir því að geta fengið áðurnefnd
lán að lántaki sýni fram á að hann fái
ekki lán hjá öðrum lánastofnunum
eða fái einungis lán á verulega hærri
kjörum en almennt bjóðast á öðrum
markaðssvæðum.
Í reglugerðinni kemur fram
að markmið lánveitinganna sé að
tryggja eðlilega fjölgun íbúða á þess-
um svæðum, aukið húsnæðisöryggi
óháð búsetu auk þess að stuðla að
heilbrigðum húsnæðismarkaði og
viðskiptum með íbúðarhúsnæði.
„Það liggur fyrir að á mörgum
stöðum hefur ekkert eða mjög lítið
verið byggt um árabil, þrátt fyrir að
eftirspurnin sé mikil og greiðslugeta
hjá íbúum svæðisins góð. Sveitarfé-
lögin hafa sérstaklega bent á skort á
viðeigandi leiguhúsnæði. Með reglu-
gerðarbreytingunni, sem ég undirrit-
aði í morgun, verður hægt að fá lán
til byggingar nýs húsnæðis á svæðum
sem glíma við þetta sérstaka misvægi
í byggingarkostnaði og markaðs-
verði. Það mun styðja við atvinnu-
uppbyggingu á mörgum stöðum og
hefur reynslan af sambærilegum lán-
veitingum á Norðurlöndum verið
góð. Ég hlakka til að sjá fólk komast
í viðeigandi húsnæði sem starfar og
býr á þeim svæðum sem lánaflokkur-
inn tekur til,“ sagði Ásmundur Einar
á mánudaginn. mm
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra.
Aðgerðir til að styðja við
húsnæðismál á landsbyggðinni
Ásmundur Einar Daðason undirritaði breytingar á reglugerð um lánaflokka
Íbúðalánasjóðs á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.
Sérstök lán til nýbygginga