Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 2 oKtóBER 2019 23
Laugardaginn 28. september komu tvö ný skip
til heimahafnar í Grundarfirði. Þarna voru út-
gerðirnar FISK Seafood og Soffanías Cecils-
son að endurnýja Farsæl og Sigurborgu en nýju
skipin munu bera sömu nöfn. Farsæll SH 30 og
Sigurborg SH 12 verða gerð út frá Grundarfirði
og er þeim fyrst og fremst ætlað að sinna því
sem útgerðin vill kalla „fjölmiðaskrap“ en það
eru veiðar á sólkola, skarkola, steinbít og fleiri
tegundum af fiskimiðunum.
Í tilefni skipakomunnar var efnt til kaffisam-
sætis í húsakynnum Soffaníasar Cecilssonar eft-
ir að gestir höfðu skoðað skipin við heimkom-
una. „Þetta eru tveir smáir en knáir trollbátar
sem vonandi munu gera okkur kleift að sækja á
fleiri mið en áður, fjölga aflategundum og auka
um leið rekstraröryggið. Það er ekki síður mik-
ilvægt að aðbúnaður áhafnanna batnar til muna
og öryggið um borð tekur miklum framförum
frá því sem var á eldri bátunum,“ segir Frið-
björn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK
Seafood, í samtali við Skessuhorn.
Ýmsar framkvæmdir hafa verið gerðar og
endurbætur á húsakynnum Soffaníasar Cecils-
sonar síðan FISK Seafood festi kaup á fyrirtæk-
inu. Síðustu misserin hafa iðnaðarmenn verið
við störf en búið er að endurnýja mötuneyti,
klæða og einangra tvær stórar hliðar á húsinu,
skipta um sextíu til sjötíu glugga, endurnýja
tækjakost og svo núna endurnýja tvö skip fyrir-
tækisins.
tfk
Þórólfur Gíslason óskar Guðmundir Snorrasyni, skipstjóra Farsæls, til hamingju.
Tvö ný skip til Grundarfjarðar
Farsæll SH 30 lagstur að bryggju en fjær má sjá Sigurborgu SH 12 sigla til hafnar. Sigurborg SH 12 í innsiglingunni.
Þónokkur fjöldi fólks tók á móti skipunum.
Farsæll SH 30 lagðist fyrst að bryggju.
Ómar Þorleifsson, skipstjóri á Sigurborgu SH 12, í brúnni.
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar og Guðmundur Snorrason,
skipstjóri á Farsæl SH 30.
Glæsilegar veitingar voru í húsakynnum Soffaníasar Cecils-
sonar.
Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður FISK Seafood, hélt
stutta tölu um tildrög kaupanna.
FISK Seafood veitti Dvalarheimilinu Fellaskjóli einnar millj-
ónar króna styrk í tilefni dagsins en Hildur Sæmundsdóttir
veitti styrknum viðtöku frá Þórólfi Gíslasyni.
Friðbjörn Ásbjörnsson ásamt eiginkonu og syni, Björg
Ágústsdóttir og Þórólfur Gíslason.