Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Page 12

Skessuhorn - 02.10.2019, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201912 Ofsaakstur og eftirför VESTURLAND: Laust eftir kl. 11 að morgni þriðjudagsins 24. september var Lögregl- unni á Vesturlandi tilkynnt um hvíta BMW bifreið á ofsa- hraða undir Hafnarfjalli á suð- urleið. Lögregla fór af stað og mætti umræddum bíl, sem þá var ekið á meira en 200 km/ klst. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók inn í Hvalfjarðargöng. Lögreglumenn frá Akranesi veittu honum eftirför á tveim- ur bílum og kallað var eftir að- stoð sjúkrabíls. Haft var sam- band við Lögregluna á höfuð- borgarsvæðinu. Vesturlands- vegi var lokað í Mosfellsbæ, sett upp naglamotta í Álafoss- kvosinni og setið fyrir öku- manninum. Þegar hann ók yfir mottuna sprakk á fram- hjóli bílsins en ökumaður- inn stöðvaði ekki fyrr en hann var kominn að hringtorginu við Langatanga í Mosfellsbæ. Maðurinn reyndist vera í ann- arlegu ástandi og réðst á lög- reglu þegar hann steig út úr bílnum. Hann var yfirbugaður og handtekinn. Að sögn lög- reglu er mikil mildi að mað- urinn hafi ekki valdið stórslysi með ofsaakstrinum. Málið er til rannsóknar. -kgk Aflatölur fyrir Vesturland 21. - 27. september Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 47.714 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 40.764 kg í sex róðrum. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 13.622 kg. Mestur afli: Kvika SH: 13.622 kg í þremur róðrum. Grundarfjörður: 6 bátar. Heildarlöndun: 218.223 kg. Mestur afli: Hringur SH: 62.434 kg í einni löndun. Ólafsvík: 13 bátar. Heildarlöndun: 154.332 kg. Mestur afli: tryggvi Eðvarðs SH: 31.137 kg í fimm róðr- um. Rif: 9 bátar. Heildarlöndun: 168.250 kg. Mestur afli: Örvar SH: 32.868 kg í einni löndun. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 69.576 kg. Mestur afli: Leynri SH: 41.762 kg í fimm róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 62.434 kg. 25. september. 2. Sigurborg SH - GRU: 54.876 kg. 25. september. 3. Farsæll SH - GRU: 48.609 kg. 23. september. 4. Helgi SH - GRU: 43.658 kg. 22. september. 5. Örvar SH - RIF: 32.868 kg. 24. september. -kgk VARMADÆLUR ÓDÝRARI LEIÐ TIL HÚSHITUNAR Hagkvæmar í rekstri | Endingargóðar Umhverfisvænar | Hljóðlátar GASTEC | VAGNHÖFÐA 9 | REYKJAVÍK OPIÐ 8:00 - 18:00 ALLA VIRKA DAGA Hafðu samband, við erum sérfræðingar í varmadælum. WWW.GASTEC.IS | SÍMI 587-7000 VARMADÆLUR HENTA SÉR- STAK LEGA VEL Á „KÖLDUM“ SVÆÐUM LANDSINS, ÞAR SEM EKKI ER HITAVEITA! FUJITSU varmadælurnar eru þekktar fyrir gæði og þeim fylgir 5 ára ábyrgð. Síðastliðinn föstudag voru opn- uð tilboð í lengingu Norðurgarðs í Grundarfjarðarhöfn. Það er Hafn- arsjóður Grundarfjarðarbæjar sem óskaði eftir tilboðum í verkið en í því felst m.a. 90 m langur bermu- garður, rekstur 122 stálþilsplatna, steypa ankerisplatna auk uppsetn- ingar staga og festinga, jarðvinna og festing polla og fríholta. Bygg- ing bermugarðs skal lokið eigi síðar en 15. janúar 2020, en verkinu á að fullu að vera lokið 1. júní 2020. Kostnaðaráætlun í verkið hljóðaði upp á 246 milljónir króna og var tilboð Borgarverks nánast á pari við það, eða 0,6% yfir áætluðum kost- naði. Fjögur önnur tilboð bárust og voru þau frá 12-69% yfir áætlun. mm 2. flokkur karla hjá Knattspyrnu- félagi ÍA mætir FCI Levadia tallin á Akranesvelli klukkan 16:00 í dag, miðvikudaginn 2. október. Er þetta fyrsta umferð liðanna í UEFA Yo- uth League en liðin mætast aftur í Eistlandi miðvikudaginn 23. októ- ber næstkomandi. Verð á leikinn er 500 krónur og rennur ágóði beint í ferðasjóð hjá 2. flokki karla en þeir stefna á að kaupa sér ferðagalla og hafa til þess fengið aðstoð fyrirtækja í bænum. Áhugamir eru hvattir til að sýna strákunum stuðning og mæta á Akranesvöll í dag. arg Vegagerðin óskaði nýverið eftir tilboðum í hleðslu 180 metra sjó- varnar við Breiðina á Akranesi. til- boð voru opnuð fimmtudaginn 26. september. Helstu magntölur eru útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.000 m3 og upptekt og endurröð- un grjóts um 1.000 m3 og skal verk- inu vera lokið 1. mars 2020. Kostn- aðaráætlun í verkið hljóðaði upp á um 17,5 milljónir króna. Sjö tilboð bárust og átti Þróttur ehf. á Akra- nesi lægsta boð 16.845.000 krónur, en Borgarverk var 30 þúsund krón- um hærra. Áberandi hæsta boð kom hins vegar frá Work North ehf .sem bauð 238,3 milljónir króna. arg Þróttur átti lægsta boð í sjóvörn við Breiðina Borgarverk bauð lægst í Norðurgarð í Grundarfirði ÍA tekur á móti FCI Levadia Tallin í dag

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.