Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - jan 2019, Qupperneq 49

Læknablaðið - jan 2019, Qupperneq 49
LÆKNAblaðið 2019/105 49 Hannes Pálsson tók þessa mynd af Vatneyri við Patreksfjörð um 1965. Ljósmyndasafn Reykjavíkur veitti leyfi sitt fyrir birtingu myndarinnar. ekki klæddur fyrir svona útiveru og ekki var líklegt að fleiri ættu leið yfir heiðina þetta kvöldið og sennilega yrði ég úti. Ég reyndi að gera nafna mínum grein fyrir þessu og málið yrði örugglega flokkað sem morð. Auðvitað var Mangi vænsti maður og ferðin endaði í eldhúsinu í Botni þar sem við drukkum kaffi með brenni- víni útí og ræddum tilgang lífsins og áhrif segulsviðs á líkama og sál. Nokkru síðar gerði aftakaveður á norðan og í því veðri hraktist nokkur fjöldi sláturlamba á Rauðasandi út í sjó og drukknaði. Þessi lömb voru nánast öll frá einum bónda. Lömbin voru verkuð og skrokkarnir hengdir upp í aflögðu slátur- húsi skammt frá flugvellinum. Síðan var haft samband við mig en ég átti að skoða og stimpla skrokkana. Ég mætti á staðinn en skildi stimplana eftir heima. Við blöstu skrokkar með bláleitu köfnunarkjöti sem ekki kom til greina að stimpla. Þegar ég hafði tjáð bónda þessa niðurstöðu truflaðist hann alveg, ýtti mér út í horn, dró upp lítinn hnífkuta sem hann otaði í átt til mín með þeim skilaboðum að ef ég stimplaði ekki skrokkana skyldi ég hljóta verra af. Þetta var gamall, góðlegur karl og það hvarflaði aldrei að mér að hann mundi vinna mér mein. Eftir stutta samningalotu féllst karlinn á þá tillögu mína að ég legði málið fyrir yfirdýralækni og mundum við báðir samþykkja hans dóm. Ég hringdi svo í Pál sem sagði nákvæmlega það sem þurfti til að leysa málið. Þarna var ennþá sveitasími, ég lét fréttast hvenær ég mundi hringja, og til marks um að hálf sveitin hlustaði var ég aldrei spurður um hvað Páll sagði. Ég frétti reyndar nokkru síðar af því að Rauðasandsskrokkarnir væru komnir (óstimplaðir) í frysti á Patró og vel gæti verið að ég hafi étið eitthvað af þessu kjöti í pylsum um veturinn. Í framhaldi af þessu gerðust áhugaverðir hlutir. Karlinn á Rauðasandi átti afmæli og þá virkjaðist hið forna tryggingakerfi landsins. Bændurnir á svæðinu gáfu honum 1-2 lömb hver og þannig var honum bættur hinn fjárhagslegi skaði af óhappinu. Síðustu 7-10 dagana var slátrun lokið nema á Barðaströnd. Þann tíma bjó ég í Haga hjá þeim merkishjónum Hákoni Kristóferssyni og Björgu Jónsdóttur en bæði skemmtilegt og lærdómsríkt var að kynnast þeim þó stutt væri. Þegar slátrun var lokið var bara eftir að komast heim sem reyndist þrautin þyngri. Ætlunin var að fara landleiðina með rútu. Björg í Haga útbjó mig með fínasta nesti og ég steig um borð í rútuna. Í þá daga lá leiðin yfir Þingmannaheiði, frá Vatnsfirði yfir í Vattarfjörð, en þar hafði snjóað talsvert. Í rútunni voru 14 skóflur sem ég og hinir farþegarnir mokuðum með hálfa nóttina en urðum að endingu að gefast upp. Það var sem sagt ófært landleiðina, enginn bátur gekk frá Brjánslæk og ekki var flogið vegna veðurs. Þess vegna lá leiðin aftur út á Patró. Þar fékk ég að dúsa í 5 daga, fór einu sinni í bíó, einu sinni á spilakvöld hjá ónefndum stjórnmálaflokki, hlustaði á endalausar kjaftasögur hjá fólkinu sem hafði mig í fæði og húsnæði, en þess á milli las ég meinafræði sem ég hafði verið svo forsjáll að taka með. Að lokum batnaði veðrið og ég komst með flugi til Reykja- víkur.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.