Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 38
398 LÆKNAblaðið 2019/105
„Komdu bara inn í kjallara spítalans
Eiríks götumegin, tekur svo beygju til
hægri gengur inn allan ganginn að lyftun-
um tveimur, ferð upp á fjórðu hæð og
finnur mig þar,“ segir Runólfur Pálsson,
prófessor í lyflæknisfræði (nýrnasjúk-
dómafræði) og yfirlæknir á lyflækninga-
sviði Landspítala, þegar við mælum okkur
mót. Ranghalarnir virðast í fullkomnu
samhengi við skrifstofuna, því hún líkist
helst völundarhúsi byggðu úr skjölum og
blöðum. Við vindum okkur í að ræða við-
fangsefnið en fyrir stuttu afhenti Runólfur
forsetakeflið fyrir Evrópusamtök lyflækna,
sem nefnist á ensku European Federation
of Internal Medicine, til eftirmanns síns,
Nicola Montano frá Mílanó á Ítalíu.
„Það skiptir máli að fá utanaðkomandi
sýn á heilbrigðiskerfið,“ segir hann spurð-
ur um mikilvægi svona samtaka og þátt-
töku í alþjóðastarfi. „Mikilvægast í svona
samstarfi er að við lærum af hvert öðru.
Heilt yfir fást læknar við sömu vanda-
málin, heilbrigðisþjónustan er keimlík en
samt sem áður búa þjóðirnar við ákveðnar
hefðir sem hafa áhrif á hvernig hlutirnir
eru gerðir. Svo á liðnum árum hafa skap-
ast mismunandi áskoranir í mismunandi
löndum og aðrir geta lært af því.“ Menn-
ingin innan ólíkra heilbrigðisstofnana
komi þó oft í veg fyrir það.
Fagnar fjölbreytninni
„Það er ekki óalgengt að fulltrúar þjóða
kynni sér mikilvæg mál frá öðrum lönd-
um, komi svo heim uppfullir af hugmynd-
um en þá dettur allt í dúnalogn og við-
kvæðið verður: Við höfum alltaf gert þetta
svona. Þetta er allt í lagi hjá okkur.“ Þegar
grannt sé skoðað séu sömu vandamálin þó
til staðar. „Oft er þetta einungis spurning
um hvaða gleraugu er verið að nota.“
Runólfur segir íslenskt heilbrigðiskerfi
búa vel að mikilli fjölbreytni í menntun
starfsfólks. Þótt við séum smáþjóð höf-
um við mikið til málanna að leggja. „Við
komum víðar að úr námi. Ég sé fjölbreytn-
ina glögglega á Íslandi miðað við önnur
lönd í Evrópu, meðal annars á Norður-
löndunum, þar sem ákveðin einsleitni
ríkir,“ segir hann.
„Allir læra á sömu háskólasjúkrahúsun-
um og það skapast ákveðnar hefðir. En á
Íslandi læra læknarnir um allan heim. Þeir
koma til baka með mismunandi viðhorf og
hefðir. Það er mikill kostur sem við höfum
ekki nýtt okkur sem skyldi,“ segir hann.
„Ég hef oft heyrt erlenda kollega segja
þegar ég segi frá námi mínu í Bandaríkj-
unum: Við þurfum að gera meira af því að
senda okkar efnilegu einstaklinga annað.“
Sex ár í evrópsku stjórninni
Runólfur hafði gegnt stöðu forseta í tvö
ár. Við taka tvö ár í stjórn sem fráfarandi
forseti, rétt eins og tvö ár fyrir embættið
sjálft sem tilvonandi forseti.
„Þetta er gert til að tryggja samfellu í
starfi og hámarka árangur með því að hafa
þá við borðið sem gjörþekkja starfsemina
og þekkja viðfangsefnið um gjörvalla
Evrópu,“ segir hann, enn hann gegndi
formennsku í Félagi íslenskra lyflækna um
14 ára skeið. Á þeim tíma skráði félagið sig
til leiks innan evrópsku samtakanna og
smátt og smátt náði hann hæstu hæðum
innan þeirra. Hann segir áhrif örra samfé-
lagsbreytinga og lýðfræðilegra breytinga
á starfsemi og menntun lyflækna meðal
helstu viðfangsefna þeirra. Samhæfing
framhaldsmenntunar í lyflækningum í
Evrópu sé eitt af mikilvægustu verkefn-
unum.
„Með vaxandi fjölda aldraðra verður
þörfin fyrir læknis- og heilbrigðisþjónustu
allt öðruvísi en við gerðum okkur í hugar-
lund fyrir 20-30 árum,“ segir hann.
„Í rauninni þróaðist þjónustan lengi
vel á grundvelli sérgreina innan læknis-
fræðinnar en á síðustu 10-20 árum hefur
verið að koma betur og betur í ljós að það
er ekki samræmi milli slíks fyrirkomulags
og þarfa samfélagsins.“ Þarfir samfélags-
ins kalli á aukna þjónustu við aldraða með
fjölþætt vandamál og færniskerðingu. „Við
þurfum að finna leiðir til að sníða meðferð
margvíslegra kvilla að þörfum hvers og
eins einstaklings,“ segir hann.
„Við verðum að tryggja að læknar fram-
tíðarinnar hljóti menntun og þjálfun sem
gerir þeim kleift að takast á við æ flóknari
og meira krefjandi verkefni.“
Við Runólfur ræðum nútímalækningar.
Hann nefnir hvernig læknar hafi reynt
að stilla upp þjónustu ólíkra sérgreina og
vonað að út úr því kæmi viðunandi árang-
Mikilvægt að læra af öðrum
Runólfur Pálsson hefur afhent eftirmanni sínum forsetatignina hjá Evrópusamtökum lyflækna.
Nú taka við tvö ár í stjórn sem fyrrum forseti. Hann segir alþjóðasamstarf mikilvægt, er
ánægður með að stunda vísindastarf á Íslandi og segir fjölbreytni í menntun íslenskra lækna
kost. Læknablaðið settist niður með Runólfi og ræddi vísindi, verðlaun, menntun og tíma.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir