Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2019/105 399
ur. Það hafi ekki alltaf tekist. Almennar
lyflækningar fáist við þessar áskoranir
og að stýra þjónustunni og sníða hana að
þörfum sjúklinga en kostnaðaraukningin í
heilbrigðiskerfinu sé áhyggjuefni.
„Annað viðfangsefni Evrópusamtaka
lyflækna er hágæða þjónusta fyrir sem
minnstan kostnað (High-value care). Við
höfum getu til að gera mjög mikið en
þurfum að nýta úrræðin sem best fyrir
fólk. Það er mikil hætta, eins og heilbrigð-
isþjónustan er uppbyggð, á að fólk fari út
af örkinni og finni sér þjónustu. Svo þegar
árangurinn er ekki fullnægjandi leitar það
annað og ferlið byrjar að nýju með tilheyr-
andi kostnaði,“ segir Runólfur.
„Svo hafa mörg úrræði sem við höfum
þróað í góðri trú, eins og rannsóknir og
meðferðarúrræði, ekki reynst eins gild og í
fyrstu var talið. Þá erum við að kasta fjár-
munum,“ leggur hann áherslu á. Orð hans
styðja við umræðu um átak um snjallt val
í heilbrigðiskerfinu. „Minna er meira, er
því ráðandi mantran í dag,“ segir hann. En
glímt sé við hugarfarið.
„Við búum við ríka hefð í menntun,
þjálfun og uppeldi heilbrigðisstétta.
Þetta á ekki síst við lækna, þeir hafa
með ákvörðunum sínum gríðarleg áhrif
á hvernig fjármagn er nýtt í heilbrigðis-
þjónustu,“ segir hann. Erfitt sé að breyta
vinnufyrirkomulaginu en nauðsyn eigi að
síður.
Verðlaun í vísindum
Hallgrímskirkjuturninn blasir við út
um gluggann á skrifstofu Runólfs. Sól-
argeislarnir teygja sig inn og lýsa upp
allar bækurnar og skjölin sem hann hefur
sankað að sér í bunkum í gegnum tíðina.
Þetta eru örugglega merkileg plögg. Í það
minnsta hafa niðurstöður hans í nýrna-
rannsóknum verið verðlaunaðar, nú síðast
fékk hann fimm milljónir króna fyrir vís-
indastörf úr Verðlaunasjóði í læknisfræði
og skyldum greinum sem afhent voru á
ráðstefnunni Vísindum á vordögum.
„Ég hef verið hluti af sterkum hópi
vísindamanna,” segir Runólfur. „Vísinda-
starfið í dag byggist gríðarlega mikið á
samvinnu og ég stofnaði til samstarfs
við Ólaf Skúla Indriðason nýrnalækni og
Viðar Eðvarðsson barnanýrnalækni og
dósent fyrir meira en tveimur áratugum.
Við höfum unnið saman að þessu starfi,”
segir hann. Allir hafi þeir verið í öðrum
verkefnum líka. „En kjarninn er í þessu
samstarfi.“ Þeir vinni í samstarfi við aðra
hópa, bæði innanlands og utan. Langvinn-
ur nýrnasjúkdómur og nýrnasteinar hafi
verið helstu viðfangsefnin með áherslu á
faraldsfræði og erfðir. Meginmarkmiðið
sé að finna leiðir til að fyrirbyggja þessa
sjúkdóma. En af hverju þessi viðfangsefni?
„Jú, af því að þetta eru svo algengir
kvillar. Það er fjöldi einstakra nýrnasjúk-
dóma sem leiða til langvinns nýrnasjúk-
dóms,“ segir hann. Þeir vinni í náið með
Íslenskri erfðagreiningu og Hjartavernd.
„Þetta er mjög gefandi. Vísindastarf er
afar mikilvægur þáttur innan háskóla-
sjúkrahúss.“
Runólfur Pálsson prófessor á skrifstofu sinni á Landspítala. Mynd/gag