Hugur og hönd - 01.06.1977, Page 35
vesti
Efni: Tvinnað loðband
3 mórauðir litir
3 ljósgráir litir
Eingirni blátt, prjónað tvöfalt
Alls um 100 gr.
Hringprjónn nr. 4.
Þensla: 20 1. = 10 cm. 23 umf =
10 cm.
Fitjaðar upp 130 1 með silfurfit og
dökku bandi. Þá prj 1 sl 1 br með
mórauðu 10 umf.
Nú er prj slétt prjón og mynstur og
litaskipti af fingrum fram, en aldrei
hafðir nema tveir litir í takinu í einu.
Gefst þá gott tækifæri til að prjóna
sínar eigin hugmyndir. Hér voru
dekkri litirnir prjónaðir fyrst og vest-
ið látið lýsast er ofar dró. Þegar búið
var að prjóna alla hæðina, 57 cm, var
merkt fyrir handveg beggja vegna 24
cm, og stungið í saumavél, ein lykkja
höfð á milli vélstungnanna, síðan
klippt á milli stungnanna. Þá voru
axlir lykkjaðar saman, 17 lykkjur
hvoru megin. Merkt fyrir hálsmáli,
hér: 8 cm niður að framan og til
hvorrar hliðar en 2 cm að aftan.
Saumað í saumavél eftir merkingunni
en síðan klippt.
í handveg voru teknar upp 80 1 og
prj 6 umf, 1 sl. 1 br með ljósmórauðu,
fellt af með garðaaffellingu.
í hálsmál 70 1 — 6 umf — garðaaffell-
ing. Vestið þvegið, þerrað inni í hand-
klæði. Teygt svolítið á langveginn og
lagt til þerris. V. P.
HUGUR OG HOND
35