Læknablaðið - jan. 2019, Blaðsíða 48
48 LÆKNAblaðið 2019/105
Magnús Jóhannsson
prófessor emeritus
magjoh@hi.is
Á þeim árum sem um ræðir voru gengnar
í gildi reglur um skoðun, heilbrigðisvottun
og stimplun á kjöti í sláturhúsum landsins.
Þetta eftirlit var ætlað dýralæknum en var
erfitt í framkvæmd vegna þess að dýra-
læknar voru mjög fáir í landinu og hér-
aðslæknar vildu fæstir bæta þessu á sig. Á
einhverju árabili voru læknanemar fengnir
til þessara starfa, við haustslátrun, eftir að
hafa fengið leiðsögn hjá Páli A. Pálssyni
yfirdýralækni á Keldum.
Ég réð mig á Patreksfjörð og fór þangað
með flugi í september. Það fyrsta sem kom
á óvart var að ekkert sláturhús var á Pat-
reksfirði heldur á Tálknafirði, í Örlygshöfn
og á Barðaströnd en ég bjó lengst af á Patró.
Þetta urðu því löng ferðalög og langir
vinnudagar en ég fékk far á milli staða með
hinum og þessum. Á þeim rúma mánuði
sem ég var við störf þarna fyrir vestan
gerðist margt eftirminnilegt og ætla ég í
þessum pistli að rifja upp sumt af því, með-
al annars var mér tvisvar hótað meiðingum
eða lífláti.
Eitt sinn fékk ég far frá Barðaströnd út
á Patró með Manga í Botni (Botn er innst í
Patreksfirði). Það var komið fram í október
og á Kleifaheiðinni var frost og snjófjúk. Á
leiðinni upp á heiðina spurði Mangi mig
um álit mitt á segularmböndum sem voru
í tísku á þeim árum og áttu að lækna allt
og rúmlega það. Ég hafði mjög ákveðnar
skoðanir á þessum armböndum og hélt
langa ræðu um hvers kyns húmbúkk og
blekkingar þetta væru og einungis væri
verið að plata peninga út úr sakleysingj-
um. Á meðan ég var að rasa út þagði
Mangi en sýndi mér allt í einu að hann var
með tvö armbönd á öðrum úlnlið og þrjú
á hinum. Hann tjáði mér að armböndin
hefðu bjargað bæði sér og mömmu sinni
og svona stráklingar og hrokagikkir að
sunnan eins og ég gætu bara étið það sem
úti frýs. Því næst stöðvaði hann bílinn,
uppi á miðri Kleifaheiði, og skipaði mér að
fara út í frostið og hríðarmugguna. Ég var
Raunir læknanema við kjötskoðun árið 1965
Ö L D U N G A D E I L D
Stjórn Öldungadeildar
Kristófer Þorleifsson formaður
Jóhannes M. Gunnarsson ritari
Guðmundur Viggósson gjaldkeri
Halldóra Ólafsdóttir
Margrét Georgsdóttir
Öldungaráð
Hörður Alfreðsson
Magnús B. Einarson
Reynir Þorsteinsson
Snorri Ingimarsson
Þórarinn E. Sveinsson
Umsjón síðu
Magnús Jóhannsson
Karlmenn við púns-
drykkju um 1910, senni-
lega á Patreksfirði segir
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur sem á þessa mynd.
Talið f.v. Jón Markússon
Snæbjörnsson (1868-
1941), Müller (skrif-
stofumaður hjá PAÓ),
sennilega Markús Snæ-
björnsson (1832-1921)
kaupmaður á Geirseyri,
Guðmundur Björnsson
sýslumaður á Patreksfirði
og Pétur A. Ólafsson
(1870-1949) athafnamað-
ur. Sá síðastnefndi tók
myndina um hálfri öld
áður en Magnús Jóhanns-
son skoðaði kjötið fyrir
vestan.