Skessuhorn - 28.08.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 201916
Oddfellowreglan á Íslandi er grein
af bandarískri reglu sem stofnuð
var í Washington 26. apríl 1819.
Breski innflytjandinn thomas Wil-
dey, ásamt fjórum öðrum, stofnaði
fyrstu óháðu Oddfellowregluna
sem hafði það hlutverk að rækta
bræðrarlag og veita hjálparhönd
þar sem neyðin var stærst. Reglan
óx hratt, angi hennar fluttist yfir til
Evrópu og kom svo til Íslands frá
Danmörku rétt fyrir aldamótinn
1900. Eitt fyrsta verk danskra Odd-
fellowa á Íslandi var bygging gamla
Holdsveikaspítalans í Reykjavík.
Einkunnarorð Oddfellowreglunn-
ar eru; vinátta, kærleikur, sann-
leikur og hefur reglan það megin-
markmið að láta gott af sé leiða og
styrkja og rækta meðlimi hennar til
að bæta sjáfan sig og umhverfi sitt.
Út á við hefur Oddfellowreglan
verið þekktust fyrir að styrkja ýmis
mannúðar- og líknarmál.
Þriðja stúkan í haust
Á Vesturlandi eru tvær Oddfel-
lowstúkur starfandi; bræðrastúka
nr. 8 Egill og Rebekkustúka nr. 5
Ásgerður. Egill var stofnaður 11.
nóvember 1956 og voru þá fund-
ir m.a. haldnir í gamla Stúkuhús-
inu við Háteig. Meðlimir Egils
ákváðu fljótlega að ráðast í bygg-
ingu regluheimilis og byggðu þá
hús við Kirkjubraut 54-56 á Akra-
nesi, sem enn í dag er regluheim-
ili þeirra stúkna sem starfræktar eru
á Akranesi. Húsið var byggt í sjálf-
boðavinnu Oddfellowbræðra og
hjálpuðu eiginkonur þeirra með
ýmsum hætti, öfluðu m.a. fjár fyrir
framkvæmdirnar með því að leigja
kartöflugarða til að rækta kartöflur
sem þær svo seldu í verslunum á
Akranesi auk handverks sem þær
gerðu og seldu.
Þegar Oddfellowstúkan Egill var
að verða tíu ára ákváðu meðlimir
hennar að gefa sér Rebekkustúku í
afmælisgjöf, en Rebekkustúkur eru
fyrir konur. Stór hluti af eiginko-
nunum sem höfðu safnað fyrir byg-
gingu hússins gerðust þá meðlim-
ir í Rebekkustúkunni Ásgerði sem
stofnuð var 22. október 1966. Í dag
eru um 120 meðlimir í Ásgerði, þar
af um 80 virkir. Þar sem Ásgerður
er orðin þetta fjölmenn hefur ver-
ið lagt á ráðin með að stofna aðra
Rebekkustúku á Akranesi. Sú mun
heita Þórdís og verður hún form-
lega stofnuð 19. október næstko-
mandi á Akranesi. Verður hún þá
þriðja Oddfellowstúkan á Vestur-
landi. Í Agli eru um 80 bræður og
fer hægt fjölgandi, en þar af eru um
50 virkir. Að auki eru starfrækt tvö
önnur Oddfellowfélög á Akranesi,
búðirnar Borg og Brák.
Oddfellow í tvær aldir
Í ár eru því 200 ár liðin frá stofn-
un fyrrnefndrar Oddfellow-
reglu í Washington og af því til-
efni hitti blaðamaður Skessuhorns
þau Ragnhildi Ingu Aðalsteins-
dóttur og Ingþór Bergmann Þór-
hallsson að máli. Rætt var við þau
um starfsemi reglunnar og afmæl-
ið. Ragnhildur hefur verið í Odd-
fellow í sex ár og segir starfið hafa
gefið sér meira en hana óraði fyrir.
„Það er ekkert meira gefandi en að
gera þeim sem minna mega sín gott
og hver mínúta sem ég hef varið í
starfið innan Oddfellow hefur verið
þess virði. Ég veit alltaf að ég er að
gera gott með að taka þátt í starf-
inu, bæði fyrir aðra og fyrir sjálfa
mig því Oddfellow gefur líka mik-
ið af sér til okkar sjálfra. Síðan ég
gekk í Oddfellow hef ég gert hluti
sem mig óraði ekki fyrir að ég gæti
gert,“ segir Ragnhildur.
