Læknablaðið - jan. 2019, Blaðsíða 12
12 LÆKNAblaðið 2019/105
vörur er erfitt að meta öryggi og áhrif við notkun á meðgöngu á
fóstur.19,20,21
Hér á landi hefur lyfjanotkun á meðgöngu lítið verið rannsök-
uð og er þetta að því er best er vitað fyrsta rannsóknin á viðhorfi
barnshafandi kvenna til lyfjanotkunar á meðgöngu og því hvernig
þær afla sér upplýsinga um lyfjanotkun á meðgöngu. Megintil-
gangur þessarar rannsóknar var að kanna notkun lyfja, vítamína,
steinefna, fitusýra og náttúruvara meðal barnshafandi kvenna á
fyrstu 20 vikum meðgöngu ásamt viðhorfi þeirra til notkunar-
innar. Þá var einnig skoðað hvar þungaðar konur leituðu helst að
upplýsingum um örugga lyfjanotkun á meðgöngu.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var framskyggn og framkvæmd á fósturgreiningar-
deild Landspítala á tímabilinu janúar til apríl 2017. Rannsókn-
arhópinn mynduðu barnshafandi konur, 18 ára og eldri, sem
mættu í venjubundna ómskoðun við 20 vikur. Þeim var boðin
þátttaka í rannsókninni af ljósmóður í kjölfar ómskoðunar. Úti-
lokaðar frá þátttöku voru konur með skerta vitræna getu, þær sem
ekki töluðu íslensku og þær konur sem fengu óeðlilega niðurstöðu
úr ómskoðun. Spurningalisti var lagður fyrir konurnar í formi
viðtals við rannsakanda í kjölfar ómskoðunar í viðtalsherbergi á
fósturgreiningardeild Landspítala. Spurt var um notkun lyfja á
meðgöngu, ástæðu fyrir notkuninni, tíðni notkunar og hver hefði
ávísað lyfinu eða ráðlagt notkun. Sömu spurninga var einnig spurt
varðandi notkun vítamína, steinefna, fitusýra og náttúruvara.
Upplýsingaveitur sem þungaðar konur nýttu sér við öflun upp-
lýsinga um lyfjanotkun á meðgöngu voru sömuleiðis kannaðar.
Þá var kannað hvort konan hefði hætt inntöku lyfs vegna með-
göngunnar og jafnframt hver hefði ráðlagt slíkt, heilbrigðisstarfs-
maður eða annar. Að lokum var viðhorf til lyfjanotkunar og nátt-
úruvara skoðað. Eftirfarandi bakgrunnsupplýsinga var aflað frá
þátttakendum: aldur, fjöldi fæðinga fyrir núverandi meðgöngu,
menntunarstig, hjúskaparstaða, póstnúmer búsetu og hvort þær
störfuðu sem heilbrigðisstarfsmenn eða hefðu menntun á því
sviði. Spurningalistinn var hannaður og þróaður af rannsakend-
um en þó voru í rannsókninni 5 spurningar varðandi viðhorf til
lyfjanotkunar á meðgöngu sem áttu sér fyrirmynd í erlendri rann-
sókn.8,9
Við öryggisflokkun lyfja á meðgöngu var notað sænska ör-
yggisflokkunarkerfið sem finna má í sænsku sérlyfjaskránni FASS
(Farmaceutiska Specialiteter i Sverige). Þar eru öryggisflokkarnir
fjórir talsins, A, B, C og D en flokkur B greinist frekar í B1, B2 og
B3. Lyf í flokki A eru talin örugg á meðgöngu. Lyf í flokki B eru
einnig talin örugg á meðgöngu en öryggisupplýsingar um notkun
þeirra meðal þungaðra kvenna er takmörkuð að einhverju leyti. Í
flokki C eru lyf sem talin eru geta valdið einhvers konar neikvæð-
um áhrifum á fósturþroska og lyf í flokki D ætti að forðast að nota
á meðgöngu.22
Í rannsókninni töldust öll vítamín, steinefni og fitusýrur til
fæðubótarefna. Í flokk náttúruvara fóru allar vörur sem unnar eru
úr jurtum, dýrum og örverum. Náttúruvörur eru oftast extrökt,
flóknar blöndur margra innihaldsefna. Ef vara innihélt bæði
vítamín eða steinefni ásamt öðrum efnum sem ekki teljast vítamín
eða steinefni flokkaðist varan sem náttúruvara.
Við úrvinnslu gagna var notað tölfræðiforritið Statistical
Package for the Social Sciences (SPSS) 23.0 og Microsoft Excel
14.5.7. Eftirfarandi tölfræðiaðferðum var beitt við úrvinnslu gagna:
lýsandi tölfræði, einhliða fervikagreining (one way ANOVA) með
Tukey post hoc eftirprófun, kí-kvaðrat próf (χ2) og Fishers próf.
R A N N S Ó K N
Tafla I. Bakgrunnsupplýsingar þátttakenda.
Bakgrunnsþáttur Heildarfjöldi n=213 (%)
Aldur
< 21 árs
21-25 ára
26-30 ára
31-35 ára
36-40 ára
>40 ára
5 (2)
32 (15)
85 (40)
61 (29)
27 (13)
3 (1)
Fjöldi fæðinga fyrir núverandi meðgöngu
Engin fæðing
1 fæðing
2 fæðingar
3 fæðingar
4 fæðingar
5 fæðingar
98 (46)
76 (36)
29 (14)
7 (3)
2 (1)
1 (1)
Búseta á höfuðborgarsvæði
Já
Nei
192 (90)
21 (10)
Hjúskaparstaða
Einhleyp
Í sambandi (ekki í sambúð)
Í sambúð
Gift
10 (5)
24 (11)
131 (62)
48 (22)
Menntun
Grunnskóli
Stúdentspróf
Iðnmenntun
Háskóli
35 (16)
40 (19)
19 (9)
119 (56)
Heilbrigðismenntun og/eða heilbrigðisstarfsmaður
Já
Nei
52 (24)
161 (76)
Mynd 1. Fjöldi lyfja (n) sem hver kona tók á fyrstu 20 vikum meðgöngu. Fjöldi kvenna
er sýndur sem hlutfall (%) .
0
5
10
15
20
25
0
10
20
30
40
50
60
70
80
Ekkert Eitt Tvö Þrjú Fjögur Fimm Sex Sjö Átta
eða
fleiri
Fjöldi lyfja (n)
11
21
22
20
13
7
3
2
1
Hlutfall kvenna (%)