Læknablaðið - jan. 2019, Síða 7
LÆKNAblaðið 2019/105 7
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Laufey
Tryggvadóttir
klínískur prófessor
í læknadeild HÍ
framkvæmdastjóri Krabba-
meinsskrár Krabbameins-
félags Íslands
laufeyt@krabb.is
Það eru ekki nýjar fréttir að áfengisneysla auki
áhættu á tilteknum krabbameinum. Lengi hefur
verið vitað að samband er milli áfengisneyslu og
krabbameina í munnholi, koki, barkakýli, vélinda,
lifur, brjóstum, ristli og endaþarmi.1,2 Samkvæmt
flokkun Alþjóðakrabbameinsrannsóknarstofnunar-
innar (IARC) tilheyra áfengi, etanól og acetaldehýð
Flokki 1 en í honum eru staðfestir krabbameinsvaldar
í mönnum.
Samt sem áður brá mörgum við niðurstöður
stórrar rannsóknar er birtist í Lancet í ágústmánuði
síðastliðnum.3 Þar kom fram að þótt hófleg neysla
(undir einu glasi á dag) geti lækkað áhættu á blóð-
þurrð í hjarta og á sykursýki hjá konum geri aukin
áhætta á krabbameinum og fleiri sjúkdómum meira
en að vega upp þau áhrif. Samkvæmt þessu hefur öll
áfengisneysla heilsufarsáhættu í för með sér og goð-
sögnin um að hóflega drukkið vín bæti heilsuna rið-
ar til falls. Fyrri leiðbeiningar hafa jafnvel mælt með
einu til tveimur glösum á dag en höfundar reikna
með að niðurstöðurnar muni valda breytingum þar
á.
Rannsóknin beindi sjónum bæði að umfangi
áfengisneyslu og áhrifum hennar á dauðsföll og
glötuð góð æviár. Í rannsóknarþýðinu voru alls 28
milljónir manna í 195 löndum og svæðum. Með safn-
greiningu voru metin tengsl áfengismagns við 23
heilsutengdar útkomur og leiðrétt var fyrir bjögun
sem kemur vegna þess að í viðmiðahópnum, það er
hópnum sem ekki drekkur neitt áfengi, eru einstak-
lingar sem eru hættir áfengisneyslu af heilsufars-
ástæðum. Fram kom að þriðjungur jarðarbúa neytir
áfengis, að rekja má þrjár milljónir dauðsfalla árlega
til drykkjunnar og að krabbamein eru þar í efsta
sæti hjá einstaklingum yfir 50 ára. Athyglisvert er
að neyslan eykst með batnandi efnahag og þjóðfé-
lagsstöðu og þess vegna er spáð auknum heilsufars-
vandamálum í löndum sem eru að bæta efnahags-
stöðu sína, ef ekki verður brugðist við.
Í annarri nýrri rannsókn sem gerð var af nor-
rænum krabbameinsskrám var áætlað hve mikið af
nýgengi krabbameina megi rekja til áfengisneyslu í
Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.4
Miðað við óbreyttar drykkjuvenjur má búast við
samtals 83.000 áfengistengdum tilfellum næstu 30
árin og munu flest þessara meina greinast í ristli,
endaþarmi og brjóstum. Óraunhæft er að reikna
með að hægt sé að fyrirbyggja öll þessi tilfelli, það er
að öll áfengisneysla hverfi á næstunni, en með helm-
ings fækkun í hópi þeirra sem drekka eitt til fjögur
glös á dag mætti koma í veg fyrir 21.500 tilfelli.
Þess ber að geta að þótt áfengi valdi mörgum
krabbameinum í stóra samhenginu er það aðeins
einn af mörgum áhættuþáttum. Þannig skýrir áfeng-
isneysla til dæmis aðeins um 5% brjóstakrabbameina
og 3% ristil- og endaþarmskrabbameina á Norður-
löndunum.4 Því er útilokað að segja til um það hvers
vegna hver og einn fær sitt krabbamein, enda erum
við langt frá því að skilja til hlítar hið flókna samspil
erfða og umhverfis sem þar er að verki.
