Skessuhorn - 02.10.2019, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201928
Mt: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað þykir þér best
við haustið?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Höfða á Akranesi)
Ágúst Þórðarson
Gott veður og litadýrðin sem
kemur.
Ósk Jóhannesdóttir
Fallegu haustlitirnir.
Guðrún Daníelsdóttir
Fallegt umhverfi og hvað trén
verða falleg.
Katrín Ólafsdóttir
Þegar snjórinn kemur.
Ólöf Guðlaug Sigurðardóttir
Það er margt gott við haustið.
Síðastliðinn laugardag var haldið í íþróttahús-
inu í ólafsvík fyrsta Crossfit mótið sem fram
fer í Snæfellsbæ. Voru keppendur 48 talsins.
Keppt var í þremur flokkum; skölun kvenna, RX
kvenna og RX karla og voru fjórir einstaklingar í
hverju liði. Það voru fimm lið úr Snæfellsbæ sem
tóku þátt, fjögur lið úr Grundarfirði og þrjú lið
úr Stykkishólmi.
af
Minni veiði var í allflestum laxveiði-
ám Vesturlands á nýliðnu tíma-
bili. Hlýindi og þurrkar ráða þar
mestu, enda var sáralítil úrkoma frá
vori og fram á haust, þegar himn-
arnir opnuðust. Skessuhorn tek-
ur hér stöðuna í nokkrum ám, en
lokatölur liggja ekki allsstaðar fyrir.
Veiði lauk víðast hvar mánudaginn
30. september, en veiði heldur eitt-
hvað áfram í þeim ám sem byggja á
seiðasleppingum.
Við byrjum yfirferð okkar í
Saurbæ í Dölum. Hvolsá og Stað-
arhólsá gáfu 161 lax og yfir 400
bleikjur. Það verður að teljast nokk-
uð góð veiði miðað við aðstæður.
Flekkudalsá endaði í 60 löx-
um þetta sumarið, að sögn Ingólfs
Helgasonar.
Krossá endaði í 51 laxi. trausti
Bjarnason á Á segir þetta búið að
vera erfitt sumar og svo endaði áin í
flóðum eftir stórrigningar um dag-
inn.
Búðardalsá endaði í 98 löxum
þetta sumarið.
Síðustu tölur sem við heyrðum úr
Laxá í Dölum hljóðuðu upp á ríf-
lega 700 laxa, en veiðin tók góðan
kipp undir það síðasta. Veiðin tók
sömuleiðis kipp í Fáskrúð í Dölum.
Lokatölur liggja þó ekki fyrir.
Haukadalsá gaf aðeins 220 laxa
en töluvert var að fiski í henni, bar-
asta ekki í tökustuði.
„Hörðudalsá endaði í 40 löxum
og líklega um 160 bleikjum,“ sagði
Níels Sigurður olgeirsson á Selja-
landi í Hörðudal.
Straumfjarðará endaði í 169 löx-
um og Haffjarðará í 651 laxi. Síð-
ustu tölur úr Hítará segja 203 laxar
en enginn sást við veiðar í ánni um
síðustu helgi og veiðum líklega lok-
ið. Þá hefur Álftá verið að gefa eitt-
hvað og veiðimenn voru í henni um
síðustu helgi. Mjög lítið hefur verið
veitt í henni í sumar en áin þó skil-
að einhverjum fiskum.
Langá á Mýrum endaði í 659 löx-
um en þrátt fyrir góðar rigningar í
haust jókst veiðin ekki umtalsvert.
Gljúfurá í Borgarfirði tók kipp
þegar rigndi og veiðimenn fengu
vel í soðið. Síðustu tölur voru í
kringum160 laxar en hún var vatns-
laus stóran hluta sumars eins og
flestar veiðiár á svæðinu.
Norðurá endaði í 557 löxum sem
líklega er lélegasta veiði nokkru
sinni.
Þverá er að enda þetta sumarið en
síðasta tala þaðan hljóða upp á 1132
laxa. Brennan endaði í 188 löxum
og hellingi af birtingi. „Við fengum
góða veiði undir það síðasta; fimm
laxa og nokkra flotta sjóbirtinga,“
sagði veiðimaður sem var í Brenn-
unni. Straumarnir gáfu aðeins 56
laxa en töluvert af silungi.
Lokatala úr Flókadalsá í Borg-
arfirði er 233 laxar þetta sumarið
og Reykjadalsá endaði í rétt yfir
hundrað löxum. Þar veiddist bolta-
fiskur á mánudaginn. Bændur hafa
sjálfir annast sölu veiðileyfa í sum-
ar, slitu í júní samstarfi við SVFK.
Síðustu tölur úr Grímsá eru í
kringum 700 laxar. Þokkalegt mið-
að við veðrið, en Grímsánni helst
vel á vatni í þurrkasumrum.
Leirá hefur verið góð núna eft-
ir að rigndi hressilega. Stefán Sig-
urðsson og Harpa Þórðardóttir,
leigutakar árinnar, fengu tíu sjó-
birtinga og einn lax einn sunnu-
dagseftirmiðdag fyrir stuttu.
Laxá í Leirársveit lokaði fyrr
en mátti vegna þessa hve lítið var
af laxi í ánni. Lokatölur þaðan eru
348 laxar sem eru svipað lokatölum
í Laxá í Kjós. gb
Meistaraflokkur kvenna í blaki í
Grundarfirði hóf tímabilið með
heimaleik fimmtudaginn 26. sept-
ember síðastliðinn. Liðið vann sér
þátttökurétt í næstefstu deild eftir
góðan árangur í annarri deildinni
í fyrra. UMFG tók á móti b-liði
Aftureldingar í sínum fyrsta leik
og fyrsta hrinan var jöfn og spenn-
andi. Liðin skiptust á að taka for-
ystu í hrinunni en að endingu fór
svo að Afturelding vann hrinuna
25-20. Eitthvað virtist þetta hafa
slegið heimamenn út af laginu því
gestirnir unnu aðra hrinu 25-14 og
voru því komnar í 2-0 og með væn-
lega stöðu. Þriðja hrinan var jafn-
ari en fór svo að lokum að gestirn-
ir kláruðu hana 25-19 og unnu því
leikinn 3-0 og fóru með öll stigin
suður. Næsti leikur UMFG verður
laugardaginn 5. október í íþrótta-
húsi Grundarfjarðar á móti liði
Vestra frá Ísafirði.
tfk
Keppt í Crossfit á Snæfellnesi
Tímabilið hafið hjá blakliði Grundarfjarðar
Miklu minni veiði einkennir liðið laxveiðisumar
Sigurður Bragi Sigurðsson með fal-
legan hæng úr Reykjadalsá í Borgar-
firði.
Ómar Óskarsson með flottan lax úr Miðá í Dölum. Ljósm. gg.