Læknablaðið - jan. 2019, Blaðsíða 9
LÆKNAblaðið 2019/105 9
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Hjalti Már
Björnsson
bráðalæknir á bráðamót-
töku Landspítala
lektor í bráðalækningum
við læknadeild Háskóla
Íslands
Obsessive mind
in an injured body?
Hjalti Már Björnsson MD FACEP
FRCEM
Assistant professor in Emergency
Medicine, University of Iceland
Faculty of Medicine, University of
Iceland
doi.org/10.17992/lbl.2019.01.210
Manneskjur eru skapaðar til að hreyfa sig. Okkur öll-
um er eðlislægt að beita líkamanum þannig að reyni
á styrk, liðleika og þol. Sífellt skýrar hafa vísinda-
rannsóknir sýnt fram á að með reglubundinni hreyf-
ingu sé unnt að draga úr hjarta- og æðasjúkdómum,
þunglyndi, offitu, sykursýki, stoðkerfisverkjum og
öðrum heilsukvillum.
Þetta hefur verið þekkt í gegnum aldirnar og
er í raun ekkert nýtt. Á tímum Rómarveldis orðaði
skáldið Juvenal þessa visku með orðunum mens sana
in corpore sano eða „heilbrigð sál í hraustum líkama“
og oft hefur verið hvatt til íþróttaiðkunar almenn-
ings undir þessari yfirskrift.
Undanfarna áratugi hef ég hins vegar haft það
á tilfinningunni að öfgar í íþróttaiðkun hafi farið
vaxandi. Þeim hefur fjölgað sem hreyfa sig ekkert og
kljást við alvarlegt heilsutjón vegna þess en að sama
skapi hefur þeim fjölgað sem stunda of mikla hreyf-
ingu sér til tjóns. Læknar hafa rætt að oftar sjáist að
jafnvel ungir einstaklingar séu með veruleg álags-
meiðsli eða hafi orðið fyrir alvarlegum slysum vegna
öfgakenndra íþrótta.
Það er holl hreyfing að hjóla en að þjóta á ör-
grönnu hjóli á 60 km hraða niður brekku í hjólreiða-
keppni fylgir umtalsverð hætta á áverkum. Hæfileg
hlaup styrkja líkamann en ég hef efasemdir um
að það fari vel með liði að hlaupa 100 km á einum
degi. Ráðlagt er að börn og ungmenni hreyfi sig að
minnsta kosti í 60 mínútur á hverjum degi en ekki er
víst að öll ungmenni þoli að vera á stífum fimleika-
æfingum í þrjár klukkustundir á dag.
Hæfilegar íþróttir byggja eflaust upp heilbrigða
sál í hraustum líkama. Þegar farið er út í harðar
keppnisíþróttir finnst mér stundum að lýsingin á
þráhyggjusál í löskuðum líkama eigi betur við.
Rannsóknir hafa stutt þetta álit. Þannig hefur
verið sýnt fram á að fyrrum atvinnumenn í fót-
bolta eru með skert lífsgæði vegna aukinnar tíðni
slitgigtar í hné auk þess að bera merki um minn-
isskerðingu sem rakin hefur verið til endurtekinna
höfuðhögga.1,2 Hver iðkandi fimleika sem kominn er
í hóp þeirra bestu hefur reynst hljóta áverka að með-
altali nokkrum sinnum á ári, oftast tognanir á ökkla
eða fæti en alvarlegri áverkar eru algengir í þessum
hópi.3 Þegar litið er til atvinnumanna í hand- og fót-
bolta hefur verið sýnt fram á aukna tíðni kvíða og
þunglyndis meðal þeirra sem hafa orðið fyrir líkam-
legum áverkum í keppni.4
Varðandi áverka sem kunna að verða við íþrótta-
iðkun er sérstakt áhyggjuefni að langur tími getur
liðið frá áverka þar til langtímaáhrif koma í ljós.
Þannig hefur verið sýnt fram á að afleiðingar áverka
og ofþjálfunar hafa leitt til aukinnar tíðni slitgigtar
hjá þeim sem stundað hafa keppnisíþróttir en að ára-
tugir geta liðið frá áverka þar til einkenni slitgigtar
koma fram.5 Það er því hugsanlegt að með aukinni
hörku í þjálfun og keppni ungs íþróttafólks muni
koma fram aukning í tíðni alvarlegrar slitgigtar ára-
tugum síðar.
Leiðarahöfundur vill því í byrjun nýs ár hvetja
alla landsmenn til að stunda hreyfingu sér til heilsu-
bótar en muna jafnframt að ofgera sér ekki. Hvetjum
börn og ungmenni til að stunda íþróttir en leggjum
áherslu á að allt sé gert til að draga úr áverkum og
tryggja að æfingaálag sé hæfilegt. Ef fólk verður fyr-
ir áverkum eða finnur fyrir álagsmeiðslum er síðan
mikilvægt að gefa líkamanum tíma til að jafna sig.
Verk eftir áverka eða mikið álag ætti almennt að
túlka sem vinsamleg skilaboð frá líkamanum um
að hlífa viðkomandi líkamshluta þannig að hægt sé
að græða skaðann. Áverkar á brjósk og sinar eru oft
lengi að gróa og það getur tekið mánuði og ár þar til
fullum bata er náð.
Ágæti lesandi, láttu áramótaheitið í ár vera að
stunda hóflega líkamsrækt þér til heilsubótar til að
áramótaheitið á næsta ári þurfi ekki að vera að hætta
alveg allri íþróttaiðkun til að líkaminn nái að jafna
sig eftir of mikið hreyfingarálag eða áverka.
Heimildir
1. Drawer S, Fuller CW. Propensity for osteoarthritis and lower limb joint
pain in retired professional soccer players. Br J Sports Med 2001; 35: 402-
8.
2. Matser JT, Kessels AG, Lezak MD, Troost J. A dose-response relation
of headers and concussions with cognitive impairment in professional
soccer players. J Clin Exp Neuropsychol 2001; 23: 770-4.
3. Kolt GS, Kirkby RJ. Epidemiology of injury in elite and subelite female
gymnasts: a comparison of retrospective and prospective findings. Br J
Sports Med 1999; 33: 312-8.
4. Kilic O, Aoki H, Haagensen R, Jensen C, Johnson U, Kerkhoffs G, et al.
Symptoms of common mental disorders and related stressors in Danish
professional football and handball. Eur J Sport Sci 2017; 17: 1328-34.
5. Maffulli N, Longo UG, Gougoulias N, Caine D, Denaro V. Sport injuries:
a review of outcomes. Br Med Bull 2011; 97: 47-80.
Þráhyggjusál í löskuðum líkama?