Sýnt hefur verið fram á að þegar sala áfengis er
gefin frjáls eykst neyslan til muna. Rannsökuð voru
áhrif þess að aflétta ríkiseinokun í Svíþjóð, ef salan
færðist annars vegar yfir í einkareknar sérverslan-
ir með áfengi og hins vegar í almennar verslanir.5
Samkvæmt nýlega uppfærðum niðurstöðum myndi
drykkjan aukast um 20% ef sérverslanir tækju við,
en um 31% ef það yrðu almennar verslanir.6 Áfeng-
istengd dauðsföll vegna krabbameina myndu aukast
um 18% (sérverslanir) og 29% (almennar verslanir).
Í september 2016 kynnti velferðarráðuneytið
stefnu í lýðheilsu og forvörnum í riti sem nefnist:
„Lýðheilsustefna og aðgerðaáætlun sem stuðlar að
heilsueflandi samfélagi – með sérstakri áherslu á börn
og ungmenni að 18 ára aldri.“ Eitt af markmiðunum
var að draga úr áfengis- og vímuefnaneyslu meðal
ungs fólks og í því sambandi var bent á að „...meðal
virkra aðgerða er stýring á áfengisneyslu með verði,
einkasölu ríkis og háum aldursmörkum til áfengis-
kaupa ...“ og þess var getið að stefnan væri í sam-
ræmi við stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) til 2020.
Áfengi er sterklega samofið menningu okkar og
umfjöllun um neikvæð áhrif þess á ekki greiða leið
að eyrum fólks. Enda hefur WHO bent á að áhrifa-
ríkustu leiðirnar til að draga úr áfengisneyslu séu
allar á valdi stjórnvalda og felist í takmörkun á fram-
boði áfengis, verðstýringu og banni við áfengisaug-
lýsingum. Við blasir að slökun á auglýsingabanni og
afnám einkasölu ríkisins á áfengi mun valda aukinni
neyslu og þar með fjölgun dauðsfalla, meðal annars
vegna krabbameina. Vonandi ber Alþingi Íslendinga
gæfu til að fara ekki í öfuga átt við lýðheilsustefnu,
heldur beini kröftum sínum í farveg sem eflir heilsu,
velferð og hamingju landsmanna.
Heimildir
1. IARC. Personal habits and indoor combustions. In: IARC Monogr Eval
Carcinog Risks Hum 2012. Volume 100E.
2. Secretan B, Straif K, Baan R, Grosse Y, El Ghissassi F, Bouvard V, et al. A
review of human carcinogens—Part E: tobacco, areca nut, alcohol, coal
smoke, and salted fish. Lancet Oncol 2009; 10: 1033-4.
3. GBD 2016 Alcohol Collaborators. Alcohol use and burden for 195
countries and territories, 1990-2016: a systematic analysis for the Global
Burden of Disease Study 2016. Lancet 2018; 392: 1015-35.
4. Andersson TM, Engholm G, Pukkala E, Stenbeck M, Tryggvadottir L,
Storm H, et al. Avoidable cancers in the Nordic countries-The impact of
alcohol consumption. Eur J Cancer 2018; 103: 299-307.
5. Norström T, Miller T, Holder H, Osterberg E, Ramstedt M, Rossow I, et
al. Potential consequences of replacing a retail alcohol monopoly with a
private licence system: results from Sweden. Addiction 2010; 105: 2113-9.
6. uvic.ca/research/centres/cisur/assets/docs/Systembolaget-public-health-
safety-benefits-April_2017.pdf - desmeber 2018.
Krabbamein, áfengi
og samfélagsleg ábyrgð
Cancer, alcohol and
social responsibility
Laufey Tryggvadóttir Clinical
Professor, Faculty of Medicine,
University of Iceland
Managing Director Icelandic Cancer
Registry, Icelandic Cancer Society
doi.org/10.17992/lbl.2019.01.209