Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 41
Hætt var við stærstu lyfjatilraunina sem
ráðist hefur verið í hér á landi þar sem
bakhjarlar þess töldu litlar líkur til þess
að það kæmist á markað. Alls tóku 129
Íslendingar tilraunalyfið við Alzheimer,
segir Jón Snædal, sem fór fyrir rann-
sókninni í samstarfi við Þjónustumiðstöð
rannsóknarverkefna, og höfðu um 500
undirgengist undirbúningsrannsóknir
samkvæmt fréttatilkynningu á vef Ís-
lenskrar erfðagreiningar.
Jón segir að farið hafi verið af stað
með rannsóknina til að fá svar við þeirri
spurningu hvort hægt væri að koma í veg
fyrir Alzheimer. „Rannsóknin er stöðvuð
það snemma að hún svarar ekki þeirri
spurningu,“ segir hann. „Þá sitjum við eft-
ir með þá hugsun að þetta gæti verið leið
sem er fær en ekki er búið að sanna það
eða afsanna.“
Hringt í Alzheimerssjúklinga
Viðbrögð Alzheimerssamtakanna eru þau
sömu og Jóns. „Gífurleg vonbrigði því
væntingarnar voru miklar,“ segir Vilborg
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri samtak-
anna. Undir það tekur stjórnarformaður
þeirra, Árni Sverrisson. Vilborg segir að
fólkið sem tók þátt í rannsókninni hafi
fengið símtal um að hætta taka lyfið en að
áfram verði fylst með líðan þeirra.
„Þátttakendurnir vita enn ekki hvort
það tók lyfið eða lyfleysu,“ segir hún og
tekur fram að þótt fólk finni fyrir von-
brigðum sé það ekki óánægt. „Því við vit-
um að aðeins hluti lyfja nær því takmarki
að verða framleiddur.“ Spurningin um lyf
við sjúkdómnum sé oft sú fyrsta sem þeir
sem greinist með Alzheimer beri upp.
Árni segir að stigið sé skref afturábak
nú með því að hætta rannsókninni. Hins
vegar sé það svo að þrátt fyrir að hætt
hafi verið á þessum tímapunkti séu vís-
bendingar um að þekkingin á sjúkdómn-
um hafi aukist, sem aftur sé skref fram
á við. Alzheimerssjúklingar haldi því í
vonina.
Átta störfuðu við rannsóknina
Átta manns hjá Þjónustumiðstöð rann-
sóknarverkefna störfuðu við verkefnið,
tveir læknar, tveir sálfræðingar og fjórir
hjúkrunarfræðingar.
Jón segir ástæðuna fyrir því að tilraun-
in var stöðvuð hafa verið að bakhjarlar
töldu litlar líkur á að lyfið kæmist á mark-
að. „Ástæðan er sú að fyrstu rannsóknir
sýndu að þeir sem tóku það virtust muna
verr en þeir sem fengu lyfleysu,“ segir Jón.
Þetta hafi sést á minnisprófum sem lögð
hafi verið fyrir hópinn. „Það var sláandi
að þetta skyldi vera niðurstaðan.“
Jón segir að tilraunalyfið hafi í
grunninn virkað sem mörg önnur. „Þau
hamla tilteknum próteinum og starfsemi
þeirra. Hömlunin þótti fullmikil. Menn
höfðu rætt og jafnvel undirbúið að lækka
skammtinn svo hömlunin væri minni, því
efnið sem var verið að stoppa hafði bæði
góð og jákvæð áhrif en líka þau neikvæðu
að leiða til útfellinga.“ Bakhjarlarnir hafi
hins vegar ákveðið að hætta áður en til
þess kom. Verkun lyfsins hafi verið dæmd
ófullnægjandi.
„Svona rannsóknir eru algjörlega á
forsvari þess sem býr til lyfið og ekki hægt
að skipta um bakhjarla,“ segir Jón.
Fylgja þátttakendum eftir
Jón segir að símtölin til þátttakanda hafi
verið erfið en þeir hafi þó tekið tíðindun-
um af yfirvegun. „Nú er þessu fólki fylgt
eftir í allt að 9 mánuði til að sjá hvernig
þeim farnast.“ Rannsóknarteymið sé enn
í sambandi við Vísindasiðanefnd á meðan
rannsókninni sé fylgt á endastöð. „Við
þurfum að upplýsa fólk um breytingar,
bæði munnlega og skriflega,“ segir hann
og þakkar því samfylgdina. „Við erum afar
þakklát öllum þátttakendunum og deilum
vonbrigðum þeirra yfir niðurstöðunni.“
Haft er eftir David Reese, yfirmanni
rannsóknar og þróunar hjá Amgen, í
fréttatilkynningu Íslenskrar erfðagreinin-
ar, að niðurstaðan sé mikil vonbrigði fyrir
vísindin og milljónir einstaklinga sem
sjúkdómurinn hafi áhrif á. Hann trúi því
að efnahvatinn sem lyfið átti að hemja sé
mikilvægur í þessu flókna samspili sem
leiði til sjúkdómsins.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, segir lyfið hemja efna-
hvatann eins og stefnt hafi verið að en
það nægi ekki til að hægja á þróun sjúk-
dómsins auk þess sem því fylgi óæskilegar
aukaverkanir. Íslensk erfðagreining sé
reiðubúin að deila vísindaniðurstöðum
sínum með þeim sem leiti orsaka sjúk-
dómsins.
Stærstu lyfjarannsókn
Íslandssögunnar hætt
„Vonbrigði,“ segir Jón Snædal, öldrunarlæknir á Landspítala, sem fór
fyrir lyfjarannsókn á nýju Alzheimerslyfi Amgen og Novartis. Þróun á
lyfinu hefur verið hætt en lyfjatilraunin var sú stærsta sem ráðist hefur
verið í hér á landi. Vísindamenn bundu ekki aðeins miklar vonir við
lyfið heldur ekki síst Alzheimerssjúklingar.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Jón Snædal öldrunarlæknir fór fyrir rannsókninni í sam-
starfi við Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna.