Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 44
404 LÆKNAblaðið 2019/105
Skipunartími fimm framkvæmdastjóra var
á enda og aðrir fjórir fengu uppsagnar-
bréf. „Framkvæmdastjórar lækninga- og
hjúkrunar, fjármála- og mannauðs verða
hins vegar áfram. Þrjár nýjar stöður fram-
kvæmdastjóra verða síðan í stað þeirra níu
sem hættu, þannig að alls verða sjö í nýrri
framkvæmdastjórn, auk mín,“ segir Páll
Matthíasson forstjóri. „Þrjú klínísk svið
verða til og undir hverju sviði fjórir til
fimm kjarnar.“ En hverjir eiga séns á þess-
um þremur störfum?
„Skoðun mín hefur alltaf verið sú að
þegar stöðurnar séu lausar sé hægt að
sækja um þær. Umsóknir skila fólki viðtali
og viðtalið starfi. Ég á því von á því að
fólk með mikla reynslu úr stjórnun í heil-
brigðisþjónustu hér innanhúss og vonandi
fólk annars staðar frá sæki um. Þetta eru
viðamiklar stöður sem krefjast mikillar
reynslu og þekkingar úr íslensku heil-
brigðiskerfi,“ segir Páll sem er nýfluttur
með yfirstjórn spítalans að Skaftahlíð 24
frá Eiríksstöðum Eiríksgötu 5 sem breytt
verður í göngudeildarhús.
Engin einkaskrifstofa á nýjum stað
Fimmtíu fermetra skrifstofan varð eftir að
Eiríksstöðum og hann skrifstofulaus í nýju
vinnuumhverfinu og saknar þess ekki. „Ég
var heilu og hálfu dagana utan skrifstof-
unnar,“ segir hann sáttur við hreyfanleik-
ann og skrifstofuleysið.
„Það er ekki góð nýting á almannafé
að setja slíkan fermetrafjölda í skrifstofu
sem stendur auð helminginn af tímanum
eða meira. Nútímatækni gerir okkur kleift
að vera miklu sveigjanlegri og fólk fær þá
aðstöðu sem það þarf í þau verkefni sem
það er að sinna hverju sinni, ekki ólíkt því
sem gildir í klínikkinni. Þetta er verkefna-
miðuð vinnuaðstaða.“
Páll segir að nú hafi verið rétti tíminn
til breytinga en fyrra skipurit hafi verið
orðið áratugs gamalt, verið sett í tíð Huldu
Gunnlaugsdóttur forvera hans í starfi árið
2009.
„Þá voru hugmyndir um að hafa fram-
kvæmdastjórnina mjög klíníska, hafa
einn aðila með klínískan bakgrunn yfir
hverju sviði, að sviðin væru í ákveðinni
innbyrðis samkeppni um starfsfólk, ár-
angur og annað slíkt. Skrifstofa var um
hvert svið og framkvæmdastjóri,“ segir
hann og að margir þættir þessa skipurits
hafi verið gagnlegir við hremmingarnar
eftir bankahrunið og samdráttinn á heil-
brigðiskerfinu um meira en 20% í kjölfarið.
Nýja skipuritið henti hins vegar breyttu
samfélagi.
Nýtt skipurit fyrir breytt samfélag
„Það er alveg ljóst að spítalinn hefur stækk-
að, verkefnin eru önnur og samfélagið ann-
að,“ segir hann. „Ég vil fá skipulag sem
endurspeglar þá þjónustu sem við erum
að veita og hjálpar okkur í því verkefni að
veita framúrskarandi þjónustu og skapa
góðan vinnustað.“
Páll segir spítalann nú í fyrri bylgju
breytinga. „Ég geri ráð fyrir því að auglýsa
nýjar stöður framkvæmdastjóra í lok vik-
unnar eða byrjun næstu,“ segir hann þar
sem við sitjum í nýinnréttuðu og látlausu
Páll skerpir á skipuritinu
fyrir breytt samfélag
og nýjan spítala
Tími var kominn á breytt skipulag Landspítalans, segir Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítalans, sem ætlar að taka upp nýtt skipurit fyrir spítalann og bæta við stjórn-
endalögum. Markmiðið er að ná spítalanum upp úr sílóum fortíðarinnar inn á þá
braut að fylgja sjúklingnum betur eftir á vegferð hans að betri heilsu.
Breytingar með víðtæku samráði
„Við fáum betra skipurit með því að draga fleiri að borðinu,“ segir Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans, sem hefur leitað víðtæks samráðs um breytt skipurit sem nú
stefnir í. Breytingar án samráðs hefðu komið verr við fólk.
„Það er styrkur í að fá fleiri sjónarmið að. Ég hef setið á annað hundrað fundi
með allt frá einum aðila upp í 200 manns. Frá hverjum einasta fundi hef ég komið
með hugmynd sem hægt hefur verið að nýta áfram beint eða óbeint,“ segir Páll.
„Ég hef kynnt breytingarnar fyrir fjölmörgum innan spítalans, fyrir stjórnendum
spítalans, fyrir læknaráði, hjúkrunarráði, ráðgjafanefnd Landspítalans, landlækni
og ráðherra og hef verið að taka allt saman og er í lokavinnu skipuritsins,“ segir
hann.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir