Skessuhorn - 02.10.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 20198
Slys og óhöpp í
umferðinni
VESTURLAND: Umferð-
arslys varð á Hítardalsvegi á
þriðjudagskvöld í síðustu viku.
Þar voru á ferðinni ferðamenn
sem misstu bílinn út af veg-
inum hægra megin og end-
uðu í skurði, en bíllinn var þó
á hjólunum. Þeir voru flutt-
ir með sjúkrabíl á heilsugæsl-
una í Borgarnesi til aðhlynn-
ingar og kranabíll fenginn til að
ná bílnum þeirra upp úr skurð-
inum. Bílvelta varð á Útnes-
vegi, vestan við Hamraaenda-
land, á föstudagsmorgun. Öku-
maður missti stjórn á bílnum
þegar kindur birtust á veginum
með þeim afleiðingum að hann
fór út af, valt tvær eða þrjár velt-
ur og endaði með framenda bif-
reiðarinnar ofan í skurði. tveir
voru í bílnum. Þeir kenndu sér
eymsla í hálsi en sluppu að öðru
leyti ómeiddir. tilkynnt var um
bílveltu á Vestfjarðavegi skammt
frá gatnamótum Grafningsveg-
ar rétt fyrir kl. 13:00 á föstu-
dag. Engin slys urðu á fólki.
Húsbíll fór út af Snæfellsnes-
vegi á sunnudagsmorgun. Hann
var við útsýnispall, var kominn
hálfur út af með þeim afleið-
ingum að bíllinn festist og ann-
að framhjólið var á lofti. Bíllinn
var farinn að halla en valt ekki.
Minniháttar árekstur varð á
Garðabraut á Akranesi á föstu-
dagskvöld. tveimur bílum var
ekið saman en engin slys urðu á
fólki. Þá varð minniháttar um-
ferðaróhapp við Nettó í Borg-
arnesi á sunnudagseftirmiðdag
þegar bifreið var ekið á kyrr-
stæðan mannlausan bíl.
-kgk
Með myndavél
á vaktinni
VESTURLAND: Umferð-
armál hafa verið mjög áber-
andi í verkefnum Lögreglunn-
ar á Vesturlandi undanfarna
viku. Hraðakstur er enn og
aftur mjög áberandi. Að sögn
Ásmundar Kr. Ásmundsson-
ar yfirlögregluþjóns hefur lög-
regla verið við eftirlit á ómerkta
myndavélabílnum víða um
umdæmið nánast upp á hvern
dag frá byrjun septembermán-
aðar. Verður áfram haft uppi
viðvarandi eftirlit með umferð
um umdæmið allt og vegfar-
endur geta vænst þess að tekin
verði mynd af þeim hvar sem
er og hvenær sem er, aki þeir
of hratt. Sem dæmi nefnir Ás-
mundur að síðastliðinn föstu-
dag hafi lögregla verið við eftir-
lit á myndavélabílnum á Innnes-
vegi fyrir neðan Grundaskóla á
Akranesi, þar sem leyfilegur há-
markshraði er 30 km/klst. Á
aðeins hálfri klukkustund fóru
30 ökutæki um götuna og sex
ökumenn voru kærðir fyrir of
hraðan akstur. Á miðvikudag-
inn í síðustu viku milli 12:00 og
13:00 vaktaði lögregla Aðalgötu
í Stykkishólmi, þar sem leyfi-
legur hámarkshraði er 35 km/
klst. 66 ökutæki voru hraða-
mæld og þrír ökumenn kærð-
ir. Sá sem hraðast ók var á 53
km/klst. Seinna sama dag, milli
13:30 og 14:30 vaktaði lögregla
Grundargötu í Grundarfirði.
Þar er leyfilegur hámarkshraði
35 km/klst. Milli 13:30 og 14:30
fóru 30 ökutæki um en enginn
var kærður. -kgk
Fullur á reiðhjóli
AKRANES: Hjólreiðamaður féll
af reiðhjóli sínu við Brekkubraut
á Akranesi rétt fyrir kl. 18 á laug-
ardag. Fékk maðurinn höfuðhögg
við fallið og talið er að hann hafi
rotast. Auk þess hlaut hann skurð
á höfði, blóðnasir og sprungna vör.
Grunur leikur á um að hjólreiða-
maðurinn hafi verið ölvaður þeg-
ar slysið varð. Lögregla vill benda
fólki á að óheimilt er að stýra reið-
hjóli undir áhrifum áfengis. Í fyrsta
lagi er það hættulegt og þar að auki
liggja sektir við athæfinu. -kgk
Gabbbrot
AKRANES: Lögreglunni á Vest-
urlandi barst símtal kl. 5:00 að-
fararnótt fimmtudags þar sem til-
kynnt var að verið væri að brjót-
ast inn í Frístundamiðstöðina við
Garðavöll á Akranesi. Lögregla
fór á staðinn og fann engin merki
um innbrot né tilraun til innbrots.
talið er að um gabb hafi verið
að ræða og er það til rannsóknar.
Lögregla lítur alvarlegum augum
þegar tíma viðbragðsaðila er sóað
og verður málið því kannað. -kgk
Ók fullur í
veg fyrir bíl
HVALFJSV: Umferðarslys varð á
Vesturlandsvegi til móts við Lyng-
holt í Hvalfjarðarsveit laust fyrir
kl. 6 að morgni fimmtudags. Öku-
maður missti þá stjórn á bifreið
sinni með kerru í eftirdragi, fór yfir
á öfugan vegarhelming í veg fyr-
ir annan bíl. Varð árekstur bílanna
og fyrri bíllinn hafnaði úti í skurði.
Ökumaður bílsins sem ekið var yfir
á öfugan vegarhelming er grunað-
ur um ölvun við akstur. Var hann
handtekinn á vettvangi, sýni tekin
af honum og hann látinn sofa úr
sér á stöðinni og rætt við hann að
svo búnu. Engin slys urðu á fólki
og segir lögregla mildi að ekki hafi
farið verr. Málið er til rannsókn-
ar. Annar ökumaður var stöðvað-
ur á Vesturlandsvegi rétt sunn-
an við Hólabrú á föstudagskvöld,
grunaður um akstur undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna. Próf sem
framkvæmt var á staðnum gaf það
til kynna. Viðkomandi var hand-
tekinn, fluttur á stöðina og gert að
gefa sýni. Málið er til rannsóknar.
-kgk
Grunsamlegur
maður á ferð
AKRANS: tilkynnt var um
grunsamlega menn á ferð við
Hlynskóga á Akranesi um miðj-
an dag síðasta miðvikudag. Íbúi
hafði samband við lögreglu vegna
þessa og sagði frá því að ókunn-
ugur maður á bláum Volvo hefði
bankað á dyrnar á heimili hans.
Dóttir mannsins fór til dyra og
þá kvaðst maðurinn hafa áhuga á
að byggja hús í nágrenninu. Föð-
ur stúlkunnar fannst þetta hljóma
grunsamlega og hafði samband
við lögreglu. Lögregla segir já-
kvætt að fólk sé á varðbergi og
hvetur íbúa til að hafa samband ef
þeir verða varir við hegðun sem
því finnst grunsamleg. -kgk
Brotist inn
í Kaffi Kjós
KJÓSARHR: Lögreglan á Vest-
urlandi fór og aðstoðaði kollega
sína frá höfuðborgarsvæðinu þeg-
ar tilkynnt var um innbrot í Kaffi
Kjós kl. 4 aðfararnótt fimmtu-
dags. Gekk lögregla fram á bíl og
fólk við kaffihúsið, sem grunað er
um að hafa brotist þar inn. Málið
er til rannsóknar hjá Lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. -kgk
Fiskeldi hefur vaxið mikið á und-
anförnum árum og verði vöxtur á
næstu árum, einkum í laxeldi, jafn-
mikill og útlit er fyrir mun hann
hafa teljandi áhrif í þjóðhagslegu
samhengi. Það sem af er ári er
vöxtur í útflutningsverðmæti milli
ára um 60%. Útflutningsverðmæti
fiskeldis verður líklega hátt í 20
milljarðar króna í ár eða sem nem-
ur ríflega 1% af heildarútflutningi.
