Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Side 24

Skessuhorn - 02.10.2019, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201924 Hugmyndin „Beljur í búð“ stóð uppi sem sigurvegari í Plastaþoni Umhverfisstofnunar og Plastlauss septembers sem fram fór um liðna helgi. Sjö teymi unnu að lausnum á plastvandanum en fjölbreyttur hóp- ur fólks tók þátt í viðburðinum. Hugmyndin á bak við Beljur í búð er sú að setja upp sjálfsafgreiðslu- vélar fyrir mjólkurvörur í verslun- um þannig að kaupandinn geti dælt vörunni sjálfur í fjölnota umbúðir. teymið samanstóð af tveimur lista- konum, tveimur nemum úr tækni- skólanum, verkfræðingi frá Eflu og markaðsstjóra Krónunnar. teymis- meðlimir eru þær Dröfn Sveins- dóttir, Gríma Katrín ólafsdótt- ir, Hafdís Bjarnadóttir, Móeiður Helgadóttir, Lára Kristín Þorvalds- dóttir og Hjördís Elsa Ásgeirsdótt- ir. Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að stór þáttur í sigri lausn- arinnar væri sú staðreynd að hún gæti vel orðið að veruleika í náinni framtíð. Dómnefnd skipuðu Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda–stjóri Landverndar, Einar Bárðarson, framkvæmdarstjóri Votlendissjóðs og Sigríður Heimisdóttir, iðnhönn- uður hjá IKEA. mm Sú breyting mun eiga sér stað um næstu áramót að sá hluti núverandi Kaldadalsvegar (550) sem liggur frá Þingvallavegi (36) að vegamótum við Uxahryggjaveg (52) mun verða hluti Uxahryggjavegar. Þann- ig mun vegur 52 liggja frá Þing- vallavegi alla leið að Borgarfjarð- arbraut (50). Sjá kort. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá Vegagerð- inni. Þar segir jafnframt að þessi breyting taki gildi frá og með 1. janúar nk. „töluverður munur er á vegtegundum á Kaldadalsvegi og þykir eðlilegra að þessi syðri hluti hans tilheyri Uxahryggjavegi. Þessi breyting er m.a. hugsuð fyrir ferða- menn, á leið á milli Suðurlands og Vesturlands, sem slysast þannig síð- ur inn á veg sem hentar ekki öllum farartækjum jafn vel.“ mm Um síðustu helgi komu þessar fimm stelpur saman, en þær eru fimm ættliðir í beinan kvenlegg og búa allar í Borgarnesi. Á myndinni eru Guðrún Jónsdóttir, sem er 94 ára, Jóhanna Þórðardóttir 73 ára, Guðrún ólafsdóttir 50 ára, Jóhanna Marín Björnsdóttir 26 ára og Sonja Björk Viktorsdóttir sem er alveg að verða þriggja ára. mm/ Ljósm. bbþ Bókaútgáfan Sæmund- ur hefur gefið út bók- ina Kindasögur eftir þá Guðjón Ragnar Jónas- son og Aðalstein Ey- þórsson. Í kynningu segir: „Íslenska sauð- kindin er harðger, úr- ræðagóð og ævintýra- gjörn, það vita all- ir sem hana þekkja. Í þessari bók eru rifj- aðar upp sögur af ís- lenskum kindum að fornu og nýju, afrekum þeirra, uppátækjum og viðureign- um við óblíða náttúru og kapps- fulla smala. Við kynn- umst meðal annars Herdísarvíkur-Surtlu, Eyvindarmúla-Flekku, villifé í tálkna, hrútn- um Hösmaga í Drang- ey og forystusauðnum Eitli. Kindasögur eru sérstök grein íslenskr- ar sagnaskemmtunar sem á sér langa sögu en lifir enn góðu lífi – rétt eins og sauðkindin sjálf. Höfundar bókar- innar eru áhugamenn um sögur og sauðfé.“ mm Breyting á vegnúmeri Kindasögur í bók Fimm ætt- liðir í beinan kvenlegg Á myndinni eru Sigríður Heimisdóttir, Auður Önnu Magnúsdóttir og Einar Bárðarson, meðlimir dómnefndar og Móeiður Helgadóttir, Hafdís Bjarnadóttir og Lára Kristín Þorvaldsdóttir, í sigurteymi Plastaþons 2019. Beljur í búð verðlaunaverkefni Plastaþons hausthátíð SKALLAGRÍMS 2019 Latibær og leikir – Ómótstæðilegt kótilettukvöld – Stórdansleikur með Bland Laugardaginn 5. október verður Hausthátíð Skallagríms haldin við og í Hjálmakletti í Borgarnesi og það verður brjálað stuð allan daginn! Kl. 13:00 Latibær, leikir, grín og glens. Keppni í óhefðbundnum íþróttagreinum – verður sett heimsmet í stígvélakasti eða slökkvibíladrætti? Solla stirða og Halla hrekkjusvín verða á staðnum og kannski eiri íbúar Latabæjar. Uppskeruhátíð yngri okka Skallagríms. Kl. 16:00 Ball með Bland. Brjálað stuð fyrir börnin og ölskylduna með Hljómsveitinni Bland. Kl. 20:00 Kótilettukvöld. Kótilettur í raspi með rauðkáli, rabbarasultu og grænum baunum. Gísli Einarsson stjórnar veislunni, söngur, grín og glens. Ómótstæðilegt. Aðgangseyrir kr. 4000. Miðapantanir í síma 848 7819. Kl. 23:30 Stórdansleikur með hljómsveitinni Bland. Aldurstakmark 18 ár. Aðgangseyrir kr. 3000. Allir ofboðslega velkomnir og ef þú tekur allan pakkann, kótilettur og ball, þá kostar þetta bara 6000 þúsund kall Knattspyrnudeild Skallagríms

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.