Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1977, Qupperneq 11

Hugur og hönd - 01.06.1977, Qupperneq 11
Vestfirskir laufaviðarvettlingar voru ýmist hvítir eða mórauðir með svört- um brugðningum og marglitum kafla- bekkjum; einum eða tveim breiðust- um, laufaviðarbekkjum, og totan æv- inlega svört. Einstökusinnum voru þeir bláir. Sbr. Hugur og hönd 1973. Peysan er fallegri úr plötulopa, en einhverra hluta vegna er liturinn ekki talinn litekta í plötulopanum, heldur aðeins í hespulopa. Þá má þvo plöt- urnar áður en prjónað er og skola úr ediksvatni til að festa litinn, og skola svo aftur úr volgu vatni, og þvo flíkina þannig þaðan í frá. En þessi uppskrift er miðuð við hespu- lopa. Ejni: 4 hespur hvítur eða mórauður lopi, og hálf af hvorum lit, svörtum, rauðum, gulum, grænum, og má bæta við hvítum ef peysan er mórauð eins og þessi; og eins má bæta við bláum lit eftir smekk. Bolur: Fitjið upp 144 1 m rauðu á hringprjón nr 4 og prj síðan 1 sl umf í hring með svörtu, og áfram m svörtu 2 sl 2 br, 3 cm, eða 6 umf. Þá kaflamunstur 2 rauðar 2 grænar tvisvar sinnum. 2 svartar eða sauð- svartar umferðir, þá kaflamunstur: 2 hvítar 2 mórauðar tvisvar sinnum, eftir þær 6 mórauðar 1 og 2 livítar 1 tvisvar sinnum. Nú 3 umferðir mó- rauðar og 2 umferðir svartar, þá kaflamunstur 2 bláar 2 rauðar tvisvar sinnum, þá 2 umf svartar og þá er laufaviðurinn prjónaður inn í eftir teikningunni. Endað aftur á 2 svört- um umf, kaflar: 2 bláar og tvær rauð- ar tvisvar og síðast 2 umf svartar. Nú eru prjónaðar 5 umf í grunnlit, þá 2 svartar umf, þá 2 grænar og tvær rauðar tvisvar sinnum og aftur 2 svartar umferðir og í næstu umf 2 svartar og 2 hvítar tvisvar sinnum og síðan eftir teikningu 2 hvítar 2 grunnl. Þá 2 hvítar, 6 grunnl og loks 2 hvít- ar og 10 grunnl á milli og er þá gott að bregða bandinu mitt á milli svo það verði ekki of langt og laust á röngunni. 0 umf í grunnlit, 2 svartar umf, 2 rauðar og 2 gular tvisvar sinnum, 2 svartar umf. 4 mórauðar umf. Þá 2 svartar og 2 hvítar tvisvar sinnum og loks 2 hvítar og 2 svart- ar tvisvar, eins og á taflborði. Nú eru geymdar 8 1 undir handveg báðum megin og hinar geymdar á prjóninum þar til búið er að prjóna ermar. Ermar: Fitjið upp m rauðu 36 1 í hring og á 4 prjóna, prjónið með svörtu, fyrst 1 sl umf, þá 3 cm 2 sl og 2 br, þá 2 rauðar og 2 grænar tvisvar sinnum, 2 svartar umf, þá 2 mórauðar og 2 hvítar tvisvar og loks 2 hvítar og 2 mórauðar tvisvar sinn- um. Aukið út strax í fyrstu mó- rauðu umferðinni eftir munsturbekk- inn, þannig að 12 1 verði á hverjum prjóni eða 48 1 í hringnum. Prjónið 6 cm. Aukið síðan út á miðri undir- ermi um 1 lykkju á tveggja cm bili' þangað til 58 1 eru á hringnum og má þá prj á lítinn hringprjón í sama númeri. Þegar ermin er 46 cm löng eru geymdar 8 1 undir handvegi. Setjið nú ermalykkjurnar upp á hringprjóninn báðum megin. Prj 2 umf og setjið misl spotta sín hvorum megin v ermarnar. Byrjið á bak- lykkjunum, þegar 2 1 eru eftir að mislita spottanum eru þær teknar saman. Næstu 2 lykkjum (sem eru á erminni) er snúið við á prjóninum og síðan prjónaðar saman eins og hinar. Prjónið þangað til 2 1 eru eftir á ermi, þá eru þær prj saman og fyrstu 2 lykkjunum á framstykkinu snúið við á prjóninum og þær prj saman, þannig er haldið áfram allan hringinn og svo aðra hverja umf upp að hálsmáli. Eftir um 36 umf er skipt um lit, þannig að fyrst eru prj td 2 grænar umf og síðan svart upp úr sem eftir er og hálsbrugðning- in, sem er 64 1, 2 sl, 2 br, er líka svört, en fellt af með rauðu. Á peysunni, sem myndin er af, er kaflamunstur á þessum samskeytum, en þá þarf að byrja um 4 umferðum fyrr á kraga- stykkinu. A. S. HUGUR OG HÖND 11

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.