Á þessu ári hafa samanlagðar fram-
leiðsluheimildir í fiskeldi nær tvö-
faldast og eru nú um 85 þúsund
tonn á ári miðað við útgefin starfs-
leyfi Umhverfisstofnunar. Það tek-
ur rekstraraðila um tvö ár að kom-
ast í fulla framleiðslugetu. Mestallt
fiskeldi hér á landi er annars vegar
á Vestfjörðum og hins vegar á Aust-
fjörðum og skiptist tiltölulega jafnt
milli þessara tveggja landsvæða.
„Útlit er fyrir að fiskeldi tvöfald-
ist á næstu tveimur árum. Útflutn-
ingsverðmæti fiskeldis gæti orðið
um 40 milljarðar króna árið 2021
eða sem nemur hátt í 3% af heild-
arútflutningi. Líklegt er að mikill
vöxtur haldi áfram í einhver ár eftir
2021,“ segir í tilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu.
mm
Rússneska fyrirtækið Polar Sea+
hefur fest kaup á saltfiskvinnslu frá
Skaganum 3X á Akranesi og verð-
ur hún sett upp í Murmansk. Áætl-
að er að uppsetning hefjist snemma
næsta árs. Búnaðurinn er hannað-
ur með gæði og góða meðhöndlun
hráefnis að leiðarljósi, þar sem fyr-
irtækið ætlar sér að flytja út hágæða
vöru á kröfuharða markaði í suð-
ur Evrópu, Suður Ameríku og Afr-
íku. „Þetta verður stærsta saltfisk-
framleiðsla sinnar tegundar í norð-
ur Atlantshafi með framleiðslugetu
allt að 50 tonn á dag,“ segir Pétur
Jakob Pétursson, sölustjóri Skagans
3X í Rússlandi í tilkynningu. „Pol-
ar Sea+ hafði samband við okkur í
leit sinni að nútíma lausnum sem
myndu standa undir þessari miklu
framleiðslugetu sem um ræðir.
okkar svar var að hanna heildar-
lausn þar sem gæði og gott flæði
framleiðslunnar væru í aðalhlut-
verki,“ segir Pétur. Lausnin saman-
stendur af RoteX Supreme uppþýð-
ingarkerfi, snyrtilínu, pækilblönd-
un og þurrsöltun. „Kerfið uppfyll-
ir nútíma kröfur þegar horft er til
vinnuaðstæðna og öryggis starfs-
manna. Þá sparar það orku og vatn
og stuðlar að aukinni nýtingu.“
mm
Síðastliðinn föstudag lá ocean Dia-
mond við landfestar í Grundarfjarð-
arhöfn. Þetta var síðasta skemmti-
ferðaskipið sem þar hefur viðkomu
á þessu ári en töluverð aukning var
á skipakomum 2019. Reiknað er
með að ekki dragi úr komum þess-
ara skipa næstu árin enda aðstæður
fyrir þau til fyrirmyndar í Grund-
arfirði.
tfk
Verulega hlýtt var um vestanvert
landið miðað við árstíma síðast-
liðinn fimmtudag. Mesti dagshit-
inn mældist á Bláfeldi í Staðar-
sveit á Snæfellsnesi, eða 20 gráður.
Í Hraunsmúla var 19,5 gráður og á
Þingvöllum 19,1 gráða.
mm/ Ljósm. Mats Wibe Lund.
Ocean Diamond séð út
um kýraugað á listaverki
Árna Johnsen sem er á
höfninni til minningar um
Edduslysið.
Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins
Mikill vöxtur í fiskeldi
Selja búnað til rússneskrar saltfiskvinnslu
Sumarhiti í
septemberlok