Ingþór gekk í Egil fyrir þrem
árum síðan. „Ég er alin upp á Odd-
fellowheimili því foreldrar mínir
hafa bæði starfað hér í áratugi. Ég
vissi alltaf að einn daginn yrði ég
Oddfellow. Ég hef yfirleitt haft
nóg á minni könnu en það sem
ýtti að lokum við mér var að faðir
minn var heiðraður fyrir 50 ára far-
sælt starf í reglunni. Það var eigi-
lega þá sem ég áttaði mig á að ef
ég vildi gera þetta með honum væri
tímabært að sækja um og ganga inn.
Það eina sem ég sé eftir er að hafa
ekki gert það miklu fyrr,“ segir In-
gþór og brosir.
Opið hús hjá
Oddfellowreglunni
Í tilefni stórafmælisins verður opið
hús í öllum regluheimilum á Íslandi
sunnudaginn 1. september og gefst
þá öllum kostur á að kíkja í heim-
sókn og fræðast um Oddfellowregl-
una. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir
fólk að koma og kynnast okkur að-
eins og því sem við stöndum fyrir
og erum að gera,“ segir Ragnhildur
og brosir. „Boðið verður upp á kaffi
og veitingar fyrir gesti sem koma
og þeim gefinn kostur á að spyrja út
í starfið. Af þessu tilefni hefur verið
útbúið kynningarefni frá Stórstúku
Oddfellowreglunar á Íslandi og
mun það vera aðgengilegt til frekari
upplýsinga um starfsemi reglunn-
ar á landsvísu. „Jafnvel gætu gestir
fengið að gægjast með öðru auganu
inn í hið allra heilagasta hjá okkur,“
bætir Ingþór við og brosir. „Í hverju
Oddfellowhúsi er sérstakur fundar-
salur sem aðeins er ætlaður okkur
Oddfellowum. Þar á fundum okkar
er farið eftir siðum og venjum sem
ná árhundruð aftur í tímann. Yfir
þessum fundum og venjum hvílir
áhveðinn leyndarhjúpur. Athafn-
ir okkar og fundir eru mjög form-
fastir og gerir það þá mjög þrosk-
andi, enda með ráðum gert að hafa
þetta svona. Fyrirkomulagið hjálp-
ar bræðrum og systrum að rækta
og styrkja sig sjálfa. Annað í okk-
ar starfi er í rauninni ekkert leynd-
armál. Það sem við svo gerum út á
við erum við almennt ekki að bera
á borð fyrir fólk þannig að vanalega
fer nokkuð hljótt um okkar störf,“
heldur Ingþór áfram.
Veglegir styrkir
á afmælisárinu
Eins og fyrr segir er eitt af mark-
miðum Oddfellowreglunnar að láta
gott af sér leiða til samfélagsins og
var tekin sú ákvörðun að veita enn
veglegri styrki í ár í tilefni afmæl-
isins. Síðustu tólf mánuði hefur
Oddfellowreglan á Íslandi styrkt
ýmis málefni um samtals 148 millj-
ónir króna. Egill og Ásgerður hafa
lagt sitt af mörkum. Stúkurnar
tóku höndum saman með Líkn-
arsjóði Oddfellowa og gáfu mjög
veglegar gjafir, eins og Skessu-
horn greindi frá í mars. síðastliðn-
um. „Við gáfum Heilbriðisstofnun
Vesturlands á Akranesi, Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Höfða á Akra-
nesi og Hjúkrunar- og dvalarheim-
ilinu Brákarhlíð í Borgarnesi veg-
legar gjafir sem munu nýtast þeim
vel. En það er markmið hverrar
stúku að styrkja m.a. sjúkrastofn-
anir í nærsamfélögum sinna sveit-
arfélaga. Þó að þessar stúkur séu
starfræktar á Akranesi koma fjöl-
margir meðlimir þeirra frá nær-
liggjandi svæðum og má þar helst
nefna Borgarnes og Borgarfjörð.
