Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Síða 20

Skessuhorn - 02.10.2019, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201920 Vegna framkvæmda sem stað- ið hafa yfir við Grunnskólann í Borgarnesi var ákveðið að upphaf skólaárs unglingastigs færi fram í húsi Menntaskóla Borgarfjarð- ar. Hefðbundið skólastarf var brotið upp fyrstu fjórar vikurn- ar í haust. Farið var af stað með stórt þemaverkefni sem nefnist Draumalandið, en það samþætt- ir námsgreinar sem kenndar eru. Nemendum 8. til 10. bekkjar var þannig skipt upp í hópa sem unnu að því að skapa ímyndað draumaland. Verkefninu lauk svo formlega síðastliðinn miðviku- dag. Var foreldrum boðið á sýn- ingu í húsi Menntaskólans þar sem afrakstur verkefnavinnunn- ar var kynntur. tíðindamaður Skessuhorns fékk að fljóta með. Námsgreinum fléttað inn í verkefnið Umsjónarkennarar í elsta stigi skólans eru m.a. Birna Hlín Guðjónsdóttir og Inga Margrét Skúladóttir. „Þegar búið var að ákveða að ráðast í þetta verk- efni heimsóttum við vini okk- ar í Grundaskóla á Akranesi, en þar hefur sambærileg verkefna- vinna farið fram. Við nýttum reynslu þeirra og útfærðum að okkar þörfum og í raun má segja að þau hafi ýtt okkur út í djúpu laugina,“ sögðu þær Inga Mar- grét og Birna Hlín í samtali við blaðamann. „Allir kennarar voru meðvitaðir um að hefðbundið nám myndi ekki fara fram á með- an á verkefninu stóð, en engu að síður voru þær námsgreinar sem kenndar eru fléttaðar inn í verk- efnavinnuna og átti það jafnt við um íslensku, dönsku, ensku, samfélagsfræði, náttúrufræði og lífsleikni, auk stærðfræðinnar. Svona verkefnamiðað nám fellur vel að hæfniviðmiðum aðalnáms- skrár.“ Þær Inga Margrét og Birna Hlín segja að á fyrstu dögum skólaársins hafi hópurinn kom- ið sér fyrir í húsnæði Mennta- skólans og byrjað á hópefli og samhristingi. „Nemendur átt- unda bekkjar eru að byrja á ung- lingastigi og höfðu síðasta vet- ur auk þess haldið til í Gamla mjólkursamlaginu vegna fram- kvæmdanna við byggingu grunn- skólans. Það reyndist þessum krökkum gríðarlega mikilvægt að fá að samlagast eldri nemendum í gegnum draumalandsverkefnið og nú smella allir saman sem ein flís,“ segja þær. Ungmennin sem blaðamaður ræddi við staðfestu það og lýstu ánægju sinni með að þessi hundrað manna hópur er miklu samheldnari nú en hann var áður en verkefnið hófst. Nemendur unglingastigs GBN hönnuðu draumalandið Hefðbundið nám brotið upp í fjórar vikur Nemendur unglingastigs Grunnskóla Borgarness ásamt kennurum sínum. Nemendur kynntu verkefnin síðastliðinn miðvikudag fyrir foreldrum sínum og öðrum gestum. Aron, Signý María, Andrea Ína og Andri létu vel af verkefninu um Draumalandið.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.