Hugur og hönd - 01.06.1977, Page 29
Efni: Tvöfaldur plötulopi.
Prjónar: Hringprjónn og sokkapr.
nr. 5, 2 pr. nr. 4.
Þensla: 15 lykkjur og 18 umferðir
á 10x10 cm.
Fitjið upp á tvo prjóna nr. 4 og prjón-
að eftir meðfylgjandi munstri. Fyrstu
6 prjónarnir eru prjónaðir með garða-
prjóni, síðan er skipt yfir á hringprj.
og prjónað slétt í hring. Þegar komið
er upp á öxl er fellt af (sjá munstur).
Merkt er fyrir handveg með þræðingu
og saumað í saumavél með þéttu
spori, tvær stungur báðum megin við
merkinguna. Síðan er merkt fyrir
hálsmáli og klauf, saumaðar tvær
stungur innan við merkinguna og
klippt úr fyrir innan stungurnar. Öxl-
in er síðan lykkjuð saman.
Þá eru teknar upp á sokkaprj. 64 1.
í handveg, þannig: teknar upp tvær,
hlaupið yfir eina o. s. frv. Ermin er
síðan prjónuð eftir munstri. Teknar
eru upp á vinstri klaufarbarmi 38 1.
á 2 prj. nr. 4 og prjónaðir 10 prj. 1
sl. 1 br. Hægri klaufarbarmur er
prjónaður eins en á 4 prj. eru gerð
5 hnappagöt.
Teknar eru upp 67 1. í liálsmáli á
prj. nr. 4 og prjónaðir 10 prj. 1 sl.
1 br„ fellt af. H. T.
HUGUR OG HÖND
29