Einhverjir í okkar stúkum eru jafn-
vel búsettir í Reykjavík en hafa þá
jafnan einhverjar tengingar hing-
að,“ segir Ragnhildur og Ingþór
bætir við: „Þarna vinna stúkurnar
mjög náið saman. Þó svo að Egill sé
karlastúka og Ágerður kvennastúka
og fundir þeirra haldnir í sitthvoru
lagi gefst til að mynda hjónum færi
á að vinna að sameiginlegum mark-
miðum innan Oddfellowreglunn-
ar. Mjög mikið er um að hjón starfi
innan reglunnar. Það eykur skiln-
ing maka þíns á starfinu og ég geri
ráð fyrir að það styrki það um leið.“
Ragnhildur tekur undir það og tjáir
blaðamanni að maðurinn hennar sé
einmitt bróðir í Agli.
Afla fjár
innan reglunnar
Aðspurð segja þau meginmuninn
á Oddfellowreglunni og öðrum
mannúðar- og góðgerðarfélögum
vera þá formfestu sem er í kringum
störf reglunnar. „Engu í aðalmark-
miðum og boðskap Oddfellowregl-
unnar getur verið breytt með einu
pennastriki sem í starfi sem þessu
er gríðalegur styrkur,“ segir Ing-
þór. „Annað sem einkennir okk-
ur er hvernig við öflum fjár. Lang-
stærsti hluti þeirra fjármuna sem
Oddfellow safnar og gefur safnast
innan Oddfellowreglunnar sjálfr-
ar. Við leitum yfirleitt aldrei út fyr-
ir Oddfellowregluna eftir styrkjum
eða fjármunum heldur kemur þetta
allt meira og minna frá bræðrum og
systrum innan reglunnar. Við borg-
um veglegt árgjald auk þess sem við
erum með ýmsar fjáraflanir innan
okkar vébanda. Þú verður aldrei var
við félaga í Oddfellowreglunni að
selja varning úti á götu eða í gegn-
um síma til að safna fé fyrir verk-
efnum, við gerum þetta allt sjálf,“
bætir Ragnhildur við. „Sem dæmi
má nefna er að Oddfellowstúkurnar
funda aðra hverja viku og að fund-
um loknum er boðið upp á kaffi-
veitingar í fremri sal hússins sem
meðlimir hafa sjálfir útbúið og fyrir
þetta er greitt og rennur sá pening-
ur óskertur í þar til gerðan sjóð. Svo
eru haldnir ýmsar skemmtanir og
viðburðir innan okkar vébanda sem
hafa það ekki bara að markmiði að
skemmta fólki heldur er þetta oft-
ast gert til að það skilji eitthvað eft-
ir sig. Það sem gerir þetta líka svo
jákvætt í mínum huga er að maður
veit nákvæmlega hvert þessir fjár-
munir fara og maður getur jafnvel
haft áhrif á það sjálfur. Margt smátt
gerir eitt stórt,“ segir Ragnhildur.
Áhugasamir komi
á opið hús
„Við hvetjum alla til að koma við
hjá okkur 1. september og kynna
sér það sem við erum að gera, hvort
sem fólk er forvitið eða áhuga-
samt,“ segir Ingþór og Ragnhild-
ur tekur undir með honum. Spurð
hvert þeir sem eru áhugasmir að
ganga í Oddfellow geti leitað segja
þau fyrsta skref vera að leita til
einhvers sem nú þegar er í regl-
unni. „Það er ákveðið ferli að ger-
ast meðlimur Oddfellowreglunnar.
Þú þarft að hafa tillögumann innan
stúkunnar sem stingur upp á þér og
leiðir þig svo í gegnum sjálft inn-
gönguferlið. Þá er upplagt að koma
1. september og eiga samtal ef það
er áhugi fyrir hendi. „Sem stendur
er nokkur biðlisti eftir að komast
inn hjá okkur í Agli þannig að ferl-
ið getur tekið nokkurn tíma. Það er
líka bara partur af þessu öllu. Góð-
ir hlutir gerast hægt og að verða
sannur Oddfellow segja mér eldri
og reyndari menn að taki áratugi,“
segir Ingþór brosandi. „En biðin er
þess virði og ég mæli með að fólk
komi bara og kíki í heimsókn og
taki okkur tali.“
arg
Ingþór Bergmann Þórhallsson og Ragnhildur Inga Aðalsteinsdóttir.
Oddfellowreglan tvö hundruð ára um þessar mundir
Opið hús verður hjá reglunni á Akranesi næstkomandi sunnudag