Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 20192 Lögreglan á Vesturlandi segir allt- of mikið hafa verið um hraðakst- ur í umdæminu undanfarna mán- uði. Hefur lögregla verið við eftirlit á ómerkta hraðamyndavélabílnum og því geta allir átt von á að tekn- ar verði af þeim myndir og síðan send sekt í pósti, aki þeir of hratt. Þá er betra að flýta sér hægt. Suðaustan 8-14 m/s á fimmtudag og föstudag. Hvassara, 13-20 m/s á suðvesturhorninu í fyrramálið en hvassviðri með Suðurströndinni á föstudag. Þurrt að kalla fyrir norð- an en annars rigning með köflum á morgun en léttskýjað og skýjað en úrkomulítið á föstudag. Hiti 5 til 10 stig báða dagana. Hvöss suðaust- anátt og rigning á laugardag, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 6 til 11 stig. Suðaustanátt og milt veður á sunnudag. Rigning með köflum en úrkomulítið á Norðurlandi. Á mánudag er útlit fyrir hvassa aust- anátt og rigningu fyrir sunnan og austan. Annars staðar lítil úrkoma. Áfram milt veður. „Hversu oft borðar þú ís“ var spurningin á vef Skessuhorns í lið- inni viku. „Afar sjaldan“ lugu flest- ir til um, eða 43% en 24% sögðu „mánaðarlega“. „Vikulega eða sjaldnar“ sögðu 18%, „nokkr- um sinnum í viku“ sögðu 9% og „aldrei“ sögðu 4%. Fæstir borða ís daglega, aðeins 2% þeirra sem svöruðu. Í næstu viku er spurt: Hversu mikið er sorp flokkað á þínu heimili? Þórarinn Svavarsson og Hjördís Geirdal ætla að opna gistihús á Ið- unnarstaðum í Lundarreykjadal og kolefnisjafna allan reksturinn. Þessi framtakssömu og umhverfislega þenkjandi skógræktarhjón eru Vestlendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Sæþotu var saknað FAXAFL: Sjóbjörgunarsveit- um við Faxaflóa sem og stjórn- stöð Landhelgisgæslunnar bárust á mánudagskvöld boð um að hefja leit að konu á sæ- þotu, sem siglt hafði frá Akra- nesi og áleiðis til Reykjavíkur, án þess að skila sér á áfanga- stað. Samferðamaður kon- unnar var þá kominn í land en ekkert bólaði á konunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þeg- ar í stað send í loftið og þá hófu björgunarsveitir Lands- bjargar leit á sjó á harðbotna slöngubátum. Þyrlan tók á loft frá Reykjavík klukkan 21:25 en örfáum mínútum síðar skilaði konan sér til hafnar í Reykja- vík, heil á húfi. -mm Atli í leyfi HVALFJ.SV: Atli V. Hall- dórsson, sveitarstjórnarfulltrúi Íbúalistans í Hvalfjarðarsveit, er í tímabundnu leyfi frá störf- um í sveitarstjórn Hvalfjarðar- sveitar til 1. september 2020. Beiðni Atla var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þriðju- daginn 24. september. Íbúal- istinn á tvo fulltrúa í sveitar- stjórn. Ragna Ívarsdóttir er oddviti listans en fyrsti vara- maður er Sunneva Hlín Skúla- dóttir á Geitabergi. Ekki lá fyrir þegar blaðið fór í prent- un í gær hvort hún tæki sæti í sveitarstjórn eða annar fulltrúi listans. til stóð að Íbúalistinn fundaði í gærkvöldi. -arg Eldur í hesthúsi BORGARB: Eldur kom upp í hesthúsi við Eskiholt í Borg- arhreppi í gærmorgun, þriðju- daginn 1. október. Búið var að slökkva eldinn þegar við- bragðsaðilar komu á staðinn. Útlit er fyrir að kviknað hafi í út frá blásara. Engar skepn- ur voru í húsinu þegar eld- ur kom upp, þar sem verið er að vinna að endurbótum á því. Ekki varð heldur mikið eigna- tjón vegna brunans, að sögn lögreglu. -kgk Skólafólk, foreldrar og jafnvel einn- ig nemendur hafa áhyggjur af að aukin símanotkun dragi úr hæfni til að meðtaka það sem kennt er í skól- um landsins. Þeir trufli t.d. einbeit- ingu og vinnufrið, geti stuðlað að einelti og dragi því úr árangri. Þar sem um þverbak hefur keyrt hef- ur jafnvel verið brugðið á það ráð að banna notkun farsíma á skóla- tíma. Í Grunnskólanum í Borgar- Eftir töluverða fækkun erlendra ferðamanna á þessu ári gerir Hag- fræðideild Landsbankans ráð fyrir að erlendum ferðamönnum fjölgi um 3% árið 2020 og um 5% árið 2021 og verði þá hátt í 2,2 milljón- ir, litlu færri en metárið 2017. For- ystufólk rúmlega 40% fyrirtækja í ferðaþjónustu reiknar með sam- drætti í tekjum á þessu ári en er al- mennt frekar bjartsýnt á þróunina á næstu árum, samkvæmt könn- un sem gerð var fyrir Landsbank- ann og er hluti af ítarlegri grein- ingu Hagfræðideildar bankans á íslenskri ferðaþjónustu sem kynnt var á fimmtudaginn. „til lengri tíma erum við bjart- sýn á áframhaldandi vöxt í ferða- þjónustu hér á landi og gerum ráð fyrir að hann verði ívið meiri en í greininni á heimsvísu. Vöxturinn verður þó mun minni en við höfum átt að venjast á síðustu árum og mun hvíla á sjálfbærari grunni,“ segir dr. Daníel Svavarsson, forstöðumað- ur Hagfræðideildar Landsbank- ans vegna kynningar á skýrslunni. Skýrsluna í heild má finna á lands- bankinn.is mm Hlíðasmára 19, 2 hæð, 201 Kópavogur Sími: 534 9600 | Netfang: heyrn@heyrn.is Heyrðu umskiptin fáðu heyrnartæki til reynslu Löggiltur heyrnar- fræðingur SK ES SU H O R N 2 01 9 Nemendur settu sínar eigin símareglur nesi þurfti að skerpa á reglunum. Á unglingastigi skólans var í síðustu viku samþykkt að nemendur tækju sjálfir þátt í að semja reglur um far- símanotkun. Inga Margrét Skúladóttir og Birna Hlín Guðjónsdóttir, umsjón- arkennarar á unglingastigi, sögðu í samtali við Skessuhorn að samið hafi verið ungmennin um hvernig standa skyldi að því að setja regl- urnar. „Ákveðið var að blása til þjóðfundar. Fimm til sex krakk- ar voru í alls 18 hópum og skiluðu allir hópar 6-8 tillögum. Svo voru hóparnir stækkaðir og þeim fækk- að og að endingu voru fjórir hóp- ar sem skiluðu alls átta reglum sem samþykkt var að tækju þegar gildi. Engin regla fór í gegn sem ekki var samþykkt af heildinni. Þannig eru allir sáttir og við förum inn í næstu skólaviku með nýjar reglur og skýr- an ramma um farsímnotkun nem- enda og okkar starfsmanna einnig,“ sögðu þær Inga Margrét og Birna Hlín. Farsímareglur GBN eru eftirfarandi: Það er bannað að vera með 1. síma í tíma nema með leyfi kennara. Ef einhver er með síma án 2. leyfis og síminn er tekinn, fær hann símann afhentan í lok tímans. Ef hann er tek- inn tvisvar sama daginn þá fær hann símann í lok dags. Það má vera með síma í frí-3. mínútum og matartímum, en ekki í matsalnum. Ef nemandi á von á áríðandi 4. símtali fær viðkomandi leyfi hjá kennara til að svara. Það má hlusta á tónlist í tím-5. um með leyfi kennara og þá má vera með heyrnartól. Það er bannað að taka mynd-6. ir/myndbönd af öðrum án leyfis. Það er bannað að fikta í ann-7. arra manna tækjum. Starfsfólk skólans á að fylgja 8. sömu reglum. Reglur samdar af unglingunum í samstarfi við umsjónarkennara 24. september 2019. mm Nokkrir nemendur unglingastigs GBN samþykktu að sitja fyrir í sérstakri myndatöku vegna þessarar fréttar. Slakað á á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi. Spá fjölgun ferðamanna strax á næsta ári

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.