Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - jan. 2019, Side 34

Læknablaðið - jan. 2019, Side 34
34 LÆKNAblaðið 2019/105 Áætla má að yfir 80.000 landsmanna séu með hækkaðan blóðsykur sem þó hefur ekki náð greiningarviðmiðum fyrir sykursýki af tegund 2; það sem erlendis er nefnt forstig að sykursýki (pre-diabetes). Á hverju ári þróa um 5-10% þess hóps með sér sykursýki og bætast í hóp þeirra 23.000 Íslendinga sem talið er að séu með sykursýki. Stefnt er að árvekniherferð í janúar að bandarískri fyrirmynd til þess að finna þessa einstaklinga í von um grípa inn í ferlið. Tryggvi Þorgeirsson, annar stofnenda heilbrigðistæknifyrirtækisins SidekickHealth, sem sett hefur á markað lausn undir sama nafni, segir að takist að finna þessa einstaklinga megi spara heilbrigðiskerfinu mörg hundruð þúsund krónur á hvern þann sem breyti um lífs- stíl. Tölurnar taki mið af mati Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar. „86% allra dauðsfalla á Vesturlöndum og 70-80% af heilbrigðiskostnaði er vegna lífsstílstengdra langvinnra sjúkdóma,“ segir Tryggvi. „Þess vegna skýtur það svo skökku við að við verjum aðeins 1,6% heilbrigðisútgjalda í forvarnir. Við erum alltaf að slökkva elda og gleymum að fyr- irbyggja þessa sjúkdóma,“ segir hann þar sem við sitjum á skrifstofu hans á starfstöð frumkvöðlafélagsins á mótum Smiðjustígs og Laugavegar í miðbæ borgarinnar. Vilja sigra sykurinn Árverkniherferðin í janúar er einmitt til forvarna og verður undir merkjunum Sigraðu sykurinn. SidekickHealth stendur að henni ásamt Heilsuborg, SÍBS og Sam- tökum sykursjúkra. Þau hafa fengið styrk frá Lýðheilsusjóði til að þýða og aðlaga bandaríska meðferð til að fyrirbyggja sykursýki (National Diabetes Prevention Program) að íslenskum aðstæðum. „Það er ekki aðeins flóðbylgja af lífs- stílstengdum sjúkdómum á Vesturlöndum heldur einnig á heimsvísu. Langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar valda 68% allra dauðsfalla í heiminum,“ segir Tryggvi og að sykursýki 2 sé ein birtingamynd þessa. „Við vitum að fyrir nokkrum áratugum voru 100 milljónir með sykursýki 2, nú eru þær 420. Það er gríðarleg fjölgun og hefur beina tengingu við lífsstílstengda þætti eins og mataræði og holdafar,“ segir Tryggvi. Í Bandaríkjunum er talið að yfir 80 milljónir manna séu með forstig sykur- sýki, eða um einn af hverjum þremur fullorðnum. Hegðun betri en lyf „Árið 2002 kom út grein í New England Journal of Medicine sem sýndi að ef þú finnur fólk með hækkaðan blóðsykur sem ekki er komið með sykursýki og grípur inn í lífsstílinn, má draga úr hættunni á að fá sykursýki um 60 til 70%. Það er sem sagt gríðarlega árangursrík meðferð,“ segir hann og bendir á að slíkt lífsstílsinn- grip sé áhrifaríkara en lyf. „Það er tvöfalt áhrifaríkara en metformin samkvæmt sömu rannsókn,“ segir Tryggvi en lyfið er notað við sykursýki 2. Tryggvi segir að þessum bandaríska hópi hafi verið fylgt eftir og að inngrip- ið fyrir 15 árum hafi enn áhrif á heilsu fólksins. „Eftir að þessar rannsóknir lágu fyrir í Bandaríkjunum var ráðist í sykur- sýkisforvarnarverkefni þar árið 2012. Smit- sjúkdóma- og forvarnarstofnun Bandaríkj- anna, CDC, hélt utan um verkefnið. Fleiri þjóðir réðust í svipað prógramm árið 2016 og þau eru í undirbúningi víða um heim,“ segir hann. „Fyrirtækið okkar hefur unnið á þess- um forvarnarmarkaði í Bandaríkjunum og kynntist þessu verkefni þar. Fyrir mér sem lækni og lýðheilsufræðingi er þetta flottasta forvarnarprógramm sem ég hef séð fyrir þessa lífsstílstengdu sjúkdóma,“ segir hann. „Mér fannst strax augljóst að þetta ætti við hér,“ segir Tryggvi sem tók mastersgráðu í lýðheilsuvísindum í Ætla að hjálpa þjóðinni að sigrast á sykrinum Talið er að lífsstílsbreytingar geti gagnast einum þriðja þjóðarinnar sem sé með forstigs-sykursýki 2 eða þjáist af þessum lífsstílstengda sjúkdómi. Tryggvi Þorgeirsson og SidekickHealth eru meðal þeirra sem standa á bakvið árveknisherferð gegn sjúkdómnum í janúar Ólíkur lífsstíll android og iPhone notenda SidekickHealth hefur komið sér upp gagnabanka með yfir 50 milljón gagnapunkt- um um heilsu og athafnir notenda sinna. „Notendur okkar hafa gert margar milljónir heilsueflandi mælinga og í hvert skipti sem þeir gera æfingar sjáum við hvernig síma þeir eru með, hvar þeir er staddir, hvað þeir gerðu í síðustu viku. Við lærum mikið um hegðun,“ segir Tryggvi Þorgeirsson annar tveggja stofnenda fyrir- tækisins. Upplýsingarnar séu um margt áhugaverðar. „Ef þú ert iPhone notandi ertu 60% líklegri til að standa við skrifborðið en android notandi, þú ert líklegri til að fara í jóga, á skíði eða hestbak en android notendur eru líklegri til að gera armbeygjur, fara í sund, gera öndunaræfingar eða stunda amerískt rugby.“ Tryggvi segir að með gervigreind sem nái yfir þá 50 milljón gagnapunkta sem fyrirtækið hafi safnað sé hægt að miða heilsueflandi æfingarnar við stöðu hvers og eins. „Þannig getum við tryggt að við finnum það sem hentar þér best í þínum aðstæðum. Við verðum betri og betri eftir því sem gagnabankinn stækkar. Appið okkar verður því betra með hverjum deginum sem líður.“ ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.