Læknablaðið - Jan 2019, Page 37
LÆKNAblaðið 2019/105 37
1. Að gæta trúnaðar- og þagnarskyldu gagnvart sjúklingum
Læknar eru alltaf bundnir trúnaðar- og þagnarskyldu gagnvart
sjúklingum. Sú skylda á við á samfélagsmiðlum eins og annars
staðar. Ef læknir bloggar eða deilir frásögn eða skemmtisögu úr
daglega lífinu þarf að gæta vandlega að því hvaða upplýsingum
er deilt og hvort afla þurfi samþykkis sjúklings.
Sérstaklega þarf að gæta varúðar í umræðum um einstaklinga
eða sjúkdómstilfelli. Jafnvel þó persónugreinanlegar upplýsingar
séu fjarlægðar geta leynst í frásögninni upplýsingar sem benda til
sjúklingsins þannig að hann eða fjölskylda hans þekkir hann af
lýsingunni.
Aldrei skyldi nota samfélagsmiðla til að ræða einstaka sjúk-
linga eða þjónustu við þá, hvorki við þá sjálfa né aðra. Hafi
sjúklingur samband við lækni um meðferð sína eða önnur fagleg
málefni í gegnum samfélagsmiðla er mikilvægt að benda þeim á
að hafa samband í gegnum vinnustaðinn.
Vilji læknir deila mynd af sjúklingi eða sjúklingum sem
tengjast sérstöku tilfelli og birta á netinu þarf að fá leyfi sjúk-
lingsins. Við myndatökur á vinnustað þarf ætíð að gæta þess að
á myndinni leynist ekki eitthvað eða einhver sem myndbirting
myndi brjóta trúnað gagnvart. Jafnframt þarf að kynna sér reglur
og leiðbeiningar sem vinnustaðurinn hefur sett um mynda- og
hljóðupptökur og gæta þess að fylgja þeim.
2. Að virða fagleg mörk
Notkun samfélagsmiðla gerir óljós mörkin milli vinnu og einka-
lífs. Mikilvægt er að læknar haldi faglegri fjarlægð frá sjúkling-
um sínum. Almennt er talið óskynsamlegt að læknar samþykki
vinabeiðni frá sjúklingi þó kringumstæður geti verið þannig að
það sé erfitt og jafnvel ómögulegt, t.d. í dreifbýli.
3. Að íhuga vel hvort skynsamlegt er að deila
Formleysi og rauntímaeðli samfélagsmiðla teljast til styrkleika
þeirra en í þessu tvennu felast einnig hugsanlegar gildrur. Lækn-
ingar eru krefjandi og streituvaldandi starf. Það gæti verið freist-
andi að blása út eða segja hug sinn á samfélagsmiðlum en þeir
eru alls ekki staðurinn til þess. Það er góð regla að setja aldrei
neitt á samfélagsmiðla þegar maður er reiður, undir áhrifum
áfengis eða viðkvæmur. Það á ekki heldur að segja frá neinu á
samfélagsmiðlum sem maður mundi ekki vilja sjá á prenti í dag-
blaði eða rætt í beinum samskiptum.
Allir njóta tjáningarfrelsis og skoðanafrelsis en þessum mann-
réttindum eru takmörk sett. Meiðyrðalöggjöf nær til netsam-
skipta. Þess vegna er skynsamlegt að forðast athugasemdir um
einstaklinga, félög eða stofnanir sem túlka má sem tilefnislaus
eða óstaðfest og þar með mögulega meiðandi.
4. Að íhuga vel hvort póstað sé í nafnleysi sem læknir eða undir nafni
Það er álitið skynsamlegt, ef læknir kynnir sig sem lækni, að við-
komandi gefi einnig upp nafn sitt. Ef einstaklingur kemur með
athugasemdir um málefni sem tengjast heilsufari eða heilbrigð-
isþjónustu og segist vera læknir þá er það talið gefa athugasemd-
unum meiri vigt en ella. Það er því mælt með því að setja fram
athugasemdir af þessu tagi undir nafni.
Þá er vert að hafa í huga að efni sem er hlaðið niður í nafnleysi
er mögulega hægt að rekja.
5. Að gæta varúðar við læknisráðgjöf á samfélagsmiðlum
Læknar eiga að forðast að veita einstaklingsbundna læknisráðgjöf
á samfélagsmiðlum til almennings. Þá á aldrei að nota samfélags-
miðla til að ræða við sjúklinga um vandamál þeirra.
6. Að upplýsa ætíð um hagsmunaárekstra
Ef læknir skrifar eitthvað á samfélagsmiðla sem læknir eru meiri
líkur en ella á því að upplýsingarnar séu taldar trúverðugar. Þess
vegna er mikilvægt að vera hreinskilinn og forðast eða upplýsa
um mögulega hagsmunaárekstra og möguleg fjárhagsleg eða við-
skipaleg tengsl.
7. Að stýra persónuvernd og upplýsingum
Hver og einn ákveður sínar persónuverndarstillingar á samfé-
lagsmiðlum. Engin samfélagsmiðill getur tryggt trúnað, sama
hvernig þú stýrir persónuverndinni. Við stýringu persónuvernd-
ar og upplýsinga er þó mikilvægt að muna að á netinu er ekkert
í raun öruggt. Það er alltaf möguleiki á því að það sem sett er á
netið fái víðtækari útbreiðslu en til var ætlast. Eftir að upplýs-
ingar eru komnar á netið getur reynst erfitt að eyða þeim þar sem
aðrir geta dreift þeim eða gert við þær athugasemdir. Þá er vert
að hafa í huga að upplýsingar um staðsetningu geta komið fram á
myndum eða öðru efni og þannig orðið sýnilegar öðrum.
8. Siðareglur Læknafélags Íslands
Læknafélag Íslands setur félagsmönnum sínum siðareglur, Codex
Ethicus – reglur um góða læknishætti sem reistar eru á Alþjóða-
siðareglum lækna. Codex Ethicus er ætlaður öllum læknum sem
starfa á Íslandi til leiðbeiningar og stuðnings í daglegu starfi.
Mikilvægt er því að læknar hugi einnig að þeim í öllum sam-
skiptum sínum á samfélagsmiðlum.