Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1977, Qupperneq 17

Hugur og hönd - 01.06.1977, Qupperneq 17
úr steinbítsroði er síðan gatað með gatatöng og saumað með sterkum hör- tvinna og strekkt á grindina. Mikil teygja er í roðinu og ekki hætta á að rifni út úr götunum. Þegar lokið er við að sauma öll sniðin á grindina, er skermurinn allur pensl- aður með formalinspiritus og settur út undir bert loft til þerris. Skermurinn á borðlampanum er gerður á þann hátt, að heilt roð er lagt blautt á einn flöt grindarinnar í einu. Það er strekkt og saumað með leðurnál yfir grindina. Roðið, sem er umfram, er klippt meðfram saumunum, síðan er flöturinn penslaður með formalinspiritus og þetta er sett út til þerris. Þegar roðið er orðið vel þurrt, er saumurinn klipptur burt og sniðið losað af grindinni. Á sama hátt er farið með alla hina fletina, þar til fengið er form skerm- grindarinnar í þurrum, strekktum og sléttum roðum. Nú má tengja hliðarnar saman utanum grindina á ýmsan liátt, hvort sem er með borðum eða snúrum, eða hvaða hugdettu sem er. Þórunn Egilson. HUGUR OG HÖND 17

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.