Læknablaðið - jan. 2019, Blaðsíða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gunnhildurarna@gmail.com
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
2050
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
16.900,- m. vsk.
Lausasala
1690,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2019/105 3
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Gerður Gröndal
Fyrstu helgina í desember var haldið XXIII. þing
Félags íslenskra lyflækna í Hörpu. Að undir-
búningnum stóðu stjórn lyflækna, þau Davíð O.
Arnar formaður, Gerður Gröndal ritari, Sigurð-
ur Ólafsson gjaldkeri, Signý Vala Sveinsdóttir,
Runólfur Pálsson, Friðbjörn Sigurðsson og Örv-
ar Gunnarson meðstjórnendur og auk þeirra
sérnámslæknar í lyflækningum, þær Bára Dís
Benediktsdóttir og Theódóra Rún Baldvinsdóttir.
Bylgja Kjærnested hjúkrunarfræðingur sá um
skipulagningu fyrirlestra á sviði hjúkrunar.
Þau nýmæli voru að vikuna á undan var vika
lyflækninga með hádegisfyrirlestrum á Landspít-
ala Hringbraut og í Fossvogi, og fræðslufyrirlestr-
um í Petersen svítunni föstudagskvöldið viku
fyrir þingið. Læknablaðið gaf út fylgirit með ágrip-
um og dagskrá þingsins, og er efnið varðveitt á
heimasíðu blaðsins: laeknabladid.is/fylgirit/
Meðal þess sem þar bar hæst var málþing um
uppbyggingu starfsferils í lyflækningum, þar
sem Rita Redberg læknir og aðalritstjóri JAMA
Internal Medicine, fjallaði um mikilvægi vísinda-
rannsókna og hvernig best er að bera sig að við
að birta vísindagreinar, og listina að flétta saman
klínískt starf og vísindavinnu.
Um árabil hefur þingið verið helsti vettvangur
fyrir kynningu á niðurstöðum vísindarann-
sókna, margir af okkar fremstu vísindamönnum í
læknisfræði hafa þreytt frumraun sína á þingum
félagsins. Verðlaun voru veitt úr Verðlaunasjóði í
læknisfræði fyrir bestu veggspjöld og fyrirlestra
unglæknis og læknanema. Sjóðurinn var stofn-
aður af Þórði Harðarsyni prófessor emeritus í
lyflækningum og Árna Kristinssyni, fyrrum
yfirlækni hjartalækninga. Bára Dís Benedikts-
dóttir, deildarlæknir á lyflækningasviði, og
Hulda Hrund Björnsdóttir, læknanemi, hlutu
verðlaunin að þessu sinni. Í dómnefndinni voru
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, sem var formaður,
Margrét Birna Andrésdóttir og Karl Andersen.
Verkefni Báru heitir „Notkun erfðaupp-
lýsinga til að draga úr hættu á skyndidauða.
Stökkbreytingar sem valda heilkenni lengingar
á QT-bili á Íslandi”. Samstarfsaðilar hennar eru
Garðar Sveinbjörnsson, Hilma Hólm, Daníel F.
Guðbjartsson, Davíð O. Arnar og Kári Stefánsson.
Verkefni Huldu Hrundar heitir „Krabbamein
verður helsta dánarorsök einstaklinga með T2M.
Áhorfsrannsókn á sænskri landsvísu á 457.473
einstaklingum með T2DM borið saman við
2.287.365 pöruð viðmið”. Samstarfsaðilar henn-
ar eru Araz Rawshani, Aidin Rawshani, Stefan
Franzén, Ann-Maríe Svensson, Naveed Sattar,
Hrafnhildur Soffía Guðbjörnsdóttir.
Auk sigurvegaranna þóttu nokkur rann-
sóknarverkefni skara fram úr: Gísli Þór Axelsson,
læknanemi: „Tengsl millivefslungnabreytinga
við heilsutengda þætti“, Unnar Óli Ólafsson,
læknanemi: „Gildi MB-LATER skilmerkja til
að spá fyrir um árangur rafvendinga vegna
gáttatifs“, Rebekka Sigrún Lynch, deildarlækn-
ir: „Lifetime exposure to violence and other
life stressors and hair cortisol concentration in
women“, Kristján Torfi Örnólfsson, unglæknir:
„Lýðgrunduð rannsókn á svörun sjúklinga með
primary biliary cholangitis við meðferð með
ursodeoxycholsýru“.
Einn af hápunktum þingsins var þegar fjórir
læknar voru gerðir að heiðursfélögum í Félagi
íslenskra lyflækna, þeir Ari Jóhannesson, Magni
Jónsson, Magnús Böðvarsson og Uggi Agnarsson,
allir framúrskarandi lyflæknar, virkir á þingum
félagsins og hafa gefið mikið af sér til lyflækn-
inga á sínum starfsferli.
Þinginu lauk með kvöldverði og dansleik enda
félagsleg efling mikilvæg fyrir þá sem starfa inn-
an lyflækninga.
Myndina tók Davíð O. Arnar og á henni eru frá vinstri Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, Karl Andersen, Bára Dís Benediktsdóttir,
Hulda Hrund Björnsdóttir, Margrét B. Andrésdóttir og Þórður Harðarson.
XXIII. þing Félags íslenskra lyflækna